22.10.2014 16:20
Sextíu ár
Ég er svollítið upptekin nú um stundir við að grúska í fortíðinni fyrir aðra en mig sjálfan því er og verður alveg á næstunni "fátt um fína drætti" hvað síðuna varðar en ég er ekki hættur. Í þessu grúski mínu rakst ég á þessa grein í "Fylkir" (blaði útgefnu hér í Eyjum) þ 22 okt 1954. Í gær voru því sextíu ár frá þessum atburði
Fréttin í Fylki 22-10-1954

TRÖLLAFOSS er eitt af þeim skipum sem ekki mega gleymast í siglingasögu Íslands. Skipið vakti víða athygli fyrir snyrtimennsku. Flaggskip flotans þess tíma hvað stærð varðaði.Um skipið og áhöfn þess mætti skrifa heila bók. Og merkilegt að engin ritfær maður skyldi ekki skrifa sögu Bjarna Jónssonar skipstjóra. Sem var fyrsti íslenski skipstjórinn á skipinu sem var keypt notað 1948. En Bjarni sigldi í báðum heimstyrjöldunum. Hann var m.a. á Ceres þegar hún var skotin í kaf 1917. Í seinna stríðinu var hann með Dettifoss og Lagarfoss eftir að Gullfoss var kyrrsettur í Kaupmannahöfn 1940. Bjarni var alla tíð vellátinn sem skipstjóri.

Hér er Bjarni að kveðja "strákana sína" 1952

Hann gat verið napur á Vesturleiðinni

Tröllafoss þótti mikið skip

Hann var að vísu tæpum 4 metrun styttri en Gullfoss

En hann tók mestallan Miðbakkann

Hér er Hlöðver Kristjánsson að athuga landrafmagnið???

Þeir þóttu slyngir í knattskyrnu Tröllafossmenn

Og höfðu gaman af Jazz

Lokað fyrir álit
Flettingar í dag: 4982
Gestir í dag: 150
Flettingar í gær: 0
Gestir í gær: 0
Samtals flettingar: 195075
Samtals gestir: 8294
Tölur uppfærðar: 14.3.2025 19:04:53