09.07.2012 16:34

CHIKUZEN MARU

CHIKUZEN MARU heitir hann þessi. Gaman væri að vita hve lengi maður verði að vera um borð til að hitta bróðir sinn eða þannig

CHIKUZEN MARU


                                                           ©  tropic maritime photos, Australia

Skipið var byggt hjá  Sanoyas Hishino Meisho í Mizushima, Japan 1993  sem CHIKUZEN MARU Fáninn var japanskur Það mældist: 75300.0 ts, 150842.0 dwt. Loa: 270.10. m, brd: 43.40. m Skipið hefur aðeins gengið undir þessu eina nafni og fáninn er sá sami

CHIKUZEN MARU

                                                                ©  tropic maritime photos, Australia


                                                                ©  tropic maritime photos, Australia

Íslensk farmannastétt er að deyja út. Hverju það er að kenna í megin atriðum veit ég ekki. En ég er hugsi yfir einu og það eru tengsl ungra manna við kaupskipin. Ég kom fyrst til Reykjavíkur til einhverrar lengri dvalar 1953, þegar ég byrjaði sem hjálparkokkur á Eldborginni sem þá sinnti flóaferðunum. Þá iðaði gamla höfnin af lífi Ysinn og þysinn í kring um hana er ógleymanlegur. 

Þessi mynd er nú tekin töluvert áður en ég er að skrifa um.. Gæti verið á sjómannadag eða 17 júni (1944??) allavega mikið um flögg á skipunum


Við Ægisgarð Hæringur og stærri bátar og togarar til viðgerðar. Við verbúðarbryggurnar dagróðrarbátarnir Loftbryggjuna Vestfjarðar og Vestmannaeyjaflutningabátarnir. Sprengisandur, Miðbakkinn og Austurbakkinn fullir af kaupskipum og svo togarar við Faxagarð. Þetta var mikill ævintýraheimur fyrir ungan mann. Nú kemst enginn unglingur neinstaðar að þessum skipum. Allt lok lok og læs


Lokað fyrir álit
Flettingar í dag: 5910
Gestir í dag: 259
Flettingar í gær: 0
Gestir í gær: 0
Samtals flettingar: 196003
Samtals gestir: 8403
Tölur uppfærðar: 14.3.2025 23:33:52
clockhere