03.08.2013 14:55
Gullfoss fyrir 50 árum
Mánudaginn 18 mars 1963 var svartur dagur í sögu Eimskipafélags Íslands já og sennilega siglingasögu íslendinga En þann dag kveiknaði í "Óskabarninu" eins og Gullfoss II var stundum kallaður. Gullfoss II átti sinn sess í hjörtum landsmanna eins og fyrirrennari hans. En kíkjum á Moggann daginn eftir eða 19 mars
Í Mogganum sagði m.a
Í gærmorgun þ 18 mars kl.08.45 eftir ísl. tíma, kom upp eldur í þurrdokk þeirri í skipasmíðastöð Burmeister & Wain í Kaupmannahöfn Í, þar sem "Gullfoss", skip Eimskipafélags íslands,er til viðgerðar. Magnaðist eldurinn skjótt og náði þegar til aftúrhluta skipsins, sem brann mikið. Lausleg athugun þykir benda til, að tugmilljónatjón hafi hlotizt af.Er eldurinn kom upp, vöru um 30 manns um borð í skipinu. Sátu menn og snæddu morgunverð. Eldurinn kom upp mjög skyndilega, og var líkast því, sem um sprengingu hefði verið að ræða. Rannsóknarlögreglan í Kaupmannahöfn tilkynnti í gærkvöldi, að orsök eldsvoðans væri fundin. Hafði olíu verið dælt af geymum ofarlega í skipinu í botngeyma vegna viðgerðarinnar. Hins vegar lak olían af botngeymunum, þareð ventill var óþéttur. í þurrdokkinni eru notaðir kokshitarar, og komst olían, alls um 50 tonn, í þá.
Forsíða Moggans 20 mars
Strax og eldsins varð vart, gaus upp slíkur reykjarmökkur,að öll umferð stöðvaðist í nágrenninu. Varð því að kalla á vettvang lögreglu. í fréttaskeyti, sem Mbl. fékk í gær frá fréttarítara sínum í Kaupmannahöfn, segir, að búast megi við, að öll sumaráætlun "Gullfoss" fari út um þúfur, þareð viðgerð á skipínu kunni að taka marga mánuði. Er skeytið var sent, síðdegis í gær, hafði að mestu tekizt að ráða niðurlögum eldsins, en skipsskrokkurinn var enn svo heitur, að ekki var hægt að fara um borð til að kanna skemmdir 30 manns voru tum borð í skipinu, er eldurinn gaus upp, en allir slupppu ómeiddir. Margir af áhöfninni hafa hins vegar orðið fyirir mjög tilfinnanlegu tjóni, sérstaiklaga þjónustufólk og starfsmenn í vél. Sumir eiga nú aðeins fötin, sem þeir eru í. Fjórtán munu halda heim með flugvél Flugfélags íslandis á morgun ('þriðjudag). "Gullfoss" hefur verið í viðgerð og skoðun, og átti að halda brott 23. apríl. Talið er nú, að viðgerð á skipinu kunni að taka marga mánuði, jafnvel standa í allt sumar.Allt farþegarými var upppantað næstu mánuði, sérstaklega í júní, júlí, ágúst og september, og margir á biðlista. Liggur ekki Ijóst fyrir, á hvern hátt verði hægt að mæta þörfum þessara farþega. Virðist helst, aðtaka verði á leigu skip til að annast flutningana.Það var um kl 10.45, eftir dönskum tíma (08.45 eftir ísl. tíma), að eldsins varð vart. Þegar var gert viðvart með neyðarbjöllum, og sá Kristján Aðalsteinsson, skipstjóri, sjálfur um, að enginn yrði eftir um borð. Fór hann um allt skipið, þótt það væri þá þegar orðið fullt af reyk.Slökkvilið Kaupmannaihafnar var þegar kvatt á vettvang, ásamt sérstökum hjálparsveitum. Varð að beita froðuslökkvitækjum, þar eð hér var um að ræða eld í olíu. Tókst að þekja allan miðhluta skipsins og vélarrúm með froðu.
Baksíða sama blaðs
Átti það mikinn þátt í því, að ekki skyldi hljótast enn meiri skaði af, að svo fljótt var brugðið við. Líkast var, sem sprenging hefði orðið, er eldurinn gaus upp. Fylgdi mikill reykur, og var hann svo magnaður, að fólk nam staðar, þótt statt væri langt frá, og víða stöðvuðu menn bíla sína til að geta fylgst með. Varð af þessu mikil uimferðatruflun og varð lögregla að skerast í leikinn. Eldurinn logaði langt fram eftir degi. Erfiðast var að berjast við eldinn, er. logaði í korkeinangrun kælilestar. Hitnaði skrokkur sikipsins svo mikið, að ekki var hægt að fara um borð, þótt tekist hefði að mestu að ráða niðurlögum eldsins. Ljóst þykir þó, að tjón það, sem orðið hefur á skipinu, nemi tug milljónum króna (ísl.). Mestar skemmdir hafa orðið á afturhluta skipsins, eins og áður segir, og verður að endurnýja mest af þeim hluta skipsins. Þá eru 4. og 5. lest einnig mikið skemmdar.Þess má geta,að skrúfa skipsins hafi skemmzt í hitanum af eldinum, en auk þess hafi vistarverur skemmst og birgðageymsla bryta. Þá er líklegt, að stál í skrokk skipsins hafi skemmst, vegna hita Og svona sögðu dönsku blöðin frá brunanum en þau fullyrtu, að ekki hafi verið farið nógu gætilega með eldinn í ofnunum. Extrabladet segir t d. í gærmorgun (þriðjudag)::"Vélamenn og verkamenn halda því fram, að hægt hefði verið að koma í veg fyrir þenrian bruna. Þeir telja að brunavarzla um borð í skipinu hafi verið ófullnægjandi. Þeir staðhæfa ennfremur, að farið sé gáleysislega með eld í öðrum skipi hjá skipasmíðastöðinnL
Blaðsíða 3 í sama blaði
Framkvæmdasrjóri skipasmíðastöðvarinnar, J. M. Barfoed, hefur lýst því yfir, að honum sé með öllu ókunnugt um, að vélamenn eða verkamenn hafi kvartað undan ónógri brunavörzlu". Politiken segir: "Fulltrúi vélamanna og verkamanna hefur snúið sér til Politiken og skýrt frá því, að komast hefði mátt hjá brunanum. Það er skipasmíðastöðin sjálf,sem annast brunavörslu skipanna.En það er ekki aðeins á Gullfossi, sem óvarlega sé farið með eld og tilgreinir fulltrúinn tvö rússnesk systurskip, sem hleypt var af stokkunum í janúnar sl Kveðst hann hafa séð marga verkamenn reykja um borð í skipunuin, þótt bannað sé".Blaðið segir ennfremur, að Barfoed fullyrði hins vegar, að hann hafi ekki í eftirlitsferðum sínum um skipasmíðastöðina séð nein merki þess, að þar væri reykt, en að öðru leyti vilji hann ekkert um málið segja á þessu stigi. Berlingatíðindi segja m. a.: "Á laugardagskvöldið varð vélstjóri var við að olían, 50 tonn, hafði runnið úr botngeymum skipsins í botn þurrdokkarinnar. Tilkynnti hann þetta stjórn skipasmíðastöðvarinnar, sem gaf skipun um að slökkt væri á kokshiturunum, sem notaðir eru til að verja dokkina frosti. Var það þegar gert, en á mánudagsmorgun voru eldglæður í þeim. Var slökkviliði Kaupmannahafnar og brunaliði skipasmíðastöðvarinnar þá þegar gert viðvart, en áður en það kæmist á vettvang varð sprengingin Logarnir voru svo miklir að málning flagnaði af mastri og óttast var að eldurinn breiddist út til nýrrar ferju, Danmark, sem lá þar rétt hjá. Þó vildi svo vel til, að dráttarbátur var skammt undan, og tókst að draga ferjuna úr allri hættu".
Forsíða Moggans 22 mars
Og Berlingatíðindi halda áfram: "Þegar slökkviliðið kom á vettvang var aftasti hluti skipshliðarinnar rauðglóandi og var í fyrstu ekki annað unnt að gera en sprauta vatni á járnplöturnar til þess að kæla þær. Skömmu síðar hafði kviknað í korkeinangrun kælilestarinnar. Þegar svo var komið, var ákveðið að kalla til fleiri reykvarða brunaliðsmenn og ennfremur sent eftir fleiri slöngum og meiri slökkvifroðu. Komnir voru á vettvang um 20 bílar slökkviliðs, lögreglu og björgunarsveita. Um kl. 2 e.h. kom E. S- Ryger,slökkvistjóri, á vettvang og ákveðið var að sjóða göt á skipshliðina til að komast að eldinum í lestarrúmum. Ennfremur var ákveðið að áhöfn skipsins skyldi ekki sofa um borð um nóttina, jafnvel þótt tækist að slökkva eldinn og var hún flutt á hótel "Kongen af Danmark". í brunanum sprakk súrefnisflaska og þegar súrefnið náði aftasta björgunarbátnum kviknaði í nokkrum rauðum neyðarrakettum, sem þutu í loft upp og komu niður í annarri deild skipasmíðastöðvarinnar, en þar var slökkt á þeim".
Framhald á bls 23
Blaðið segir að lokum, að bruni þessi líkist mest bruna, sem varð 21. febrúar s.l., þegar kviknaði í skipinu m / s Falstria, en þá hafði olía lekið út í þurrdokkina á Refshaleöen.Þess má að lokum bæta við, að fréttaritari Morgunblaðsins í Kaupmannahöfn, símar að fulltrúar verkamanna í Burmeister & Wain skipasmíðastöðinni, hafi lýst því yfir, að manntjón hefði orðið, ef þeir 60 verkamenn, sem unnu daglega við Gullfoss, hefðu ekki verið við morgnnverð, þegar eldurinn kom upp.Hér lýkur tilvitnunum í Moggan og fl blöð Og til að gera svo langa sögu stutta þá komst skipið þann 6 júni 1963 í sína fyrstu ferð eftir brunan Gullfoss II virðist hafa verið töluvert eldfimt skip. Á byggingatímanum kveiknaði þrisvar æi skipinu. Alvarlegasti bruninn varð í desember 1949 en þá fórust fjórir menn og tveir aðrir brendust alvarlega. Nú endalokin muna sennilega fæest eldra fólk En 18 des 1976 kveiknaði í skipinu á Rauðahafinu Það lagðist á hliðina og sökkÞá var skipið komið úr eigu Eimskipafélagsins og hét þá MECCA Hér má sjá eldri færslu um skipið