09.02.2012 17:14

Hafskip

Bjarni Halldórs sendi mér myndir af auglýsingu frá  "TRANS-ATLANTIC" hluta Hafsskips. Kem seinna með meira um Húsá II





08.02.2012 19:45

Jökulfell I og II

Einusinni áttum við flota af frystiskipum Fengum það fyrsta 1927. Hér er fyrsta frystiskip Skipadeildar SÍS Jökulfell. Ég hef fjallað um skipið hér á síðunni áður

Jökulfell I



                 Úr safni Samskip    © ókunnur

                    © söhistoriska museum se


                    © söhistoriska museum se

Sís menn tóku á leigu?? danskt frystiskip sem hét Bymos. Skipið var smíðað hjá Busumer SY í  Busum Þýskalandi 1968 sem Bymos fyrir danska aðila Það mældist: 499.0 ts 1677.0 dwt Loa: 75.60 m brd: 11.90,m  Skipadeildin kaupir svo skipið 1976 og skírir Jökulfell. og svo Jökulfell II 1985 Skipið er svo selt úr landi 1986 Og gengur svo undir þessum nöfnum: 1986 POLAR ICE - 1991 COAST WAY - 1994 JACMAR  Nafn sem það ber í dag undir Panamafána

Hér sem Bymos

                    © Hawkey01

                   © Handels- og Søfartsmuseets.dk


Hér sem Jökulfell


Mynd tekin af málverki sem var í eigu Hjalta heitins Ólafssonar skipstjóra



Mynd tekin af málverki sem var í eigu Hjalta heitins Ólafssonar skipstjóra

08.02.2012 19:10

Berit

Bjarni Halldórs vakti í gær athygli mína á þessu skipi sem einusinni hét Berit og var leiguskip Hafskip. Skipið var byggt hjá Finnboda Varf í Stockholm 1963 sem Berit Það mældist: 1599.0 ts 2500.0 dwt. Loa: 93.80 m brd: 13.80. m Það hefur gengið undir nokkrun nöfnum á ferlinum. M.a: 1987 LERIDA - 1988 OBERON - 1988 SCANWOOD - 1989 GINA II. Nafn sem það bar síðast þegar það var skráð en það var 23-03-2010 en þá var fáninn :Malaysia

Hér sem Berit


                   Úr safni Bjarna Halldórs

                      © söhistoriska museum se


                      © söhistoriska museum se


                          © Hawkey01

Hér sem Scanwood

                    ©.Kees Heemskerk

06.02.2012 19:13

Lim

Lim heitir þetta skip sem einusinni þjónaði Hafskip h/f Hét þá Dalsá

Hér er skipið sem Lim

                    © Arne Jürgens
Það var smíðað hjá Sietas í Neuenfelde,Þýskalandi sem Wiking 1984. Það mældist: 8639.0 ts 9282.0 dwt. Loa: 133.40. m  21.80 m Það gekk undir ýmsum nöfnum á ferlinum.

Hér er skipið sem Lim


                          © Will Wejster
Um skipið segir þetta í mínum plöggum  cv to containership, 8639.0 ts 12167.0 dw, date unknown. Það gekk undir mörgum nöfnum á ferlinum

Hér sem LImpopo



                 © Lettrio Tomasello

M.a: 1984 JORK EAGLE - 1985 DALSA  1985 WIKING I  1986 WOERMANN ULANGA  1986 WIKING  1987 KAHIRA  1989 CITY OF SALERNO  1992 KARYATEIN  1992 WIKING 1993 SLEIPNER  1993 MAYA TIKAL  1994 SEA-LAND SALVADOR  1994 MAERSK CARACAS  1995 CHRISTINE DELMAS  1996 CIELO DI VENEZUELA 1997 SEA PILOT


                 © Lettrio Tomasello

1998 SEA EXPEDITION  1998 MARGRET KNUPPEL  2004 MARGRETHE  2005 LIMPOPO 2008 LIM Nafn sem það ber í dag undir fána St Vincent and Grenadines.


                 © Lettrio Tomasello

06.02.2012 13:46

Regina Eberhard

Regina Eberhardt heitir þetta skip sem einusinni þjónaði Hafskip h/f undir nafninu Húsá


                    © Angel Godar

Það var byggt hjá Schichau UW í Bremenhaven Þýskalandi 1984 Sem Capricornus Það mældist :8902.0 ts 8879.0 dwt  Loa: 136.30.m  brd: 21.70.m Það hefur gengið undir mörgum nöfnum á ferlinum Mest sennilega út af leigusamningum M.a 1984 Contship Alpha 1985 Capri Eagle 1985 Capricornus 1985 Húsá 1985 Capricornus 1986 Tabuco



                    © Angel Godar

1986 Capricornus 1987 Cape Byron 1988 Independent Endeavour  1990 Capricornus 1990 Merkur Africa 1993 Regina Eberhardt 1993 Kent Merchant 1994 Sea Regina 1998 Regina Eberhard Nafn sem það ber í dag undir fána: Antigua and Barbuda

                    © Angel Godar


                    © Angel Godar

Hér sem Sea Regina

                    © Capt.Jan Melchers

05.02.2012 15:58

Aztec Maiden

Það er alltaf skelfileg sjón að sjá strandað skip. Slys eru alltaf röð atvika sem hafa slysið sem endapunt. Oftar en ekki eru það mannleg mistök sem orsaka þau. En hér er dæmi sem kannske er að kenna öðru um eða hvað ? En þetta skip varpaði akkeri fyrir utan Wijk aan Zee (12 sml vestur af Amsterdam) 17 jan síðastliðinn. Það fór að draga akkerið strax næstu nótt og endaði skipið svo uppi á ströndinni. Þetta endaði vel þ.e.a.s skipið náðist út. En látum myndirnar tala

Hér á strandstað 

                ©  Hannes van Rijn


                ©  Hannes van Rijn



                ©  Hannes van Rijn

Skipið var byggt hjá  Shin Yamamoto í Kochi Japan 1984 sem  Kibishio Maru  fyrir þarlenda aðila Það mældist: 12286.0 ts  19777.0 dwt. Loa: 154.90.m brd: 23.00 m 2006 fær skipið nafnið Aztec Maiden nafn sem það ber í dag undir Panamafána

Hér er skipið á sínum yngri árum 

                  © Capt.Jan Melchers

05.02.2012 14:37

Hvítá

Þetta skip flaggaði einusinni íslenskum fána. Tilheyrði íslenska kaupskipaflotanum sáluga. Hvaða skip er þetta? Hann Guðjón V var ekki lengi að "rústa" þessu eins og Tryggvi Sig vinur minn orðar það Skipið hét Hvítá í eigu Hafskips



                    © Wolfgang KRAMER

04.02.2012 18:06

Xarifa

Það er stundum talað um "Öskubuskuæfintýri" Og það sannaðist kannske á þessu skipi hér.

Capitana stödd í Aberdeen í "öskubuskugerfinu"


                    © Joe Forbes
Ég var búinn að fjalla um skipið hér eftir ábendingu frá Heiðari Kristins Það var byggt sem snekkja ( Yacht ) hjá White, J.Samuel í East Cowes, Englandi 1927 Hlaut nafnið Xarifa Það mældist 300 ts Loa:47.24 m Brd: 8.60 m
Ég fékk póst í dag um skipið sem ég birti hér






Og eins og segir í bréfinu var skipið einnig kvikmyndastjarna



Og hér fleiri myndir af þessu fræga skipi




04.02.2012 11:45

Green Atlantic ex Jökulfell

Lúðvík Friðriksson benti á í athugasemd í morgunn hve snauðir við íslendingar erum ornir af frysti/kæliskipum. Og ég svaraði því að það sé tregari en tárum taki að horfa á alla þessa "útlendinga" lesta hér afurðir frá landinu.

Jökulfell



                Úr safni Heiðars Kristinssonar

Og mig er máske að bresta minnið en mig minnir endilega að talað hafi verið um að stærsti hlutinn í sjálfstæði landsins lægi í því að siglingar til og frá landinu væru í höndum landsmanna sjálfra. Nú er það allt gleymt og grafið.

Jökulfell


                   Úr safni Heiðars Kristinssonar

Og það sýnir hnignunins í þessu best að skipið Green Atlantic áður
Jökulfell sem sýnt er hér á síðunni í dag var smíðað fyrir 27 árum.Er annað af síðustu flutningaskipum sem smíðuð voru fyrir ÍSLENDINGA Þá tel ég ekki með eina ferju ( eða tvær) og skip sem nota svo íslenskan fánan sem gestafána (ég vonast til að verða leiðréttur ef þetta er bull) Væntumþykja um sjálfstæði og peningar eiga ekki lengur samleið

Green Atlantic


                       ©  Andreas Spörri

Útgerðarmenn dagsins í dag virðast ekkert stolt eiga yfir okkar fallega fána.Enda eru útgerðirnar í dag að mestu í eigu útlendinga???  Einhverntíma las ég klausu í gömlu erlendu blaði um prýði íslenska fánans og snyrtileika skipanna sem báru hann.

Green Atlantic


                       ©  Andreas Spörri

En þetta er nú liðin tíð. Skipin sem eru að stærsta hluta í eigu útlendinga  eru að vísu með  íslenskum nöfnum og eru virkilega snyrtileg . En það eru Færeyjar og eyjar í Caribbean Sea sem njóta aðdáunnar á því.  Íslendingar eru að gleymast sem siglingaþjóð Fjan.... hirði þá sem þessu stjórnuðu hverjir sem þeir svo eru.

Green Atlantic í Eyjum í sumar "bakkgírinn"var bilaður á Hornafirði



                       ©   oliragg

Green Atlantic hér í Sumar



                       ©  oliragg


                       ©  oliragg

03.02.2012 21:28

Green Frost

Þetta skip Green Frost hefur oft verið hér við land. Hann hefur verið til umfjöllunar hér. En hérna er sería af myndum af honum teknar af Ron Dobson

Hér er skipið að yfirgefa höfnina í Blyth



                   © Ron Dobson



                   © Ron Dobson


                   © Ron Dobson


                   © Ron Dobson


                   © Ron Dobson

02.02.2012 20:55

Arnarfell og Mælifell

Mikill velunnari síðunnar Sverrir Hannesson vakti athygli mína á þessum systurskipum sem höfðu staðið sig vel hér á ströndinni í þjónustu Samskip,hér áður, nú þegar strandflutningar eru aftur komnir til umræðu. Fyrra skipið var byggt hjá Brand SY í Oldenburg, Þýskalandi 1982 sem Stenholm fyrir þarlenda aðila. Það mældist: 999.0 ts. 2703.0 dwt. Loa: 89.80. m brd: 14 m. 1991 fær skipið nafnið Alex 1991 Katya 1993 Mælifell 2000 Rarotongan Rover II 2001 Forum Rarotongan  2006 Matua  2009 SDK Italy 2011 Dagger nafn sem það ber í dag undir fána Moldóvíu

Hér sem SDK Italy



                    © Ron Dobson


Hitt skipið var byggt á sama stað og fyrra skipið 1983 sem Sandra fyrir þarlenda aðila Það mældist: 1491.0 ts. 3229.0 dwt. Loa: 90.00. m brd: 14 m. 1985 fær skipið nafnið Band Aid III 1985 Sandra 1987 Sandra M 1988 Arnarfell. 1994 Andra 2004 Cap Anamur 2005 Baltic Betina. Nafn sem það ber í dag undir Maltaflaggi. Hér er búið að setja síðuport á skipið

 Hér sem Baltic Betina




                  © Jukka Koskimies


                  © Jukka Koskimies


                  © Jukka Koskimies
Skipin voru í þjónustu Samskipa hér á ströndinni á árunum 1988 - 2000 Skiftingin sést á nöfnunum

01.02.2012 21:40

Reykjavíkurhöfn 1 febr.1962

Í Reykjavíkurhöfn 1 febr 1962 lágu m.a þessi skip

Hvassafell I



                          Úr mínu safni  © Guðni Þórðar


                   © Sigurgeir B Halldórsson
Skjaldbreið


                   © Sigurgeir B Halldórsson


                    Úr safni Guðlaugs Gíslasonar

Hér hefur Skjaldbreið fengið nafnið Viking Blazer


                     © photoship
Vatnajökull I


                               Úr safni Hjörvars Sævaldsonar © Bjarni Bjarnason



                    © Rick Cox

Og þetta skip Lean S var kyrrsett á Akureyri vegna bólusóttar sem herjaði í Englandi en þaðan var skipið að koma. Lögreglan stóð vörð um skipið og fékk engin af skipshöfninni að fara í land og allir sem um borð fóru voru bólusettir

Lean S



Skipið var byggt hjá Travewerft í Lubeck Þýskalandi sem Lean S fyrir hollenska aðila Það mældist:  499.0 ts Loa: 58.30 m brd:9.10 m Það gekk undir nokkrum nöfnum á ferlinum 1965 Irina 1973 Hogstein  1973 Sirina   1974 Irina 1975 Sirina   1977 Amber   1979 Master Það var svo rifið 1981



                   © photoship

31.01.2012 17:43

Gamlir kunningar

Í dag verður fjallað um tvö skip sem hétu íslenskum nöfnum og þjónuðu Islendingum Annað flaggaði íslenskum fána en hitt var á tímaleigu. Fyrra skipið hét hér Arnarfell og var í eigu Skipadeildar SÍS 1978 til 1988 var að fá nýtt nafn Hét síðast Grystal Wave en heitir nú Sea Blue og faninn er N Kórea

Sea Blue


                  © Will Wejster


                  © Will Wejster

Svo er það þetta skip sem hér hét Laxfoss Skipið var byggt hjá Appledore SB Appledore Bretlandi 1978 sem City of  Hartlepool Það mældist: 1599.0 ts 4352.0 dwt Loa: 104.20. m. brd: 16.80.m Skipið gekk undir mörgum nöfnum á ferlinum m.a.1984 Laxfoss.  1985 City of Manchester 2007 City  2008 Zeeland  2009 Golden Bay Sem var skipsins síðasta nafn en það var rifið  í Pakistan í nóv 2010


                  © Gedolf Drebes


                  © Mahmoud shd

31.01.2012 15:59

Smá leiðrétting

Ég birti um daginn  þessa mynd af af peru úr Olavi Gregersen.



                  © INGI SØRENSEN

En ég misskildi vin minn Finn Björn Guttesen og hélt að hann hefði tekið myndina en svo er ekki Ljósmyndarinn heitir Ingi SØrensen. En þeir félagar eru frá Færeyjum Þetta leiðréttist hér með. Rétt skal vera rétt

30.01.2012 22:48

Vopna/eiturlyfjasmygl

Þetta skip sem heitir Evrest og er undir flaggi Marshall Isl var stoppað í nóv 2010  undan strönd Nigeriu Um borð fundust 13 gámar með 240 ts af skotfærum og handsprengum Frá Iran til "strönd Afríku" sem ákvörðunarstaðar. (destination ) Réttir eigendur Evrest reyndust vera franskir

Evrest



Yfir 60 % af skipum sem tekin eru fyrir fyrir vopna/eyturlyfjasmygl eru í eigu EU eða Nato landa. The International Peace Research Institute "SIPRI" í Stockholm hefur rannsakað smygl innan sjóflutninga og safnað sönnunum og gögnum um slíkt í "Vessel and Martime iceident databese" Flest skip sem tekin voru fyrir umrædd smygl  voru Panamaskráð skip Liberiuskráð næst fylgt af Belize Malta og Honduras. Hér er átt við flaggið.En svona leit listi Svíanna yfir 12 hæstu löndin hvað eigendur varðar, út

Owner based in

% of reported drug and arms trafficking cases

% of world merchant fleet owned in the state

1.Germany

19.5

7.1

2.Greece

10.6

8.2

3.United States

7.8

4.3

4.North Korea

4.8

0.1

5.Panama

4.3

0.1

6.Iran

3

0.5

7.Norway

2.4

4.6

8.Russian

2.4

6.0

9.Belize

1.9

0.01

10.Netherlands

1.9

2

11.Denmark

1.7

2.0

12.Japan

1.7

8.4


Það liggja alveg óhemju peningar í löglegum ?? vopnaflutninmgum um heiminn í dag. Það veit ég því flest dönsku skipin sem ég sigldi á voru sérstaklega smíðuð fyrir slíka flutninga. Við fluttum mikið af vopnum frá USA til Miðjarðarhafslanda og inn í Persaflóa.

Evrest



Skipið var byggt hjá Kvaerner Warnow Werft í Rostock Þýskalandi 1994 sem Kapitan A.Dotsenko Flaggið var Bahamas. Það mældist: 13237.0 ts 17493.0 dwt. Loa: 154.90. m brd: 23.10. m Skipið hefur gengið undir mörgum nöfnum gegn um árin M.a. 1994 SEAL MADAGASCAR - 1997 BLACKFRIARS BRIDGE - 1997 LIBRA CALLAO - 1999 BLACKFRIARS BRIDGE - 2002 NDS PROMOTER - 2007 SAFMARINE CAVALLA Og síðan 2009 EVREST  Upplýsingar um flaggið sem ég hef ber ekki saman við svíana því mínar segja fánan vera Belize frá 2004

Evrest



En það er víst sama hver "þægindafáninn" það er.Ég verð að segja það að mér finnst það íslenskum skipaeigendum það til vansa að skrá skip sínn undir einhverjum "þægindafána". Hvar er nú orðið af  íslenska stoltinu yfir þesum fallega fána okkar. . Það vantar ekki að skip í íslenskri eigu??? er vel til höfð en sjá hinn fallega fána okkar einungis sem "gestafána" það er harla bágborið

Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 535
Gestir í gær: 185
Samtals flettingar: 389735
Samtals gestir: 104781
Tölur uppfærðar: 10.2.2012 00:15:54
clockhere