02.09.2017 12:25

Herðubreið

Meir af "afmælisskipum" Það var bjart yfir íslenskum sjómönnum á árunum strax eftir WW2. hvort sem um var að ræða far eða fiskimenn Eftir erfið og mannskæð ár á Atlantshafinu í stríðinu sjálfu. Ný og glæsileg far og fiskiskip "streymdu" til landsins. Þar við sögu kom t.d Skipaútgerð Ríkissins Hér skal fjallað um fyrstu nýsmíðina sem útgerðin fékk

HERÐUBREIÐ í smíðum


                                                                                                              Mynd frá Ríkisskip © óþekktur

Svona leit forsíða Tímans 30 des 1947




Og í greininni segir m.a "Skip þetta er smíðað hjá skipasmíðastöð George Brown í Greenock í Skotlandi. Kostar það um 1,7 milljónir króna. Það er 361 stærðarsmálestir og nettó 215, og er 140 fet á lengd, 24,9 fet á breidd og 11 fet á dýpt. Lestirnar eru unv 15 þúsund teningsfet, þar af rúm 4 þúsund teningsfet frystirúm. Skipið hefir hvilur handa 12 farþegum í 3 herbergjum, auk þess setsal handa farþegum. Tvær lestirj eru í skipinu, önnur frystilest, og tvær bómur og tvær vindur við hverja lest, þar af ein bóma, sem getur lyft 10 smálesta þunga. Auk þess er hraðvirk akkerisvinda og ein vinda aftur á til hjálpar við að binda skipið við bryggjur.

HERÐUBREIÐ á útleið frá Eyjum



                                                                                                                                                 Úr safni Tryggva Sig                   

Allar mannaíbúðir og sömuleiðis farþegaherbergi eru aftur i skipinu. Þiljur í setsal eru úr rauðaviö. Skipið hefir 650 ha. aðalvél, auk þess tvær hjálparvélar, tvær frystivélar og yfirleitt öll nýjustu tæki, sem tilheyra nýtísku vélaútbúnaði. Ennfremur eru í skipinu sjálfritandi dýptarmælir, sjálfritandi hraöamælir og talstöð. Tvöfaldur botn er undir öilu skipínu, og á milli botnanna eru hylki, sem eru ætluð til að flytja í oliu. Ennfremur eru gildir listar utan á skipshliðunum til þess að hlífa skipinu, þó að það liggi við bryggju í öldugangi. Ganghraði skipsins á reynsluferð var 11.2 mílur á kl.stund, og var þó hálfhlaðið.

HERÐUBREIÐ við Vestmannaeyjar



                                                                                                                                                     Úr safni Tryggva Sig

Forstjóri Skipaútgerðar Ríkisins hefir ráðið gerð skipsins og fyrirkomulagi öllu og notið þar aðstoðar skipakoðunarstjóra, Ólafs Sveinssonar, og Páls Pálssonar skipasmiðs í Landssmiðjunni.

Guðmundur Guðjónsson "stýrði" skipinu til landsins í fyrsta skifti




Svo tók Grímur Þorkelsson við skipstjórninni



Og Ólafur Sigurðsson var yfirvélstjóri





Eftirlit með smíði skipanna í Skotlandi hafa þeir haft Guðmundur Guðjónsson skipstjóri og Kristján Sigurjónsson vélstjóri. Skipinu sigldu hingað Guðmundur Guðjónsson og Ólafur Sigurðsson 1. vélstjóri. Nú tekur við skipstjórn á Herðubreið Grímur Þorkelsson, en Guðmundur Guðjónsson tekur við skipstjóm á Skjaldbreið" Tilvitnun lýkur



Skipið var sem fyrr sagði smíðað hjá George Brown & Co í  Greenock Skotlandi 1947  sem Herðubreið  Fáninn var íslenskur  Það mældist: 366.0 ts, 350.0 dwt. Loa: 45.30. m, brd: 7.60. m Skipið  gekk aðeins  undir tveim nöfnum en 1971 fékk það nafnið ELEONORE I  Nafn sem það bar síðast undir Panama fána En skipið var rifið í Alsír 1978

Lokað fyrir álit
Flettingar í dag: 5165
Gestir í dag: 162
Flettingar í gær: 0
Gestir í gær: 0
Samtals flettingar: 195256
Samtals gestir: 8306
Tölur uppfærðar: 14.3.2025 19:26:18
clockhere