Færslur: 2017 Júní
11.06.2017 11:29
Áttugasti Sjómannadagurinn
Mynd úr gömlu blaði sem sýnir mannfjöldan við Leifstyttuna á fyrsta Sjómannadeginum 1938 Talið var að um tíu þúsund manns hafi sótt hátíðarhöldin þann dag
Á þessum degi munu allir íslenzkir sjómenn, eða fulltrúar þeirra, mætast sameinaðir til að vekja þjóðina til meðvitundar um starfssvið sjómannanna og lífskjör þeirra og gildi í þjóðfélaginu. Sjómannadagurinn hlýtur, hvað snertir íslenzka sjómenn, að teljast merkasti viðburður ársins; tímamót, sem marka ný viðhorf og veita nýjum straumum og fjörgandi áhrifum, ekki einungis i þau félög, sem að deginum standa, heldur og líka í þjóðlífið sjálft, og mun vonandi verða upphafið að því, að áhrifa sjómannanna gæti meira í íslenzku þjóðlífi hér eftir en hingaðtil.Því verður ekki á móti mælt, að afkoma og velmegun þjóðarinnar byggist að mestu leyti á sjómannastéttinni.
Skipin sem tilheyrðu íslenska kaupskipaflotanum 1938
SÚÐIN var elst smíðuð 1895

Þau verðmæti, sem sjómennskan, fiskveiðarnar og siglingarnar, færa þjóðarbúinu, eru hlutfallslega svo mikil, borið saman við annan atvinnurekstur, að án þeirra gætum við tæplega lifað neinu menningarlífi í landinu, og iðnaður og bæjalíf myndi illa þrífast.
SNÆFELL var smíðað 1901

Þegar litið er á þann skerf, sem sjómennirnir með striti sínu og áhættu hafa lagt til landsins heilla, en hins vegar á það, hve lítið hefir verið fyrir ,þá gert, þá er ekki hægt að segja að sjómennirnir hafi fengið þann sess, sem þeim ber, eða hlotnast sú viðurkenning, sem þeir eiga skilið. Úr þessu vilja sjómennirnir fá bætt, þeirvilja ekki vera neinar hornrekur meðal landsmanna.
Næstur í aldri var LAGARFOSS I smíðaður 1904
Mynd úr mínum fórum © ókunnur
Að sumu leyti er sökin sjómannanna sjálfra,þeir hafa ekki verið nógu vakandi fyrir sinni eigin velferð og áhrifum í þjóðfélaginu. Sjómennirnir hafa allt til þessa verið sundraðir og ekki nægilega á verði, þegar um velferð þeirra hefir verið að ræða, eða tækifæri til að vekja eftirtekt á óskum sínum og þörfum" Þetta var úr forustugrein fyrsta Sjómannadagsblaðsins Mér finnst þetta eiga eins vel við nú og þá.og sérstgaklega þetta feitletraða:Mér hefur lengi þótt íslenskir sjómenn áhugalausir um samtök sín:.."Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér" stendur einhverstaðar. Mér fyndist að á þessari öld tækni við að koma hugsunum sínum frá sér mættu íslenskir sjómenn láta meira heyra í sér.um sín mál í fjölmiðlum. Þeir eru kannske hræddir um að verða kallaðir "vælukjóar"
Næst var HEKLA I smíðuð 1907

Mynd úr mínum fórum © ókunnur
Næst í röðinni var KATLA I smíðuð 1911
. Mynd úr mínum fórum © ókunnur
Síðan SELFOSS I smíðaður 1914
Næstur í röðinni að aldri í kaupskipaflotanum 1938 var GULLFOSS I smíðaður 1915
© Handels- og Søfartsmuseets.dk Svo var það EDDA smíðuð 1919
Mynds úr mínum fórum © ókunnur Næst ARCTIC smíðuð 1919
Mynd úr mínum fórum © ókunnur
Næst er það Goðafoss II Smíðaður 1921
© Handels- og Søfartsmuseets.dk
Næsta skip hét ESJA Smíðað 1923


© photoship Yngstur var svo Dettifoss I smíðaður 1930
Ofangrein þrettán skip tilheyrðu hinum íslenska kaupskipaflota á fyrsta Sjómannadeginum 1938 Ég sleppi flóabátum, olíuskipi og dráttarbát. Og af þessum þrettán lentu fimm skip í hremmingum í WW 2 HEKLA (29/1 1941) GOÐAFOSS ( 10/11 1944) DETTIFOSS (21/2 1945) voru skotin niður GULLFOSS (1940) og SNÆFELL(1940) urðu innlyksa í erlendum höfnum og komu aldrei aftur til Íslands Árás var gerð á SÚÐINA (16/6 1943) Og áhöfnin á ARCTIC lenti í mikilli lífsreynslu (1943) En hún var grunuð um njósnir og var öll fangelsuð og reynt að pynta mennina til sagna. Það hafði eiginlega í för með sér dauða skipstjórans.um borð í bresku herskipi sem var að flytja mennina í fangelsi í Bretlandi
Frá einum af fyrstu Sjómannadögunum
Mynd úr mínum fórum © ókunnur
En svo segir í gamla sáttmála 1262 "Skulu sex skip ganga af Noregi til Islands 2 sumur en næstu, en þaðan í frá sem konungi ok hinum beztum bændum landsins þykir hentast landinu".Þá voru flutningar til og frá landinu í höndum útlendinga.Manni er hugsað til ástandsins í dag. sjöhundruð fimmtíu og fimm árum síðar
07.06.2017 18:12
CSL RHINE
Skipið var smíðað hjá Kleven í Ulsteinvik Noregi 1983 sem: TINNES Fáninn var: norskur Það mældist: 6792.00 ts, 10110.00 dwt. Loa: 117.70. m, brd 20.60. m Skipið hefur gengið undir þessum nöfnum:1986 GENERAL BONIFACIO - 1988 TINNES - 2011 CSL RHINE Nafn sem það ber í dag undir Möltu fána
05.06.2017 13:26
DARINA
Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni
Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni
Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni
Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni
Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni
Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni
Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni
Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni
Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni
01.06.2017 07:54
WILSON VARNA
Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni
Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni
Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni
Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni
Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni
Mynd af Marine Traffic.com © sést á henn
- 1