31.05.2014 14:54

Sjómannadagur

Eitt af þjóðskáldunum kvað: "Föðurland vort hálft er hafið / helgað þúsund feðra dáð./ Þangað lífsbjörg þjóðin sótti, /þar mun verða stríðið háð" Íslendingar hafa verið farmenn frá fyrstu tíð. Land okkar er eyja, skilin frá öðrum löndum af miklum höfum, og vegna þessarar legu landsins hafa sjóferðir og sjómannsstörf verið nauðsynlegur og þýðingarmikill þáttur í lífsbaráttu þjóðarinna. Hið mikla og mislynda haf var lengi vel eini vegurinn til annara landa. Sjómannastéttin er svo mikilvægur þáttur í íslensku þjóðlífi,og hefir lagt svo stóran skerf til framleiðsíu landsmanna, að það geta ekki talist neinar firrur, þó að einn dagur á ári sé helgaður henni





Öll þjóðin stendur í þakklætis skuld við þessa stétt og hún á vissulega ekki telja eftir sér að minnast hennar á þessum hátíðisdegi. Saga bernsku íslensku þjóðarinnar er jafnframt saga mikilla sæfara. Manna sem ekki létu sér allt fyrir brjósti brenna.Manna sem ekki létu hættur eða erfiðleika hindra för. Störfum íslensku sjómannanna má í höfuðatriðum skipta í tvennt.væri allt í lagi  Og þótt margt sé þeim mótlægt nú um stundir Sumir þeirra vinna að því, að flytja að landinu þann varning, sem þjóðin kaupir frá öðrum löndum, og flytja framleiðsluvörur landsmanna á erlenda markaði. Aðrir, og þeir miklu fleiri, eru fiskimenn. Fyr á tlmum, þegar svo að segja öll þjóðin bjó I sveitum, var ekki til hér á landi sérstök fiskimannastétt. Þá stunduðu menn jöfnum höndum landbúnað og fiskveiðar.

Þegar ölduhæð er mikil á úthöfunum getur farið svona

                                                                                                                    © Chris Howell

Menn fóru til sjóróðra úr sveitunum á vissum árstíðum og heim aftur að lokinni vertið.Íslenskir farmenn sigldu í tugi ára undir fána  sinnar eigin þjóðar. Í frumbernsku Íslenska fullveldinu  báru þeir þetta unga, áður óþekkta fullveldismerki og litlu þjóðinni, sem það tilheyrði gott vitni á heimsins höfum og í erlendum höfnum En "nú er Snorrabúð stekkur" hvað þetta varðar Þingmenn núverandi og fyrrverandi ættu hreinlega að skammast sín fyrir áhugaleysi sitt gagnvart sjómönnum þessa lands.


CONVAR aus EXT11056                                                                    ©  Dierk Bauer

Sérstaklega þeim sem á kaupskipum starfa.Stærsti hluti skipa sem eru í siglingum til landsins eru með erlendum áhöfnum Öllum þingheim nákvæmlega sama Einn af ráðherrunum átti þátt í því í vetur ásamt skoðanabræðrum sínum á Alþingi að svifta sjómenn sjálfsagðasta rétti sínum, réttinum til að semja sjálfir um kaup sitt og kjör eins og frjálsir menn. Sjómenn ættu hreinlega að banna alþingismönnum og ráðherrum að koma í ræðustóla þennan eina dag sem þeir virðast muna eftir þeim. Og þá vantar ekki vaðalinn. "Hetjur hafsins" og bla bla Íslenski sjómaðurinn á  skilið viðurkenningu frá þjóð sinni og ráðherrum hennar ekki aðeins í orði, heldur einnig á borði



CONVAR aus EXT10983                                                                    ©  Dierk Bauer

Það er sárara en tárum taki að nú sé þannig komið fyrir þessari þrautseigu og duglegu þjóð að nokkrir smærri ófyrirleitnir spákaupmenn skulu hafa sogið sig fasta á velferð hennar atvinnumöguleika og aðrar undirstöður svo að það mun taka áratugi að bæta skaðan.Það eru dimm óveðurský á lofti sjómannsins.og djúp lægð á leiðinni Og ísköld skil sem fylgja henni að leggjast yfir kaupskipa sjómennina 
                                            
CONVAR aus EXT10966
                                                                                                  ©  Dierk Bauer


Meinsemd núdagsins liggur ekki í of góðum kjörum þeirra sem vinna erfiðustu verkin. Hún liggur ekki í kjörum sjómanna. Hvar hún liggur  vita þeir  sem vilja vita það. Það mætti segja mér að þeir fáu farmenn sem eftir eru séu með lægri laun en starfsbræður þeirra sem sigla undir "réttum" fánum á Norðurlöndunum

                                            
CONVAR aus EXT10965                          
                                                                                                    ©  Dierk Bauer


Flesti gamlingar muna orð Winston Churchill þegar hann sagði:" Never in the field of human conflict was so much owed by so many to so few" Þetta má heimfæra uppá íslenska sjómenn þess tíma.Við erum sem betur fer laus við stríð allavega hér á N- slóðum nú um stundir.Hafið sjálft ströndin og eldurinn eru höfuð óvinir nútíma sjómanns.Þrátt fyrir alla nýmóðins tæki ske slysin með þessi þrjú atriði sem aðalhöfunda

                                            
CONVAR aus EXT10968                                                                                                     ©  Dierk Bauer

Ekki má halda Sjómannadaginn hátíðlegan án þess að minnast Sjómannskonnunnar. Sem ástundum beíð milli vonar og ótta eftir að heyra af afdrifum manna sinna Og gerir stundum enn: "Hún situr hljóð og horfir út /með hjartað þreytt af kvíða./ Það er svo langt - það er svo strangt / að elska, sakna og bíða/  Ekki veit ég hver orti, en þetta orti Lilja Björnsdóttir :  "Að elska og sakna, að vaka og vona,/ og vinna í trausti á kærleikans mátt,/ alltaf mun sjómannsins ástríka kona/ í einrúmi leika hinn sorgbljúga þátt." 

                                            
CONVAR aus EXT10964                                                                                                        
©  Dierk Bauer
Svo er bara að taka lífinu létt þennan dag og láta ekki hundleiðinlega stjórnmálamenn spilla deginum og syngja með
mhttp://fragtskip.123.is/flashvideo/viewvideo/23136/ Íslenskir sjómenn ég óska ykkur til hamingu með daginn Standið þéttir að baki ykkar félagslegu forustumenn og munið  að:"Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér" á alltaf við meðan nokkurt  stéttarfélag starfar
Lokað fyrir álit
Flettingar í dag: 505
Gestir í dag: 78
Flettingar í gær: 6117
Gestir í gær: 267
Samtals flettingar: 196715
Samtals gestir: 8489
Tölur uppfærðar: 15.3.2025 04:00:03
clockhere