03.02.2015 20:25
Selfoss I
Er þegar maður hugsar til stríðsáranna og orustunnar á N-Atlantshafi getur maður ekki annað er hrifist af þeim mönnum sem sigldu þessu litla skipi þunnglestuðu í stórviðrum á fg svæði. og maður hreinlega undrast seigluna í þvi en það varð 42 ára gamallt
WILLEMOES
Úr mínum fórum © ókunnur
Skipið var smíðað í Porsgrunds MV í Porsgrund Noregi 1914 sem Villemoes Fáninn var danskur; Skipið mældist: 627.0 ts 775.0 dwt. Loa:61.60 m brd:9.80 m.Íslenska landstjórnin kaupir skipið 1917 En Eimskipafélag Íslands sá um útgerð skipsins 1928 kaupir félagið svo skipið og og gefur því nafnið Selfoss, Það var selt til niðurrifs og rifið í Ghent Belgíu 1956
WILLEMOES
©Handels- og Søfartsmuseets dk
Selfoss I var virkilega merkilegt skip. Þeir sem ég þekkti sem kannske ekki voru svo margir og höfðu verið á honum hældu honum. Þetta skip komst allra sinna ferða með fólk og farm sama á hverju gekk. Öldur N Atlandshafsins, heimstyrjaldir, (hann tók þátt í 2) ekkert raskaði ró hans. Hann sullaðist þetta bara um á sínum 7-8 mílum.
SELFOSS
Mynd úr gömlum ritum um E.Í © óþekktu
Churchill kenndi honum jafnvel um hve orustan um Atlandshafið drægist mikið á langinn Hann er sennilega eina íslenska kaupskipið sem hefur raskað ró ráðamanna annara landa.Hann bar ýmis gælunöfn t.d. "Selló" "Selurinn " og jafnvel "blessaður svanurinn"
SELFOSS
Mynd úr mínum fórum © Ókunnur
Sigling SELFOSS í "skipalestinni" SC-122 í mars 1943 var lengi í minnum höfð Þátttaka hans í þessari lest átti sér töluverðan aðdraganda Á þessum tímum þegar rými kaupskipa var dýrmætt var venja að hlaða skipin vel en eftirlit með hleðslumerkjum lítið sem ekkert. SELFOSS var hlaðinn timbri.Og var hátt staflað á dekkið. "Selurinn" var því mjög þungur á sér þegar hann lagði af stað frá Halifax heimleiðis í annari skipalest hálfum mánuði áður Ekki hafði lestin farið langt þegar brast á vitlaust veður.Og allt lagðist á eitt. Kolin sem skipið hafði fengið voru léleg og reyndust nú algert rusl sem illa logaði í
SELFOSS
Mynd úr mínum fórum © Ókunnur
Og ekki hraðaði það ferð skipsins Önnur skip týndust í burtu og var Selurinn orðinn einn. Ísing hafði hlaðist á dekklestina svo skipið lagðist á stb síðuna.Strax og veður fór að ganga niður fóru allir skipverjar út að berja ís af skipinu.Augljóst var að um áframhaldandi ferðalag var ekki um að ræða Svo skipinu var snúið við til Halifax. Næstu daga unnu skipverjar við að berja ís af skipinu.Timbrið á dekkinu hafði blotnað og þyngst það mikið að ekki var unnt að koma skipinu á réttan kjöl Helmingurinn af dekklestinni var því losaður Að því loknu var þungi farmsins sá sami og í upphafi.Þetta tafði SELFOSS um hálfan mánuð en nú var ekkert að vanbúnaði fyrir skipið að taka þátt í næstu lest sem var SC-122. Hann seig því af stað á ný með sinni þekktu varkárni.Á ýmsu gekk í siglingu þessarar lestar sem of langt er að rekja hér. SELFOSS hafði seiglast svona nokkurn veginn með skipalestinni til að byrja með.
Hérna sést sigling SC-122 og svo sólósigling SELFOSS til Íslands í mars 1943
Kortið er fengið úr bókinni "Í skotlínu" með leyfi
Oft var hrópað húrra fyrir skipinu á morgnana ,því á kvöldin var hann langsíðastur í lestinni.En þegar birti á morgnana var hann orðin alfremstur Hann sullaðist alltaf sínar 7-8 sjml en lestin hægðist á sér á nóttina. 17 mars var komið vitlaust veður aftur og fór dekklestin þá að aflagast aftur Þá var skipinu beitt "uppí" og andæfði það svo upp í veðrið. Þegar veðrinu slotaði var skipalestin horfin sjónum þeirra SELFOSS, manna.Tveim dögum seinna hittu þeir breska korvettu sem ráðlagði þeim þeim að hætta að leita að lestinni og sigla burt af þessu svæði. Og var nú stefnan tekin á Reykjanes einskipa. Sex dögum seinna komst svo skipið klakklaust til Reykjavík Eftir 1000 sml siglingu í gegn um eitt mesta kafbátasvæði á N-Atlantshafi í WW2
SELFOSS
Mynd úr gömlum ritum um E.Í © óþekktu
Við samningu á þessari færslu er stuðs við bók Huldu Sigurborgu Sigtryggsdóttir "Í skotlínu" (1992) Hef ég stuðs mikið við þá bók í samningu á færslum síðustu daga Bók sem allir íslenskir sjómenn ættu að ná sér í og lesa
SELFOSS
Úr mínum fórum © Ókunnur
Og einhvern tíma heyrði ég að Gullfoss hafi mætt "blessuðum svaninum" tvisvar á útleið Þ.e.a.s Gullfoss þá á leið til Kaupmannahöfn mætti honum í Skagerak. Sigldi hann svo uppi á heimleið og mætti honum aftur á N-Atlantshafinu.
Ásgeir Jónasson (1884-1946) var fyrsti skipstjórinn á skipinu hjá Eimskipafélagi Íslands og var með það 1928-1941
Næsti skipstjóri á Selfossi var Sigmundur Sigmundsson (1890-1979) sem var með skipið 1941-1948
Þessir menn sigldu skipinu í WW 2 ásamt sínum dugmiklu áhöfnum. Þessum mönnum og öllum þeim sem tóku þátt í þess tíma siglingum farmönnum sem og fiskimönnum megum við íslendingum aldrei gleyma. Og minnast þeirra ávallt með mikilli virðingu
SELFOSS á Dalvík
© Þráinn Hjartarson.