12.04.2012 21:42
Listamaður fallin frá
Ásmundur Guðmundsson
b
Þá sækir hann Litlafell II sem keypt var í stað hins. Var hann síðan með Litlafell II þar til að hann verður að hætta sjómennsku vegna veikinda. Yngri menn í f g stétt skilja varla hvernig það hefur verið að fara inn á hverja "krummavík" og hafa bara akkeri og rafmagnsstýri að hjálpa sér.
Listaverk eftir Ásmund Ég tók þessa mynd í fyrrasumar
Og ekki var verið að mylja undir þessa menn hvað önnur tæki í kaupskipum varðaði . Miðunarstöð og radar voru að vísu.Nei það var ekki tekið út með sældinni að "vera á ströndinni" í gamla daga. Hvað þá að sigla má segja eingöngu á hana yfir áratug. Í það þurfti áræðni og sterkar taugar
Listaverk eftir Ásmund Ég tók þessa mynd í fyrrasumar
En til að gera langa sögu stutta ætla ég að birta hér aftur færslu síðan í fyrrasumar
"Alltaf þarf maður eitthvert "tilefni" til að setja
eitthvað hér á síðuna. Maður kemst yfir mynd, maður flettir einhverju
upp o, sv. frv. Og nú má segja að tilefnið sé óvanalegt. En það var
innlit mitt á lfrábæra sýningu á miklum listaverkum eftur óvenjulegan
listamann.
Þetta átti aldrei að verða nein listaverkasíða, En
þessi óvenjulegi listamaður kemur úr hópi svokallaðra farmanna sem
einusinni tilheyrðu sjómannastéttinni. En er því miður að deyja út.
Hverjum sem það svo er að kenna. En að efninu:
Það er
merkileg sýning búin að vera hér í "Safnahúsinu" í Vestmannaeyjum
undanfarið. Einhentur alþýðumaður sannar það að ekki þarf margra ára
veru í listaháskólum til að skapa list sem við þessir sauðsvörtu skiljum
Ég varð satt að segja dolfallin yfir verkunum þegar ég heimsótti
sýninguna um daginn. Ég fékk eftirfarandi "lánað" af heimasíðu
Sjóminjasafnins Víkur í Reykjavík.
"Ásmundur Guðmundsson
fæddist árið 1929 á Ytri-Veðraá, Mosvallahreppi, sonur hjónanna
Guðmundar Þorkels Jónssonar og Ástu Ólafar Þórðardóttur. Ásmundur
giftist Sigríði Bjarney Einarsdóttur kennara árið 1957. Sonur hennar og
fóstursonur Ásmundar er Einar Eysteinn Jónsson, fæddur 1950, læknir í
Vestmannaeyjum.
Ásmundur tók hið minna mótorvélstjórapróf Fiskifélags Íslands 1948,
lauk hinu meira fiskimannaprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1951
og farmannaprófi frá sama skóla 1953. Hann starfaði sem skipstjóri á
millilandaskipum til 1975, fékk hann þá alvarlegt heilablóðfall, aðeins
46 ára að aldri. Við áfallið missti Ásmundur talmálið sem og máttinn í
hægri hluta líkamans.
Hann náði með miklum viljastyrk og
ómetanlegri hjálp iðjuþjálfa á Grensásdeild að þjálfa upp vinstri
höndina, sem hann notar nú til vinnu og athafna, m.a. til þess að skera
út og mála. Ásmundur býr að Árskógum, þjónustuíbúðum eldri borgara í
Breiðholti. Þar hefur hann aðgang að smíðastofu og hefur leiðbeinandinn
Einar Jónasson hvatt Ásmund áfram í útskurðarlist sinni. Bera verk
Ásmundar vott um mikla listgáfu og tilfinningu fyrir lögun og formi.
Myndefnið sækir hann í íslenska náttúru og hefðbundin störf íslenskrar
alþýðu fyrri tíma" Sýningin stendur að minnstakosti fran yfir "goslokahelgi" hér í Eyjum Og ég hvet alla sem ekki hafa séð hana að gera það
Oddur fyrsta eiginlega farskipið sem Ásmundur var á 1948-49

Fyrsta eiginlega "fragtskipið" sem Ásmundur ræðs á er vélskipið Oddur sem hann er á 1948-49. Síðan taka við bátar og togarar. M.a b/v Neptúnus og b/v Mars. 1953 ræðst hann á Dísarfell og hefst þar ferill hans hjá SÍS. Fyrst háseti síðan stm (m.a á Bláfelli hinu sænska)
Dísarfell skipið sem Ásmundur byrjaði á hjá Skipadeild SÍS 1953
Báfell sænska en Ásmundur var þar stm um tíma
og afleysingaskipstjóri á hinum ýmsu skipum SÍS. 1965 verður hann fastráðinn skipstjóri á Litlafelli I og er með það til 1971 að það er selt og annað skip keypt í staðinn Litlafell II, Hann svo með það skip þar tl hann verður að hætta vegna veikinda 1975
Ásmudur var með Jökulfell m.a í afleysningum

Svo varð hann skipstjóri á Litlafelli I og II


Litlafell II


Vonandi helst Ásmundi á sú heilsa sem hann hefur enn um ókomin ár til að skapa enn fleiri falleg alþýðulistaverk sem yljar venjulegu fólki að skoða. Ég þakka fyrir mig Ásmundur"
Svo mörg voru þau orð í þessari færslu. Nú er þessi listamaður fallin frá sárt syrgður af mörgum vinum og vandamönnum.Ég vil votta þeim mína dýpstu sammúð. Og nú segi ég far þú í friði Ásmundur