01.12.2012 14:09

Sæfell

Það voru fleiri íslensk skip sem báru "fellanöfn" en skip Samvinnumanna  Fyst er það Sæfell En Vestmannaeyingar keyptu skipið í ágúst 1941 frá Færeyum.Og úr því ég minntist á minn gamla stýrimann og góða vin Guðjón Vigfússon í gær er ekki úr vegi að segja frá því hér að hann var skipstjóri á skipinu lungan úr tímanum sem það bar íslenskan fánas Skipið sigldi með fisk til Englands frá ágúst 1940 til stríðsloka á nokkura áfalla



Skipið sem byggt hjá Helsingör Værft í Helsingör Danmörk 1890 sem Maja fyrir þarlenda aðila. Það mældist 377,0 ts 463,0 dwt. Loa: 47,70 m brd: 7,30 m. 1938 fær það nafnið Christian B, 1939 Sildberin 1942 kaupir Sæfell h/f í Vestmannaeyjum skipið og  fær það nafnið Sæfell. Og 1948 nafnið Ófeigur. Það var rifið 1951


Hér er skipið  sem Maja fyrsta nafn skipsins

                                                                           © Handels- og Søfartsmuseets.dk


                                                                           ©
Handels- og Søfartsmuseets.dk

 
                                                                           ©
Handels- og Søfartsmuseets.dk

Hér er Maja við bryggju í Fríhöfninni í Kaupmannahöfn


                                                                           ©
Handels- og Søfartsmuseets.dk

Frá 1941 
Sæfell heimahöfn Vestmannaeyjar


                                                                             Úr safni Tryggva Sig

Íslenskir sjómenn fremur öðrum landsmönnum  tóku mikinn þátt í WW 2. Þessu mega íslendingar aldrei gleyma. Það má segja að sérhver "kolla" yfir 25-30 tonn hafi verið tekin til að flytja fisk í enskan almenning. Þeir sem kunna sögu stríðsins vita hve mikla þýðingu þetta hafði fyrir þá ensku. Ímyndið ykkur hefðu þeir ekki fengið sitt "fish and chips".Það var þungt lóð sem  íslenskir sjómenn lögðu á vogarskál almennings í Bretlandi í WW2  Þetta skip kom mikið við sögu þessa flutninga.og lestaði oftast í Vestmannaeyjum en var þar þó í stærri kantinum.




                                                                                  Úr safni Tryggva Sig
Lokað fyrir álit
Flettingar í dag: 6071
Gestir í dag: 265
Flettingar í gær: 0
Gestir í gær: 0
Samtals flettingar: 196164
Samtals gestir: 8409
Tölur uppfærðar: 14.3.2025 23:54:53
clockhere