Færslur: 2012 Apríl

30.04.2012 12:43

Blue Capella

Þetta snotra skip var byggt á Íslandi Eða réttara sagt hjá Stálvík Garðabæ 1978 sem togarinn Arinbjörn Það er í dag skráð sem "Standby-Safety Vessel"

                                                                                                   © Arne Jürgens

Skipið var byggt hjá Stálvík Garðabæ Íslandi 1978  sem Arinbjörn  Fáninn var að sjálfsögðu íslenskur Það mældist: 378.0 ts, 662.0 dwt.  Loa: 51.20. m, brd: 9.00. m Skipið hefur gengið undir þessum nöfnum: 1989 HJALTEYRIN -  1997 ONWARD HIGHLANDER  2001 ULLORIAQ 2007 BLUE CAPELLA  Nafn sem það ber í dag undir dönskum fána




                                                                                                   © Arne Jürgens


                                                                                                   © Arne Jürgens


                                                                                                   © Frits Olinga-Defzijl


                                                                                                   © Frits Olinga-Defzijl
Lokað fyrir álit

29.04.2012 18:25

Liberty skip II

20 árum eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar voru nokkur Liberty skip enn í notkun Mörg Liberty skip voru i  sett í varaflota US Navy og nokkur notuð í Kóreustríðinu 





Einnig voru mörg Liberty skip  seld  skipafélögum vítt og breitt um heiminn , þar sem þeir mynduðu burðarás eftirstríðsára kaupskipaflotans Og  sem mynduðu tekjur til að byggja ný skip milli 1950 og 1960.

Annar af þeim síðustu á siglingu



Hins vegar tók aldurinn sinn toll  upp úr 1960 Skipin urðu of dýr í rekstri og voru seld til niðurrifs Fyrsta Liberty  skipið Patrick Henry, var send í pottana skipsins  í október 1958.

Og hinn



Af þessum 2751 skipi af þessari gerð var 200 sökkt í WW2 Tvö af þessum skipum eru varðveitt SS Jeremia O´Brien og SS John W Brown. Í guðanna bænum aftur takið þetta ekki sem einhverja sagnfræði heldur afleiðingar af grúski gamals karls sem getur misstúlkað hlutina. En vonandi er þetta sagan svona í stærstum
dráttum

Syrpa af Liberty skipamyndum


 











Lokað fyrir álit

29.04.2012 15:43

Liberty skip I

Ég man að margir skipsfélagar danskir rugluðu saman skipategundunum Liberty og Victory. En á þessum er töluverður munur. Ekki það að ég hef líka ruglast á þeim. Engin má taka mig sem einhvern sérfræðing í skipum eða gerð þeirra. Langt frá því.Hvað myndirnar varðar eru þær fengnar að "láni" víðsvegar af netinu. Yfirleitt hafði ég "seifað" þær bara svona fyrir mig án þess að hirða um © Og biðs ég auðmjúklega forláts á því 

Líberty skip í byggingu



Sitjandi hér og nú fyrir framan tölvuna og færa þetta inn án þess að grafa djúpt í þessa sögu get ég ímyndað mér að eitt frægasta Liberty skip hafi verið "Flying Enterprise". Enginn má taka þetta sem sagnfræði heldur afleiðingar af grúski gamals karls sem getur gert mistök í þýðingum. En að sögunni í mjög stuttu máli eftir minni bestu vitund:

Liberty skip



Þegar stríðið braust út í Evrópu í september 1939, var kaupskipafloti Bandamanna  óundirbúinn til að takast á við hið ofsafengna stríð á Atlantshafinu. Síðan varð meginland Evrópu undir þýsku eftirliti og Bretlandi undir hrikalegm loftárásum



Eitt af skipunu m hleypur af stokkunum







Teikningar af Liberty skipi




Og Þjóðverjar settu hafnbann á England Franklin Roosevelt forseti ákvað þá  að auka hraða framleiðslu kaupskipa.
 Niðurstaðan var  neyðaráætlun,EC2 þar sem raðsmíði staðlaðra skipum var tekin í gagnið árið 1941. Libertyskipin áttu að mæta þörfinni fyrir neyðaraðstoð við Breta .

Liberty skip



Þau voru byggt á breski hönnun sem kanarnir breittu lítillega og raðsmíðuð en þannig að einstakir hlutar voru smíðaðir víðsvegar um Bandaríkin. Hlutunum safnað saman á einn stað og rafsoðnir þar saman. Bandaríkjamenn nefndu þessa nýju tegund af skipum EC2 (E í neyðartilvikum, C fyrir farm og 2 fyrir meðalstór skip milli 400 og 450 fet á sjólínu.) Framleiðsluhraðinn  jókst meira  eftir því sem  þýskum kafbátum tókst að sökkva skipum sem reyndu að brjóta
hafnbannl Hitler á Bretland.

Vélarnar voru olíukynntar gufuvélar




Þörf Bandamanna á skipum jókst þegar á leið til að koma vörum til Englands og síðar Sovétríkin. Fyrst þessara nýju skipa var sjósett  27. september 1941. Það hét SS Patrick Henry eftir bandarískri stríðshetju sem hafði m.a. mælt þessi frægu orð, "Gefðu mér frelsi, eða gefa mér dauða."




Þar af leiðandi, fengu öll  EC2 skipin nafnið Libertyskip. Nöfn næstum 3.000 skip reyndist erfiðara en fólk hélt. Ólíkt seinni skipum Victory það var engin áætlun um hvernig Liberyskipin yrði nefnt.




Skipin  voru nefnd eftir stríðshetjum, byltingarhetjum og stjórnmmálamönnum
Þeir voru nefndir eftir frægum stjórnmálamönnum (Abraham Lincoln til Simon Bolivar), vísindamönnum (George Washington Carver að Alexander Graham Bell), listamönnum (Gilbert Stuart að Gutzon Borglum og myndhöggvaranum Mt. Rushmore) og landkönnuðum (Daniel Boone að Robert E. Peary).



Liberty skip voru  yfirleitt  130 m að lengd og  17 m á breidd.Þeir voru með 2.500 hestafla gufuvél og náðu 11 hnúta Liberty skip höfðu fimm farmrými, þrjú fyrir framan yfirbyggingu og tvö að aftan (í aftari hluta skipsins).
 Hvert þeirra þ.e.a.s skipanna var um 10.000 dwt. Íbúðir fyrir  áhöfn voru staðsett miðskips.Röraleiðslur hvers skips fyrir sig var ca 4 kílómetrar Helsti óvinur Libertiskipa fyrir utan kafbáta og flugvélar var frostið og kuldinn.

Brotið Liberty skip




Tækni þess tíma í rafsuðu var ekki sú sama og í dag og vildu suður gefa sig í kulda og stórsjóum  Um nítján Libertiskip brotnuðu um miðjuna. Frægt er hvernig Carlsen skipstjóri lýsti ástandinu sem komið var á Flying Enterprise: " Resten af dagen arbejdede vi alle på »at sy hende sammen med stålwirer og vantspænder  fra for til agter" Meðaltals tími í byggingu skipanna var 42 dagar

Líkan af dæmigerðu Liberty skipi



Áhöfn þeirra var yfirleitt milli 30 og 40 menn. Auk þess upp í 40 vélbyssu skyttur Alls voru 2751 Liberty skip byggt á árunum 1941 - 1945
frh

Lokað fyrir álit

28.04.2012 15:54

Risi í togi

Stýri þessa risa MSC Alessia bilaði í gær í German Bight og það þurfti tvo dráttarbáta. þá Bugsier 5 og  Bugsier 10  til að draga hann inn til Hamborgar  þar sem hann fór í Dock nr 11 hjá Blohm & Voss Yard

MSC Alessia

                                                                                                        © Henk Guddee

Skipið var byggt hjá Daewoo SB & ME Co í Okpo  Kóreu 2001 sem MSC Alessia Fáninn var Hong Kong Það mældist: 75590.0 ts, 85891.0 dwt.  Loa: 304.00. m, brd: 40.00. m Skipið hefur aðeins  gengið undir þessu eina  nafni og veifar sama fána




                                                                                                        © Henk Guddee



                                                                                                        © Henk Guddee

Bugsier 5


                                                                                                        © Arne Luetkenhorst

Skipið var byggt hjá Asl Marine Holdings Singapore sem Bugsier 5 Fáninn var þýskur Það mældist: 456.0 ts, 145.0 dwt.  Loa: 28.30. m, brd: 12.00. m Skipið hefur aðeins gengið undir þessu eina nafni og fáninn er sá sami

Bugsier 5


                                                                                                        © Arne Luetkenhorst

Bugsier 10


                                                                                                        © Arne Luetkenhorst

Skipið var byggt hjá Gemsan í Tuzla Tyrklandi 2006 sem Bugsier 10  Fáninn var þýskur Það mældist: 485.0 ts, 187.0 dwt.  Loa: 32.00. m, brd: 12.00. m Skipið hefur aðeins gengið undir þessu eina  nafni og það veifar sama fána




                                                                                                        © Arne Luetkenhorst

Lokað fyrir álit

27.04.2012 22:40

Jötunn í togi

Þessi jötunn Gerd Maersk var í gær í togi út frá strönd Portúgal. Vél skipsins hafði bilað á fimmtudag. Um 45 sml NV af Porto. Dráttarbáturinn Castelo de Obidos var sendur á vettfang og togaði skipið lengra út frá ströndinni.Þetta sögðu vinir mínir hjá Maritime Bulletin í gær. En þegar ég kíkti á AIS stöðu gámaskipsins var annar dráttarbátur kominn í staðinn eða Rotterdam. Voru bæði skipin með stefnu í norðurátt og með c.a 1.5 sml hraða. Eftir þessu hefur Rotterdam tekið við drættinum.

Jötuninn Gerd Maersk

                                                                                           ©  Hannes van Rijn
Fyrra dráttarskipið Castelo de Obidos


                                                                                                       ©  Phil English

Seinna dráttarskipið Rotterdam


                                                                                           ©  Marcel & Ruud Coster
Gerd Maersk


                                                                                           ©  Hannes van Rijn

Gerd Maersk var byggt hjá  Odense Staalskibs í Lindö Danmörk  2006 Fáninn var danskur Það mældist: 97933.0 ts, 115700.0 dwt.  Loa: 367.00. m, brd: 42.80. m Skipið hefur aðeins gengið  undir þessum eina nafni,undir sama fána fána


                                                                                                 ©  Hannes van Rijn


Castelo de Obidos

                                                                                            ©  Angel Godar

Skipið var byggt hjá Guangdong Hope Yue í Dongguan Kína sem Total Commitment  Fáninn var Singapore ( í einn mánuð) Það mældist: 1080.0 ts, 800.0 dwt.  Loa: 50.00. m, brd: 13.90. m Skipið fékk fljótlega nafnið Castelo de Obidos Nafn sem það ber í dag undir portúgölskum  fána


                                                                                        ©  Angel Godar

Rotterdam

                                                                                             ©  Marcel & Ruud Coster

Skipið var byggt hjá De Merwede S&M í Hardinxveld Hollandi 1975 sem SMIT ROTTERDAM  Fáninn hollenskur Það mældist: 2273.0 ts, 2687.0 dwt.  Loa: 74.80. m, brd: 15.80. m Skipið hefur gengið undir þessum nöfnum: 1998 SMITWIJS ROTTERDAM. 2007 ROTTERDAM Nafn sem það ber í dag undir sama fána


                                                                                         ©  Marcel & Ruud Coster







Lokað fyrir álit

27.04.2012 18:45

Skemmtilegur félagi fallinn frá

Þetta á að vera síða um kaupskip og þá ekki síður mennina sem sigldu á þeim.Nú var einn þeirra manna sem sigldu á slíkum skipum að falla frá. Ásgeir Þór Davíðsson oftast kenndur við veitingastað sem hann rak Goldfinger.

Ásgeir Þór Davíðsson




Geiri eins og hann var kallaður í daglegu tali var einn sá alskemmtilegasti maður sem ég var með til sjós. Leiðir okkar lágu saman á m/s Stuðlafossi fyrir ca 35 árum síðan. Hann leysti þá þar af sem matsveinn. Og sama sagan þar, einn af þeim bestu matsveinum sem ég hef siglt með. Við héldu kunningsskapnum við og höfðum samband endrum og eins. Ásgeir Þór Davíðsson var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag.

Það má segja að þeir urðu eiginlega samferða burt Ásgeir Þór og gamla varðskipið Þór. Eiginlega alnafnar og sennilega gamlir félagar ef svo mætti að orði komast. Brottför skipsins fagnað af mörgum, en mannsins syrgð af öllum af þeim sem þekktu til þeirra beggja

Þór




Svona segir DV frá athöfninni

"Yfir fjögur hundruð manns voru viðstaddir þegar Ásgeir Þór var jarðsunginn af séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Á meðal þeirra sem heiðruðu minningu Ásgeirs voru Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, Gunnar Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogs, Gunnar Þorsteinsson, oftast kenndur við Krossinn, Garðar B. Gunnlaugsson knattspyrnukappi, bræðurnir Illugi og Hrafn Jökulssynir, 


Skipið okkar Geira Stuðlafoss




Athöfnin var látlaus og falleg þar sem kór söng meðal annars sálmana Drottinn er minn hirðir og Í bljúgri bæn. Þá flutti Hjördís Hjaltested lagið Stand by Your Man sem söngkonan Tammy Wynette flutti um árið. Hjördís flutti einnig lagið My Heart Will go On sem kanadíska söngkonan Céline Dion gerði ódauðlegt í kvikmyndinni Titanic." Og mig langar að taka orð Braga Kristjónssonar mér í munn er hann skrifar í minningargrein í Morgunblaðinu um Geira í dag:"tek hatt minn ofan í virðingu við hinn látna veitingamann, sem átti sannarlega margar góðar hliðar í því görótta lífi, sem hann lifði í rökkurheimum lífsins"
Lokað fyrir álit

26.04.2012 13:05

Phoenix J og Celina

Gámaskipið Phoenix J, sem strandaði fyrir utan Raumo þ 18 april náðist á flot á sunnudag. Það voru dráttarbátarnir Apollon og Neptun sem náðu skipinu út og það var svo dregið til Raumo. Skipið er töluvert skemmt. Þó lítið um rifur á botni en þess meira af dældum þar. Skrúfa og stýri sluppu

Dráttarbáturinn Neptun


                                                                                            © Pekka Laakso

Skipið var byggt hjá Hollming í Rauma sem HEIMO SAARINEN Fáninn var Finnskur Það mældist: 324.0 ts, 86.dwt Loa: 32.00. m, brd: 10.00. m Skipið fékk nafnið Neptun 1989 Nafn sem það ber í dag undir finnskum  fána



Dráttarbáturinn Apollon


                                                                                            © folke östermen

Skipið var byggt hjá  Hollming í Raumo sem AULIS Fáninn var finnskur Það mældist: 314.0 ts, 75.0 dwt.  Loa: 30.00. m, brd: 10.00. m Skipið fékk nafnið Apollon  2011 Nafn sem það ber í dag undir finnskum fána



"Haveristen" á strandstað

                                                                                           © Maritime Bulletin




Smedegaarden A/S i Esbjerg hefur keypt þýska gámaskipið  Celina til niðurrifs. Skipið var dregið til Esbjerg af dráttarbátnum  Bamse Tug Celina strandaði í byrjun  mars 2012 i nálægt Vagsøy i Nordfjord, Noregi.

Dráttarbáturinn Bamse




Bamse var byggður hjá Skaalurens í Rosendal, Noregi 1985 sem Bamse  Fáninn var norskur. Það mældist: 370.0 ts, 200.0 dwt.  Loa:35.00. m, brd: 10.00. m Skipið fékk nafnið Bamse Tug 2004 Nafn sem það ber í dag nú undir dönskum fána

"Haveristen" á strandstað

                                                                                    © Maritime Bulletin

Skipið stóð fast á grunni en náðist út og var dreginn inn til Raudeberg. Þar kom í ljós það miklar skemmdir að ekki borgaði sig að gera við það. Það var því selt fyrrgreind félagi til niðurrifa
Lokað fyrir álit

25.04.2012 18:24

Molo Sun

Molo Sun heitir skipið sem hér lestaði mjöl í gær Skipið var byggt hjá Luhring í Brake Þýskalandi 1985 sem BUTJADINGEN Fáninn var þýskur Það mældist: 1190.0 ts, 1149.0 dwt.  Loa: 64.50. m, brd: 11.40. m Skipið Var lengt 1992 uppí loa: 77.40 1476.0 ts og 1770.0 dwt Skipið hefur gengið undir þessum nöfnum: 1988 ANNA  1990 ANJA  1999 MYRTUN  2007 MOLO SUN  Nafn sem það ber í dag undir norskum fána

Hér sem BUTJADINGEN

                                                                                                      © Derek Sands

Hér sem Molo Sun


                                                                                                      © Hannes van Rijn


                                                                                                      © Hannes van Rijn
Hér í Eyjum í gær


                                                                                               © óli ragg


                                                                                               © óli ragg


                                                                                               © óli ragg


                                                                                               © óli ragg


                                                                                               © óli ragg



Lokað fyrir álit

24.04.2012 17:56

Árekstur

Síðastliðinn þriðjudag eða þ 17 april rákust tvö skip saman í Singapore traffic separation. Þetta voru indverskur "bulk carrier" Lok Pratap og "aframax tanker"  KWK Esteem.(Singapore flagg) Ekki liggur ljóst fyrir ástæðuna eða skemmdir. Þó mun Lok Pratap nokkuð mikið skemmdur

Það er nú ekki spennandi að fá svona dreka á sig. KWK Esteem.

                                                                                     © Eric Graham

Skipið var byggt hjá  Samho H.I. í  Samho, Kóreu 2000 sem KWK Esteem Fáninn var Singapore Það mældist: 56943.0 ts, : 105342.0 dwt.  Loa: 244.10. m, brd: 42.30. m Skipið hefur aðeins gengið undir þessu eina nafni Og fáninn er sá sami

KWK Esteem.


                                                                                     © Mick Prendergast


                                                                                     © Hajo Schaefer

Hér er sá "slasaði" Lok Pratap


                                                                                     © Henk Guudee


Skipið var byggt hjá Hindustan í Visakhapatnam, Indlandi 1993 sem Lok Pratap  Fáninn var Indverskur Það mældist: 16834.0 ts, 26718.0 dwt.  Loa: 184.60. m, brd: 23.00. m Skipið hefur aðeins gengið undir þessu eina nafni og fáninn hefur verið sá sami

 Lok Pratap 

                                                                                                 © Henk Guudee

                                                                                               © Henk Guudee

Lokað fyrir álit

22.04.2012 22:57

Ósamkomulag

Það virðist vera eitthvað ósamkomulag milli "Firefox" í tölvunni minni og "fragtskip.123.is" nú um stundir.Nú er ég inni á Chrome og allt virðist vera í lagi. En athugasemdakerfið virðist bilað hjá 123.is Kem aftur seinna
Lokað fyrir álit

22.04.2012 18:11

Bilað

Eittvað er bilað. Eða kannske bara talvan mín. Ég kemst allavega ekki inn á síðuna á tölvunni minni.Er°núna í annari tölvu 
Lokað fyrir álit

21.04.2012 19:32

89 ár

Á sumardaginn fyrsta eða þ 19 apríl 1923 kom þetta skip í fyrsta skipti til Reykjavík eftir að hafa haft viðkomu hér í Eyjum deginum áður.Það  voru því nákvæmlega 89 ár síðan þetta skeði sl fimmtudag. Mikið yrði það ánægjulegt ef búið yrði að endurvekja strandsiglingar aftur sumardaginn fyrsta 2013

Esja I

                                                                                                      © photoship

Skipið var byggt hjá KjØbenhavns Flydedok & Skibsværft í Kaupmannahöfn 1923 fyrir Íslensku landsstjórnina sem Esja Það mældist: 728.0 ts, 415.0 dwt.  Loa: 53.60. m , brd: 9.20. m Skipið var selt til Chile 1938. Og fékk þá nafnið TENGLO. Það strandaði  28 - 11 - 1955  á 41°.29´14 S  072°.57´.53 V og var þar til





                              © ókunnur                                                      
Lokað fyrir álit

20.04.2012 18:06

Urriðafoss

Fjórða skipið af svokölluðum "Blámönnum" hét í upphafi Merc Europe. Var keyptur 1974 hingað til lands og fékk nafnið Urriðafoss Skipið var selt 1985 og hefur síðan borið eftirfarandi nöfn 1985 URRIDA   1991 GUSON   1992 MOHAMAD J.  1994 TYSEER   1996 KADDOUR II   1996 HAIDAR 6   2003 BREEZE   2008 REEM  Nafn sem það ber í dag undir Panamaflaggi. Rekstraraðilin er í Dubai

Hér sem Merc Europe


                                                                         © Handels- og Søfartsmuseets.dk

                                                          © Handels- og Søfartsmuseets.dk
Hér sem Urriðafoss


                                                                         © ókunnur



                                                                         © ókunnur


Lokað fyrir álit

19.04.2012 17:21

Mærsk Mc-Kinney Møllers

Stór risi er fallin frá Arnold Mærsk Mc-Kinney Møller Han var sonur kaupskipaútgerðarmannsins  A.P. Møller og konu hans Chastine Estelle Roberta Mc-Kinney ( sem var skosk)  1930 lauk hann menntaskólaprófi frá Øregård Gymnasium i Hellerup, og var fra 1. september 1930 til 25. júni 1932 í vinnu hjá  i C.K. Hansens útgerðarmanni ( ég las einhverntíma að hann hefði ekki fengið vinnu hjá föður sínum.

Arnold Mærsk Mc-Kinney Mølle
á yngri árum



Og hann hefði sjálfur orðið að finna þessa vinnu hjá Hansen) Eftir það fækk hann svo vinnu hjá A.P. Møller útgerðinni .Frá april til september 1934 sinnti  hann herþjónustu í 1. Regiment. Frá den 22. október 1934 til 31. december 1935 var hann að störfum í  þáverandi aðalstöðvum útgerðarinnar   Kongens Nytorv 8, og frá janúar 1936 til september 1938 að störfum hjá et Hogarth & Sons skipamiðlara i London og Glasgow,  Lazard Brothers & Co. bankanum i London  og L. Martin Cie. i Paris. 1938 varð Møller prófkúruhafi í  A.P. Møller, og þ 30. oktober 1939 tók hann sæti í stjórni Aktieselskabet Dampskibsselskabet Svendborg. Þ 22. maí 1940 giftist Mærsk Mc-Kinney Møller Emmu Marie Neergaard Rasmussen í Tårbækkirkju

Aldurinn færist yfir




Þau höfðu kynnst á menntaskólaárunum Þau eignuðust þrjár dætur
: Leise Mærsk Mc-Kinney Møller (f. 1941), Kirsten Mærsk Mc-Kinney Olufsen (f. 1944) og Ane Mærsk Mc-Kinney Uggla (f. 1948). .Þegar þjóðverjar hernámu Danmörk komust Möllerhjónun til New York. En þaðan stýrði hann þeim hluta flota fyrirtækisins sem slapp undan krumlum hernámsliðsins. En ekki tókst honum að semja við stjórnina í Washington um nýtingu skipana en stjórnin tók mikið af þeim eignarnámi vegna stríðasins.

Meir





Mærsk Mc-Kinney fór þá líka að huga að framtíð útgerð fjölskyldunnar. Hann er sagðu hafa þá þegar gert sér ljóst að framtíðin væri í stykkjavöru flutningum og þá í sérstökum kössum. Hann seldi hluta af tankskipaflota útgerðinnar. 1947 kom han tilbaka til Danmerkur og tók yfir þann hluta útgerðarinnar sem þá hafði fengið nafnið  Maersk Line, og byrjaði að skipulegga áætlunar siglingar um heiminn og setja á stofn umboðsskrifstofur víða um heim.

Og meir Þetta mun vera ein síðasta myndin af Mærsk Mc-Kinney






Norðursjávarolíu æfintýri Mærsk Group er saga út af fyrir sig Og til að gera langa sögu stutta þá er Mærsk Line eitt al stærsta gámaflutninga fyrirtækjum heims í dag. Ekki var uppgangur tengdasons hans mikill hjá fyrirtækjum hans. Ég las einhverntíma haft eftir honum að menn giftu sig ekki inn í Mærst heldur ynnu sig þar upp

Höfuðstöðvar Mærks í Kaupmannahöfn




En yngsta dóttirin Ane Mærsk Mc-Kinney Uggla hefur síðustu ár verið hægri hönd föður síns. En hann mun hafa setið síðasta sjórnarfund nokkrum dögum fyrir andlát sitt. Enginn getur með fullri vissu sagt hve mikil auðæfi þessi maður lætur eftir sig.En hann hefur stofnað og stýrt ýmsum sjóðum til styrktar fjölskyldu sinni, góðgerðarsamtökum og því opinbera.

Mette Maersk nokkra ára skip Mærsk sem Davíð Guðmundsson skipstjóri tók við nýju


                                                                                                  © Derek Sands

Hann lét skipulegjja og byggja svæðið fyrir neðan Amelíuborg Og tónlistahöllina á Hólminum.Hér er stiklað á mjög stóru. Enda er ég enginn sagnfræðingur og enganveginn maður til að skrifa ítarlegar um þenna dana sem allatíð var dáður af sínu samferðar fólki
Annars bloggaði ég um Mærsk 2009 á Moggablogginu og hér er það blog ef einhver nennir að kíkja á það

http://solir.blog.is/blog/solir/day/2009/4/14/



Lokað fyrir álit

19.04.2012 14:52

Phoenix J

Um hádegi í gær LMT strandaði þetta glæsilega skip 8 sjm V af Rauma Finnlandi á útleið frá Rauma. Skipið er eftir mínum heimildum  "hard aground" Að sögn er botn skipsins töluvert skemmdur.Sjór komin í lestar og kjölfestu tanka.Finnski dráttarbáturinn Tursas er komin á vettfang

Strandstaðurinn



Skipið á strandstað


                                                                                           © Maritime Bulletin

Hér við eðlilegar aðstæður


                                                                                            © Hannes van Rijn

Skipið var byggt hjá Jiangdong í Wuhu, Kína 2010, sem PHOENIX J Fáninn var Antigua and Barbuda. Það mældist: 10585.0 ts, 13000.0 dwt.  Loa: 151.72. m, brd: 23.40. m Skipið hefur aðeins gengið undir þessum eina nafni undir sama  fána





                                                                                            © Hannes van Rijn


                                                                                            © Hannes van Rijn

Dráttarbáturinn Tursas


                                                                                            © Folke Österman


Skipið var byggt hjá Rauma-Repola í Rauma Finnlandi sem TURSAS Fáninn var finnskur Það mældist: 600.0 ts, 730.0 dwt.  Loa: 49.00. m, brd: 10.40. m Skipið mun hafa verið endurbyggt 2005 og mældist eftir það 61.59 m. Það hefur aðeins gengið undir þessu eina nafni




                                                                                            © Folke Österman


                                                                                            © Folke Österman
Lokað fyrir álit
Flettingar í dag: 5867
Gestir í dag: 252
Flettingar í gær: 0
Gestir í gær: 0
Samtals flettingar: 195960
Samtals gestir: 8396
Tölur uppfærðar: 14.3.2025 23:12:18
clockhere