Færslur: 2011 Mars
31.03.2011 18:22
Spiro F
Hér sem Gerda Brödsgaard sem var fyrsta nafnið
© Photoship
Hér sem "bunkerbáturinn" Spiro F

©Gerolf Drebes

©Gerolf Drebes

©Gerolf Drebes
31.03.2011 18:15
Núdags Brúarfoss

© Tryggvi Sigurðsson

© Tryggvi Sigurðsson

© Tryggvi Sigurðsson

30.03.2011 20:01
Vestmannaeyjahöfn í dag
Þessi tvö skip voru hér í dag. Hvað þessi, Hafsand er að gera veit ég ekki. Sennilega á hann að lesta mjöl þegar styttir upp En varla þarna í höfninni. Bæði skipin hafa fengið ummfjöllun hér á síðunni
Og Besiktas Halland kom með svartolíu
29.03.2011 12:49
Vatnajökull I
Mikill velunnari síðunnar og góður vinur Guðlaugur Gíslason fv stm sendi mér þessa sögulegu mynd af Vatnajökli og skipshöfn hans 1954. Hér má sjá nokkuð mörg andlit sem áttu eftir að setja svip sinn á hina nú svo til útdauða farmannastétt. Ég læt "skrifelsi" Guðlaugs með myndinni halda sér. Ég þakka þeim félögum Guðlaugi og Hjörvari lánið á myndinni
SÖGULEG MYND
Myndin er tekin í Genova á Ítalíu 17. júní 1954.
Frummyndina á Bjarni Bjarnason bryti og er af hluta af áhöfninni á m.s. Vatnajökli TFDB. Tildrögin að því að þessi mynd var tekin, voru þau að m.s. Vatnajökull var á heimleið frá Haifa í Ísrael og kom við í Genova. Þar voru lestaðir bílar ofl. Meðan skipið var í þar bar einn daginn uppá 17. júní og jafnframt var á þessum degi einhverskonar trúarhátíð á Ítalíu svo ekki var unnið við skipið. Ræðismaður Íslands á Ítalíu var þá Hálfdán Bjarnason, sem í tilefni af þjóðhátíðardeginum bauð áhöfninni til veislu á heimili sínu og var myndin þá tekin.
Myndin:
Fremsta röð (sitjandi) f.v:
Haraldur Þórðarson bátsmaður, Ámundi Ólafsson messadrengur, Páll Torp háseti, Hjörvar Sævaldsson messadrengur og Einar Friðfinnsson matsveinn.
2. röð f.v:
Bjarni Bjarnason bryti, Höskuldur Þórðarson 2. vélstjóri, Rögnvaldur Bergsveinsson háseti, Jón Þorvaldsson 1. stýrimaður, Gunnar Helgason smyrjari, Haukur Guðmundsson háseti, Gísli Ólafsson loftskeytamaður, Óli Kr. Jóhannsson háseti, Jóhannes Ingólfsson háseti, Sigurlaugur Sigurðsson 1. vélstjóri, Marteinn Kristjánsson 3. vélstjóri og Júlíus Kemp 2. stýrimaður. Fyrir miðri myndinni er hjónin Friðrik V. Ólafsson (heldur á hatti) skólastjóri Stýrimannaskólans í Reykjavík og kona hans Lára Sigurðardóttir en þau voru farþegar þessa ferð í boði H.F. Jökla.
Á myndina vanta:
Kristján Hermannsson háseta, Sæmund (??) son smyrjara og Valtý Eyjólfsson smyrjara.
Myndina tók Bogi Ólafsson skipstjóri og er hann því ekki á myndinni.
Frá Genova fór skipið til Barcelona og þaðan til lítils bæjar á Spáni sem heitir Palemos (?) og lestaður þar korkur. Þegar skipið var í Barcelona bauð skipstjórinn Bogi Ólafsson allri áhöfninni að undanskildum tveimur vaktmönnum á nautaat sem þann daginn var haldið þar í borginni. Áhrifin sem nautaatið hafði á "Íslendinginn" var á ýmsa vegu og féllu sumir í öngvit. Síðan var haldið heimleiðis með viðkomu í Ceuta og tekin þar olía og vistir. Þaðan var siglt um Njörvarsund og heim til Íslands.
Heimildamaður að framanskráðu er Hjörvar Sævaldsson "messadrengur".
Skráð af Guðlaugi Gíslasyni.
Skipið sjálft
Vatnajökull var Smíðaður fyrir Sölumiðstöð Hraðfrystihúsa í Lidingöverken,Lindingö Svíþjóð1947 Mældist :924 ts Loa:61,50 m brd 9,70 m Skipið selt til Grikklands 1964 og fær nafnið Evancelistria V Það varð fyrir stýrisbilun og rak á land við Sardínu 19-01-1981 Og grotnaði svo niður í höfninni í Gagliari @Rick Cox
Ekki falleg sjón
@yvon @yvon
28.03.2011 12:28
Mariane Danielsen - strandið









23.03.2011 18:00
Mariane Danielsen
Ég stal þessari mynd af síðu míns góða vinar Tryggva Sig. En hún er tekin í Vestmannaeyjahöfn fyrr á árum Ég sé ekki betur en flutningaskipið sé sömu gerðar og Mariane Danielsen sem strandaði við Grindavík í Jan 1989
©Tryggvi Sig
Mariane Danielsen var byggð hjá Smit.E:J SY í Westerbroek Hollandi fyrir danska aðila Það mældist 1140.0 ts 2585.0 dwt. Loa: 79.20, m brd: 13.10. m Skipið strandaði sem fyrr sagði við Grindavík í jan 1989, En náðist aftur út. Ég kann þá sögu ekki. En mig ninnir að Finnbogi Keld hafi komið að því náli, Upp úr því fékk skipið nafnið Sun Trader. 1990, Maylin. 2009, Lupus Nafn sem það ber í dag undir fána Panama. en eigendur virðast vera Kúbumenn ©Capt Ted
©Capt Ted
22.03.2011 22:37
JUMBO CHALLENGER
Ég man ekki hvort ég hef sýnt þennan áður ( en held það nú samt) en það verður að hafa það ég nenni ekki að gá að því; Og dallurinn jafnljótur fyrir því Jumbo Challenger Byggt sem ro ro skip hjá Ysselwerf í Capelle Hollandi 1983 Skipið mældist 5791.0 ts 6100.0 dwt Loa: 109.90. m brd: 19.20.m 1986 er skipinu breytt í " heavy load carrier" og mældist nú 6555.0 ts og 5928.0. dwt
© Hannes van Rijn
© Hannes van Rijn
©J. Viana
©J. Viana
22.03.2011 21:48
Hunteborg
Hér í smíðum 2006

©Frits Olinga
Hér á siglingu

©Frits Olinga

©Frits Olinga
22.03.2011 18:39
Brautryðendur
Samskip er orðinn "brautryðandi" í nýjum skipum hér á landi: Hér er úrdráttur úr nýlegu fréttabréfi Samskip: "bætast tvö ný skip í flota Samskipa. Skipin eru nýsmíði frá Rúmeníu og er flutningsgeta skipanna um 800 gámaeiningar (TEU). Skipin hafa fengið nöfnin "Samskip Innovator" og "Samskip Endeavour" og verða í siglingum á markaðssvæði félagsins í Evrópu, annarsvegar á milli Hollands og Írlands og hinsvegar milli Hollands og Englands. Í stað nýju skipanna verður tveimur leiguskipum skilað. Samskip eru eignaraðili að skipunum og er stefnt að því að skipin verði alfarið í eigu Samskipa innan fárra ára. Nýju skipin eru sérhönnuð fyrir 45´ gáma og henta starfsemi Samskip MCL mjög vel, en Samskip MCL hafa verið með sambærileg skip í rekstri undanfarin sex ár með afar góðri reynslu." Svo mörg voru þau orð
bætast tvö ný skip í flota Samskipa. Skipin eru nýsmíði frá Rúmeníu og er flutningsgeta skipanna um 800 gámaeiningar (TEU).
Samskip Innovator Ég sýndi systurskipið í gær
© Hannes van Rijn
Einnig eru Samskip með þetta skip Tongan á sínum vegum En skipið var um tíma í vetur á vegum Eimskip og fékk þá umfjöllun hér á síðunni
© Hannes van Rijn
© Hannes van Rijn
© Hannes van Rijn
22.03.2011 18:31
Dettifoss II
Gunnar S Steingrímsson yfirhafnarvörður á Sauðárkrók sendi mér þessar skemmtilegu myndir Þær skíra sig að mestu sjálfar Ég þakka Gunnari kærlega fyrir sendinguna
Vestmannaeyingar ættu að kannast við "gæjan" lengst t.h í fremmri röð
Þetta er sennilega málverkið sem Gunnar talar um í ath, hér fyrr á síðunni
Málverk af skipinu
Svo ljósmynd af skipinu úr safni Tryggva Sig
21.03.2011 22:56
Hálfur íslendingur ????

© Hannes van Rijn

© Hannes van Rijn

© Hannes van Rijn
Og þetta hélt ég að væri algerlega bannað í Rotterdam Að það kæmi púst upp úr skorsteini. Allavega ekki þegar maður væri fyrir innan Hook van Holland eins og mér virðist þessi vera. En hann er á útleið svo hann sleppur kannske

21.03.2011 19:17
Orastar

© oliragg

© oliragg

© oliragg

© oliragg
Hér er Haukur
© Jón Snæbjörnsson
© Ingólfur Þorleifsson
20.03.2011 17:24
Syrpa fra Ric Cook
Vatnajökull II
Eldvík
Langá
Dettifoss III
Bakkafos II
Hvalsnes II
Grundarfoss
Svanur I
Bæjarfoss
Esja IV
13.03.2011 19:00
Áður íslenskir en
Þessi laglegu skip flögguðu íslenskum fána. En eru ekki lengur ofansjávar
Ljósafoss Byggður 1961 En sökk á 06°51´N 079°.48´ A 01- 07- 1994 á leið til Alang til niðurrifs
@Jan Harteveld
@Jan Harteveld
Mælifell var byggt 1964 Skipið fórst á leiðinni Bilbao (fór þaðan 11-02-1990) til Sheerness
© Graham Moore.
©yvon Perchoc
- 1
- 2