Færslur: 2011 Október

04.10.2011 16:46

Ný gerð skipa

Hér er athygliverðar myndir af nýrri gerð skipa, En stefnið er af svokallaðri Groot Cross-Bow. Þetta sérstaka stefni á að koma í veg fyrir að skipið "höggvi" í öldunum sem það mætir. Og þessvegna ætti skipið að ganga betur í miklum mótvindi og sjó. Skipið var byggt hjá  Bodewes Shipyards í Hoogezand Hollandi Það mældist: 5 274.0 ts 8400.0 dwt. Loa: 119.50 m. brd: 15.80 m Og flagið er hollenskt Skipið sigir á rútu Evrópa - USA -  S- og V-Afríka


© Frits Olinga-Defzijl




© Frits Olinga-Defzijl



© Frits Olinga-Defzijl


Lokað fyrir álit

01.10.2011 13:36

Gamli Brúsi

Hér eru nokkrar myndir af einum sem mikið var notaður til að koma þessari þjóð á lappirnar. Brúarfoss var fyrsta sérsmíðað frystiskip íslendinga. Það má segja að með tilkomu þess hafi verið straumhvörf í útflutningi landsins. Úr söltuðum afurðum yfir í miklu verðmætari þ.e.a.s frystar. Þjóðin stendur í mikilli þakkarskuld við þetta skip sem og mennina sem sigldu á því.Brúarfoss  slapp óskemmdur í gegn um hildarleikinn í WW2. Áhöfnin bjargaði 78 sjómennum úr tveim skipsköðum. Áhugaleysi þessarar þjóðar fyrir farmennsku er með endemum. Eyþjóð norður í höfum skuli ekki vera með eitt einasta haffært kaupskip undir sínum fána það er fv og nv ráðamönnum þjóðarinnar hvers flokks þeir hafa verið til háborinnar skammar




© valur linberg


© humberman


© ókunnur
Lokað fyrir álit
Flettingar í dag: 4772
Gestir í dag: 143
Flettingar í gær: 0
Gestir í gær: 0
Samtals flettingar: 194865
Samtals gestir: 8287
Tölur uppfærðar: 14.3.2025 18:43:51
clockhere