09.07.2011 19:54
Sagan sjálf I
Það sannaðist á þessum litla bát "að magur er margs vísir"Þetta var fyrsta vélknúða farþega og flutningaskip sem smíðað var fyrir íslendinga.Og fyrsta skipið af þessari gerð sem stjórnað var af íslendingum sjálfum. Þetta litla skip varð upphafið að gæfuríkri stétt sjómanna sem kallaðist:"Íslenskir farmenn" sem nú er eiginlega blætt út. Vegna óvitaháttar ráðamanna þessarar þjóðar og er einn af stærstu svörtu blettunun í stjórn þessa lands um árabil.Skipið var byggt hjá Mjellem & Karlsen í Bergen í Noregi 1908 fyrir Gufuskipafélag Faxaflóa í Reykjavík.Það fékk nafnið Ingólfur og mældist 127 ts Litlar sem engar aðrar upplýsingar hef ég um skipið.Einhverjar bilanir virtust hrjá skipið og var það selt úr landi 1918. Það má segja að við séum komin aftur á byrjunarreit með lítin olíubát Ef ferjurnar tvær eru undanskildar
Ingólfur







Þetta var fyrsta skrefið sem nú er að fenna í Við skulum aðeins kíkja á nokkur mililvæg skref. Eimskipafélagið leit dagsins ljós 14 jan 1914 Og 1915 koma fyrstu alvöru farþega og flutningaskipin þegar es Gullfoss og es Goðafoss komu nýbyggð til landsins.
Gullfoss
Í fyrri heimstyrjöldinni var mikill skortur á flutningaskipum til öflunar á lífsnauðsynjunum. Landsjóður keypti þá tvö skip til að koma á móts við það. Þau voru es Borg og es Wilemose.Es Borg var keypi af Kveldúlfi en Willemose utanlands frá
Borg
Willimose
En Eimskipafélagið missti annað skip sitt es Goðafoss sem strandaði 3 nóv 1916. Seinna keypti Landsjóður keypti svo es Sterling af Thorefélaginu. til strandferða. Í lok styrjandarinnar keypu íslendingar nokkur skip sem voru í lengri eða skemmri tíma m.a skonnorturnar Huginn Munin Haukur Svala og Rimor. Eimknúnu skonnortuna Frances Hyde og barkskipið Eos
Rimor
Eimskipafélaðið jók skipakost sinn með kaupum á es Lagarfossi 1917 Smíði á es Goðafossi (II) 1921, Brúarfossi 1927 og kaupum á Willemose 1928 sem þeir skírðu Selfoss.
Lagarfoss
Brúarfoss
Detifoss kemur svo 1930
Dettifoss

frh
Lokað fyrir álit
Flettingar í dag: 4772
Gestir í dag: 143
Flettingar í gær: 0
Gestir í gær: 0
Samtals flettingar: 194865
Samtals gestir: 8287
Tölur uppfærðar: 14.3.2025 18:43:51