16.04.2013 11:56
Óskabarnið
Í dag eru 98 ár liðinn síðan "Óskabarn þjóðarinnar" GULLFOSS I kom til Reykjavikur Mig minnir að þetta "óskabarns" nafn hafi fyrst tilheyrt .þessu skipi en svo færst yfir á félagið. sjálft. En þetta getur nú verið misminni. Í tilefni komu skipsins voru mikil hátíðarhöld En í frásögn Morgunblaðsins af komu þess segir m.a "Hvar er Danmark? Hvar er »Dannebrog« ? spurðu menn hvern annan og gláptu á Gullfoss. Hvar eru þjóðernismerkin,
sem skip verða að hafa til þess að Þjóðverjar skjóti þau eigi í kaf?c
Jú við nánari athugun sáust merki eftir rauðar og hvítar randir niður
við sjómál á skipinu.
Óskabarnið við Vestmannaeyjar

Dönsku þjóðernistáknin höfðu verið afmáð í Vestmanneyjum, en sjórinn hafði þvegið hið neðsta af aðeins til þess að sýna, að þau hefðu verið þar einu sinni.Þá er að minnast á fánana á Gullfossi. Efst við sigluhúna blöktu einkennisfánar félagsins blár kross (Þórshamar) á hvitum feldi og ýmsar skrautveifur teygðust niður að þilfari. í afturstafni var Dannebrog póstfáni. Málað var yfir dðnska þjóðernistáknin á hliðum skipsins, svo sem fyr er sagt, og skal þar ekki fleiri orðum að vikið.

En í landi blöktu margir danskir fánar og var það skiljanlegt og fyrirgefanlegt af þeim er danskir eru þótt þeir veifi sinnar eigin þjóðar fána. En íslendingum,bornum og barnfæddum hér er það eigi afsakanlegt að vilja heldur sýna lit annara þjóða en sinnar eigi" Svo mörg voru þau orð Þarna lá andi Ungmennafélagana í lofti. Í dag er maður jafnvel bendlaður við ofstækismenn ónefndu landi ef maður lætur eitthvað upp í anda ungmannafélagana.þessara ára

Svona leit forsíða Ísafoldar út 17 apríl 1915

Það var smíðað hjá Kjöbenhavns Flydedok & Skibsværft í Kaupmannahöfn 1915 fyrir hið nýstofnaða Eimskipafélag Íslands. Það mældist 1414,0 ts 1200,0 dwt Loa: 70.10,m brd: 10.70 Farþegar 74.,Skipið var kyrrsett í Kaupmannahöfn þegar Þjóðverjar gerðu innrás í Danmörk 9 apríl 1940,
Áhöfnin kom svo heim um haustið með Esjunni í hinni frægu Petsamoferð, Skipið "fannst"svo í Kiel eftir stríð 1945 í slæmu ástandi.
Hér nýr:

Eimskip hafði fengið tryggingafé skipsins greitt og hafði því eki lengur umráð yfir því En félagið var að hugsa um að fá skipið til baka en það reyndist ekki borga sig enda var þá bygging á nýju skipi komin á koppinn., Tveir íslendingar keyptu skipið og komu því til Gautaborgar og léta gera það upp. Þegar því var lokið seldu þeir Skipafélagi Föroyja í Færeyja skipið. Og fékk skipið þá nafnið Tjaldur. Það var selt til Þýskaland og rifið 1953 og þá undir nafninu Tjaldur gamli
Málverk af skipinu af korti útgefnu af Eimskipfélagi Íslands

Hér eru þeir bræður Gullfoss og Goðafoss saman í Reykjavíkurhöfn

Úr safni Hlöðvers Kristjánssonar
Hér mætast þeir félagar Sá gamli og nýji Gullfoss

Innanlands var bláhvíti fáninn notaður án þess að menn hefðu áhyggjur af löggildingu hans þar til árið 1913 að ofurnákvæmur danskur skipherra lagði hald á einn slíkan sem maður hafði haft uppi í árabát innan hafnar Reglufesta skipherrans olli uppnámi í Reykjavík og þusti fólk til og flaggaði bláhvítum fánum hvar sem þá var hægt að festa Í framhaldinu krafðist nú Alþingi löglegs fána til innanlandsnota og var það samþykkt árið 1915, reyndar með þeirri breytingu að rauðum krossi var bætt inn í þann hvíta
Svona leit forsíða Ísafoldar út 17 apríl 1915

Það var smíðað hjá Kjöbenhavns Flydedok & Skibsværft í Kaupmannahöfn 1915 fyrir hið nýstofnaða Eimskipafélag Íslands. Það mældist 1414,0 ts 1200,0 dwt Loa: 70.10,m brd: 10.70 Farþegar 74.,Skipið var kyrrsett í Kaupmannahöfn þegar Þjóðverjar gerðu innrás í Danmörk 9 apríl 1940,
Áhöfnin kom svo heim um haustið með Esjunni í hinni frægu Petsamoferð, Skipið "fannst"svo í Kiel eftir stríð 1945 í slæmu ástandi.
Hér nýr:
Eimskip hafði fengið tryggingafé skipsins greitt og hafði því eki lengur umráð yfir því En félagið var að hugsa um að fá skipið til baka en það reyndist ekki borga sig enda var þá bygging á nýju skipi komin á koppinn., Tveir íslendingar keyptu skipið og komu því til Gautaborgar og léta gera það upp. Þegar því var lokið seldu þeir Skipafélagi Föroyja í Færeyja skipið. Og fékk skipið þá nafnið Tjaldur. Það var selt til Þýskaland og rifið 1953 og þá undir nafninu Tjaldur gamli
Málverk af skipinu af korti útgefnu af Eimskipfélagi Íslands
Hér eru þeir bræður Gullfoss og Goðafoss saman í Reykjavíkurhöfn

Úr safni Hlöðvers Kristjánssonar
Hér mætast þeir félagar Sá gamli og nýji Gullfoss
Lokað fyrir álit
Flettingar í dag: 5910
Gestir í dag: 259
Flettingar í gær: 0
Gestir í gær: 0
Samtals flettingar: 196003
Samtals gestir: 8403
Tölur uppfærðar: 14.3.2025 23:33:52