Færslur: 2011 Október
31.10.2011 23:30
Hamrafell
Hér sem Mostank
Hér sem Hamrafell

Úr safni Óskars Franz

Úr safni Óskars Franz
Úr sagni Samskip
© Sjohistorie.no
28.10.2011 19:03
Nýi Þór

Þann 5. mars 1997 strandaði flutningaskipið Víkartindur við suðurströnd landsins. Skipið strandaði á Háfsfjöru skammt austan Þjórsár í Rangárvallasýslu, um 6 km frá Þykkvabæ. Skipið var í eigu þýskra aðila, Atalanta Schiffartsgeschellschaft frá Hamborg en var í leigu Eimskips og hafði verið það frá árinu 1996. Skipið var flutningaskip og innihélt 250 gáma í lest og á þilfari. Þessir gámar innihéldu um 2700 tonn af ýmis konar vörum sem voru metnir á um 500 - 700 milljónir kr.
10 mars 2004 Fjölveiðiskipið Baldvin Þorsteinsson strandaði á Skarðsfjöru suður af Kirkjubæjarklaustri í gær. Skipið er tryggt hjá Tryggingamiðstöðinni hf. Björgunaraðgerðir standa yfir og mun árangur þeirra koma í ljós á næstu dögum. Ekki er ljóst á þessari stundu hve mikið tjón er um að ræða eða hvort það hafi veruleg áhrif á afkomu félagsins á þessu ári.
Það vita allir að umferð stórra skipa með hætulega farma er alltaf að þyngast í fring um landið. þessvegna eiga allir íslendingar með eitthvað milli eyrnana að fagna komu þessa skips. Ég veit vel að sá föfnuður er líka efablandin vegna fjársveltis þeirra stofnunar sem rekur hann. Ég ætla að birta nokkrar myndir ftrá erlendum félögum mínum sem sýna að þrátt fyrir alla nútíma tækni geta óhöppin skeð.

© Sushkov Oleg

© Sushkov Oleg

© Sushkov Oleg

© Chris Howell

© Sushkov Oleg
26.10.2011 19:45
Hinn nýi Þór






25.10.2011 18:10
Fjallfoss III

© Brian Crocker

© Yvon Perchoc
Skipið sem liggur utan á gamla Fjallfossi á myndinni hér undir var einusinni Færeyist og hét þá Krosstindur og var mikið hér á "Ströndinni"

25.10.2011 17:08
Kyndill II
© Photoship

© Brian Crocker

© Brian Crocker

© Brian Crocker

© Brian Crocker
24.10.2011 22:01
Hámenn

© BANGSBO MUSEUM
Næstur var Mercandia Supplier byggt 1975 Sem hér fékk nafnið Háifoss 1977 Sömu mælingar á öllum skipunum hér á eftir. Hann var seldur úr landi 1981 og fékk nafnið Nogi Skipið strandaði á 41°18´N og 019°29´ Ö 15-05-2010 og var svo rifið í Aliaga upp úr því. Síðasta nafn var Emelie
og flaggið var Tanzania

© BANGSBO MUSEUM
Næstur er Mercandia Transporter byggt 1974 Eimskip kaupir skipið 1977 og fær það nafnið Fjallfoss og var nr III með því nafni hjá félaginu. Skipið selt úr landi 1983 og fær nafnið Sandra K Skipið siglir í dag undir nafninu Tabark og fánin er Sierra Leone

© BANGSBO MUSEUM
Svo er það Mercandia Importer byggt 1974 Eimskip kaupir 1977 og skírir Lagarfoss Nr þrjú með því nafni Skipið selt úr landi 1982 og fær nafnið Rio Tejo. Það varð sprenging og eldsvoði í því út af Máritaníu 28-02-1987 og var það svo rifið upp úr því í Belgíu

© BANGSBO MUSEUM
Eins og fyrr sagði keypti Skipadeild SÍS tvö skip af Per Hendriksen Það fyrra var Mercandia Exporter. Smíðað 1974 SÍS keypti skipið 1979 og skírði Arnarfell.og var nr tvö hjá félaginu með því nafni Það var selt úr landi 1988 ig fékk nafnið Vestvik Skipið siglir undir nafninu Sea Blue í dag og er undir fána N- Kóreu

© BANGSBO MUSEUM
Svo er það síðast Mercandia Shipper byggt 1975 Skipadeildin kaupir skipið 1979 og skírir Helgafell og var það nr tvö með því nafni hjá félaginu. Sambandið seldi skipið 1984 og fékk það nafnið Speranza. Skipið heitir í dag Europe 92 og flaggið Ítalía

© BANGSBO MUSEUM
24.10.2011 17:28
Blámenn eða Blápungar



© BANGSBO MUSEUM
Næsta skip í röðinni var Álafoss Sömu tölur eiga við skipið en skipið hét fyrst Merc America. Skipið sökk á 57°57´N og 006°12´Ö þ 27- 02- 1998 og hét þá Ulsund

© BANGSBO MUSEUM
Svo var það Grundarfoss Sömu tölur eða svipaðar Fyrsta nafn Merc Australia Eimskip seldi skipið 1993 og fékk það þá nafnið Gulf Pride. Það siglir í dag undir nafninu Taisier og flaggið er Íranskt


© BANGSBO MUSEUM
Svo kom Urriðafoss Fyrsta nafn Merc Europa Sömu eða svipaðar tölur Eimskip seldi skipið 1985 og fékk það nafnið Urrida. Skipið siglir í dag undir nafninu Reem og flaggið er Panama

© BANGSBO MUSEUM
Síðasta skipið í upptalningunni er skip sem fyst hét Merc Asia En Eimskip skírði Tungufoss. Skipinu hvolfdi undan Lands End á Englandi 19-09-1981 Mannbjörg.

© BANGSBO MUSEUM

© BANGSBO MUSEUM
24.10.2011 12:04
Skjaldbreið

© Guðlaugur Gíslason
Fremri röð frá vinstri: Indriði Guðjónsson 3. vélstjóri, Ágúst Nathanaelsson 2. vélstjóri, Guðmundur Erlendsson 1. vélstjóri, Svavar Steindórsson skipstjóri, Högni Jónsson 1. stýrimaður, Guðmundur Dagfinnsson 2. stýrimaður, Páll Pálsson bryti.
Aftari röð frá vinstri: Erling Axelsson smyrjari, Guðlaugur Gíslason háseti, Þorgils Bjarnason háseti, Bjarni Jóhannesson kokkur, Ársæll Þorsteinsson kokkur, Gunnar Eyjólfsson messi/háseti, Sigurður Thorarensen bátsmaður, Jónas Guðmundsson háseti, Magnús Guðmundsson háseti, Pétur Pétursson háseti.
Á myndina vantar Tryggva Bjarnason, háseta.
Myndin var tekin haustið 1954 þegar áhöfnin kom saman, og gerði sér glaðan dag, í samkomusal á þriðju hæð í Héðinshúsinu við Mýrargötu í Reykjavík.

Úr safni Guðlaugs Gísla
Skjaldbreið var byggð hjá George Brown & Co SY Greenock Skotlandi 1948 fyrir Skipaútgerð Ríkisins Skipið mældist 370.0 ts 350.0 dwt. Loa: 45.30 m brd: 7.60 m. Skipið var selt Sea Service Sg Co Ltd London 1966 og fær nafnið Viking Blazer. Þeir selja skipið 1969 Cia de Nav Pavan á Famagusta Kýpur og það fær nafnið Marianthi. Sia de Nav Sifnes Panama kaupir skipið 1970 og skíra Alexandros V. 1980 fær skipið nafnið Frosini. Það var svo rifið í Grikklandi (Perama) 1984

© Sigurgeir B Halldórsson

© Sigurgeir B Halldórsson
Hér sem Viking Blazer

© ókunnur
Þetta skip skrifaði sögu sína feitu letri í siglingasögu Íslands þó lítið væri
24.10.2011 09:39
Súðin
Það er Súðin En þetta skip átti drjúgan þátt í að koma þessati þjóð á lappirnar á sínum tíma og sinnti hinum ólíklegustu verkefnum. Allt frá flutningum á sýslumönnum og öðrum stórmennum milli hafna hértlendis til fiskflutninga til Englands og þorskveiða við Grænland

Úr safni Guðlaugs Gíslaonar
Skipið var byggt hjá Neptun AG Rostock Þýskalandi 1895 sem Gotha fyrir sænska aðila (H. Sternhagen) Skipið mældist 756.0 ts 600.0 dwt. Loa: 56.80 m brd: 1927 kaupir Rederiet A/B Svenska Lloyd skipið og skírir Cambria 1930 kaupir Ríkissjóður íslands fyrir Skipaútgerð Ríkisins skipið og skýrir Súðin.

© ókunnur
Það er svo í eigu þeirrar útgerðar til 1949 að Útvegur h/f kaupir skipið og notar það við Grænland sem móðurskip fyrir nokrar trillur og smærri vélbáta. Skipið var þá skráð fiskiskip og fékk einkennisstafina RE 210.
1952 kaupir Kjartan Guðmundsson það og sendir það til Ceylon þar sem skipið var selt til Hong Kong En þar er það "talið" rifið 1952. En sögur gengu um að skipið hefði sigt á fljótunum í Kína mörg ár eftir það

© ókunnur
Súðin er eitt af þessum gömlu "áburðarjálkum" sem gerðu okkur að ríkri þjóð. Um þetta skip og æfintýri þess mætti skrifa heila bók. En þessi minnimgu þessara skipa á að halda í heiðri.
18.10.2011 19:01
Systur


Yngri systirin Silver Copenhagen var hér í dag að lesta frosið Hún var byggð hjá Århus Flydedok 1998 sem Centavr Flaggið var Bahamas. Það mældist: 3817.0 ts 4230 dwt Loa: 97.60 m brd: 15.70 m 1999 fær skipið nafnið Frio London 2004 Silver Copenhagen nafn sem það ber í dag undir NIS fána



16.10.2011 19:47
Bræla

© Hans Esveldt

© Hans Esveldt

© Hans Esveldt

© Hans Esveldt

© Hans Esveldt

© Hans Esveldt
10.10.2011 19:20
Horfnir



Svo er það skip sem hét íslenska nafninu Árfell einnig þýska nafninu Jan í þjónustu Skipadeildar SÍS Hét Line og var undir NIS fána þegar hann var skipið kom til Grenå sl júni þar sem það var rifið



06.10.2011 20:09
Sirrah




05.10.2011 12:12
Árekstur

© Hans Esveldt

© Hans Esveldt
Najaden var byggð hjá Sietas Neuenfelde Þýskalandi 1989 sem fyrir finnska aðila. Það mældist 3826.0 ts 4402.0 dwt. Loa: 104.80.m 2011 er skipið selt til Eistlands skírt Najland og sett undir Maltaflagg
© Arne Luetkenhorst
- 1
- 2