Færslur: 2014 Mars
08.03.2014 15:37
Guli flotinn
Guli flotinn
08.03.2014 14:47
Hofsá
Þetta skip var næst á dagskrá hjá Hafskip h/f. Hofsá var keypt til landsins 1984 Var undir stjórn mætra manna .M.a vinar míns Bjarna Halldórs Skipið var byggt hjá Korneuburg SW í Korneuburg, Austurríki 1972 sem KORNEUBURG.Fáninn var þýskur. Það mældist: 999.0 ts, 2790.0 dwt. Loa: 90.40.m, brd: 14.80. m
Hér er skipið sem HOFSÁ
úr safni Bjarna Haldórs © ókunnur
Skipið hefur gengið undir þessum nöfnum 1972 NAD KING 1975 ATLANTIC KING 1978 SHAIKAH AL QURAICHI 1979 ATLANTIC KING - 1981 BONAVENTURE II 1984 kaupa svo Hafskip skipið og skírir HOFSÁ. Eimskipafélag Íslands yfirtekur skipið 1986 og skírir Laxfoss (IV) Það var selt úr landi 1987 og fær nafnið RINGEN 1988 SANDNES 1989 GIMO CELTICA - 1990 GIMO TRADER 1992 MARINE TRADER 1994 NORUNN 2002 LINDA Nafn sem það ber í dag undir NIS fána
Skipinu stýrði fyrst hérlendis Guðmundur Eyjólfsson skipstjóri
Með Jón Sveinsson sem yfirvélstjóra
Hér er skipið undir nafninu SANDNES
© Capt.Jan Melchers
© Cornelia Klier
© Poul Erik Olsen
© Poul Erik Olsen
© Poul Erik Olsen
© Cornelia Klier
08.03.2014 09:08
Rangá III
En bjartara yfir því þegar Sveinn Kr Pétursson framkvæmdastjóri Hafskip í Þýskalandi afhenti Sæmundi skipstjóra mynd frá höfninni í Hamborg.

Hér heitir skipið BAROK
© Sjohistorie.no
Skipið var smíðað hjá Trondhjems MV í Þrándheimi Noregi 1971 sem: BAROK Fáninn var:norskur Það mældist: 1516.0 ts, 2856.0 dwt. Loa: 87.00. m, brd 15.40. m Skipið hefur gengið undir þessum nöfnum: 1983 RANGA - 1986 IRAFOSS - 1986 MARC ISLAND - 1991 VENUS - 1994 HASSNAA - 1997 CAPTAIN MOHAMED - 2002 CAPTAIN MOHAMED K. - 2011 ASHRAF Nafn sem það ber í dag undir fána Togo
Skipinu stjórnaði fyrst hérlendis Sæmundur Sveinsson skipstjóri
Með Kristinn Helgason sem yfirvélstjóra
Hér er skipið undir nafninu Barok
© Simon Kruyswijk
Hér sem Captain Mohamed K.
© Gerolf Drebes
07.03.2014 19:14
Skaftá II
skip sem keypt var, BORRE hafði verið í þjónustu félagsins um skeið fékk nafnið SKAFTÁ, En BORRE og BOMMA höfðu verið í eigu norska útgerðar mongúlsins Fred Olsen
Hér er Sveinn skipstjóri t.v og forráðamenn Hafskips taka formlega við skipinu

SKAFTÁ hér sem BORRE
Skipið var byggt hjá Trondhjems Værft Þrándheimi í Noregi 1970 fyrir Fred Olsen og hlaut nafnið BORRE. Það mældist 1516.ts.2828 dwt.Loa:87.0 m. brd.15.0 Hafskip kaupir skipið 1981 Eftir gjaldþrot Hafskips 1985 kaupa Eimskip skipið af Útvegsbankanum.1986 Eftir að það hafði legið í Antverpen í rúmt ár Til stóð að skíra skipið MÚLAFOSS en af því varð ekki og seldi Eimskip skipið 1986 og það fer undir Bahamaflagg og fær það nafnið POLLY PROGRESS 1992 Fær það nafnið UB PROGRESS 1996 D.M SPRIRIDON.2001 er skipinu breitt í "livestock carrier" Skipið sekkur svo 08-11-2007 2 sjm út af Puerto Cabello Nicaragua
SKAFTÁ stýrði í fyrstu hérlendis Sveinn H Valdimarsson
Með Ásgeir Sumarliðason sem yfirvélstjóra
Hér er skipið sem BORRE
@Rick Cox
@Rick Cox
Hér er SKAFTÁ komin í hinn litríka búning Hafskip h/f
Úr safni Bjarna Haldórs @ókunnur
Sveinn H Valdemarsson með strákunum sínum um borð í SKAFTÁ
Úr safni Bjarna Haldórs @ókunnur
Hér sem POLLY PROGRESS
© Leo Johannes
© Derek sands
Hér sem D.M SPRIRIDON.
@ Lettrio Tomasello Shippotting
07.03.2014 11:00
Selá II
Hér skiftast þeir á fánum Rögnvaldur skipstjóri í norski skipstjórinn

BOMMA
© Sjöhistorie.no
Skipið var smíðað hjá Trondhjems MV í Þrándheimi Noregi 1970 sem: BOMMA Fáninn var:norskur Það mældist: 1516.0 ts, 2828.0 dwt. Loa: 87.00. m, brd 15.00. m Skipið hefur gengið undir þessum nöfnum: 1980 SELA - 1985 SELFOSS - 1986 KYTHERA SEA - 1987 NEPTUNE STAR - 1990 ODESSA STAR - 1992 MEDINA STAR - 1995 FB PIONEER - 1996 VAROT Nafn sem það bar síðast en það var rifið Banglades 1997
Skipinu stýrði fyrst hérlendis Rögnvaldur Bergsteinsson skipstjóri
Með Örn Steingrímsson sem yfirvélstjóra
SELÁ
© Phil Eng
Hér sjá líkan af skipinu
06.03.2014 12:56
Ginaldag
Hér er tankskipið sem SARATOV
© Pilot Frans
Skipið var smíðað hjá Admiralty í St Pétursborg sem: SARATOV Fáninn var: rússneskur Það mældist: 13815.0 ts, 19800.0 dwt. Loa: 147.20. m, brd 24.50. m Skipið hefur aðeins gengið undir tveim nöfnum en 2008 fékk það nafnið GINALDAG Nafn sem það ber í dag undir fána Möltu
SARATOV
© Pilot Frans
© Pilot Frans
ARKLOW MUSE
Skipið var smíðað hjá Dae Sun SB & E Co í Pusan Kóreu 2013 sem: ARKLOW MUSE Fáninn
var: írskur Það mældist: 9682.0 ts, 19800.0 dwt. Loa: 136.47. m, brd 21.00. m Skipið hefur aðeins gengið undir þessu eina nafni og fáninn se sá sami
Mynd af Vesseltracker.com © sést á henni
05.03.2014 20:46
KLOS.C
Hér sem KLOSTERTA
Mynd af Vesseltracker.com © sést á henni
Skipið var smíðað hjá Severney í St Petersburg Rússlandi (skrokkur) fullsníðað hjá Neptun Reparaturwerf, Rostock 1996 sem: KLOSTERTAL Fáninn var: Austurrískur Það mældist: 5622.0 ts, 6985.0 dwt. Loa: 108.80. m, brd 17.80. m Skipið hefur aðeins gengið undir tveim nöfnum En 2012 fékk það nafnið KLOS C. Nafn sem það ber í dag undir Panama fána
Hér sem KLOSTERTA
Mynd af Vesseltracker.com © sést á henni
Mynd af Vesseltracker.com © sést á henni
Mynd af Vesseltracker.com © sést á henni
Mynd af Vesseltracker.com © sést á henni
02.03.2014 13:26
Íslenski fáninn
Nei hollustu við þjóðfánan ern hvergi að finna innan þeirrar samkundu er alþingi nefnist. Góðir og gegnir íslendingar sem muna meira en 30-40 ár aftur í tíman muna hve stórt hlutverk Íslenski fáninn lék í sjálfstæðisbaráttunni.Og hvað íslenskir sjómenn léku þar einnig stórt hlutverk í að kynna hann framandi þjóðum. Mig langar að vitna í skrif eins af skipstjórunum sem drógu hann að húni 1 des 1918. Péturs Björnssonar skipstjóra á BORG:" Við sjómennirnir hlökkuðnm ekki minna en aðrir til sjálfstæðis landsins, en það, sem vakti mesta hrifningu hjá mér, og svo mun hafa verið um flesta aðra íslenzka sjómenn. var tilhugsunin um það, að eiga að fá okkar eiginn fána að sigla undir." Og seinna:" Ég hlakkaði svo mikið til að mega draga íslenska fánann að hún, því ekki var hann einungis tákn sjálfstæðis föðurlands míns, heldur þótti mér þá, eins og mér hefir einlægt þótt síðan litirnir í fánanum svo undur fallegir, að kalla mætti hann fallegasta fána í heimi."
Ríkisfáninn íslenski
Og Pétur lýkur grein sinni á þessum orðum:"Það verða víst margir sem brosa er ég segi,að það halfi verið eitthvað líkt tilhlökkun ungrar meyjar sem á að fara í fyrsta skipti á dansleik, en þó held ég að samlíkingin sé ekki úr vegi. Þennan fyrsta dag, sem íslenski fáninn blakti yfir mér gat ég staðið stundum saman og horft á hina hreinu fallegu liti blakta í vindinuin, og ég óskaði þess þá, eins og ég veit að allir sannir íslendingar hafa óskað þann dag, að aldrei kæmi blettur á þetta fagra sjálfstæðismerki Íslands. Svo mörg voru þau orð skipstjórans farsæla Leturbreytingarnar voru mínar
Hér má lesa færslu frá því 1 des sl um sama mál
Fáni Forseta Íslands
Annar farsæll kaupskipaskipstjóri Jón Eiríksson skrifar m.a. um sama mál: "Þjóðfáninn á að vera hverjum þjóðhollum manni heilagt tákn. Hann má ekki óvirða. En það er hægt að óvirða hann bæði með því að sýna hann á röngum stað, og röngum tíma og á rangan hátt. Og með því að sýna hann ekki á réttum stað og réttum tíma og á réttan hátt" Síðan heldur Jón áfram og segir m.a :Íslenskir sendiherrar eða ræðismenn eða aðrir fulltrúar fyrir íslenska ríkið voru þá engir í öðrum löndum, svo ísl. sjómenn munu að mestu hafa verið einir um þann heiður að kynna fánann út um heiminn fyrst í stað." Tilv lýkur Nú er búið að taka þennan heiður af íslenskum sjómönnum. Bjarni Jónsson frá Vogi orti 1918 ljóð sem heitir Fáninn"
Svona er fyrsta erindið
"Höfin lengi horfðu' og spurðu:
Hvar er, ísland, fáni þinn,
þeim er léttfær áður urðu
úthöfin sem fjörðurinn?
Höfin, fáni, fagna þér!
Far og langþráð svar þeim ber."
Og síðasta erindið:
"Undir loft og löndin taka
landvættanna siguróð,
sól og eldar yfir vaka
íslands heiðri, göfga þjóð.
Víða' um heim til heiðurs þér
hátt þinn fána, ísland, ber!
En nú er Snorrabúð stekkur hvað þetta varðar Enginn. Alls enginn ráðamaður hérlendis er það mikill íslendingur í sér að honum varði eitthvað um þetta mál Og íslenskir alþingismenn láta taka af sér myndir "skælbrosandi" við sjósetningu á glæsilegum skipum í íslenskri eigu en sem eiga af veifa annara landa fána. Þeir ættu hreinlega að skammast sín fyrir að láta þetta mál kyrrt ligga Þó þeir státi af lopapeysum sem jafnvel eru prjónaðar erlendis með íslensku munstri. Þeir ættu að hreinlega að hrista af sér slenið og gefa þjóðinni það í 70 ára þjóðhátíðargjöf að hin glæsilegu íslensku skip hafi hinn fallega fána í skut en ekki sem gestafána í íslenskum höfnum En hér má lesa samþykkt alþingis frá 2007 um íslenska skipaskráningu
01.03.2014 20:55
Góður vinur
Í gær hringdi í mig gamall og góður vinur Páll Árnason sem býr í Svíþjóð. Þá rifjuðust upp fyrir mér skipin sem ég vissi að hann hefði stjórnað m.a og sem ég mundi eftir, en þau voru mikið fleiri
© Phil English
Skipið var smíðað hjá Neptun VEB í Rostock (þv Austur Þýskalandi) 1974 sem
BRUNLA Fáninn var: norskur Það mældist: 5944.0 ts, 7900.0 dwt Loa: 121.40. m, brd 17.60. m Skipið hefur gengið undir þessum nöfnum: 1984 WARDA - 1991 YUAN MING Nafn sem það bar síðast undir kínverskum fána En þetta segja mín gögn um skipin No Longer updated by (LRF) IHSF(since 18/06/2012)
Næsta skip, en þar var ég stm hjá Páli hét ZAFIRO
© Brian Fisher
Skipið var smíðað hjá Duro Felguera í Gijon Spáni 1983 sem ZAFIRO Fáninn var:spænskur. Það mældist: 3997.0 ts, 7114.0 dwt Loa: 104.10. m, brd 95.40. m Skipið gekk undir þessum nöfnum: 1991 ZAFIRO XI - 1991 ZAFIRO - 1998 ZAFIR Nafn sem það bar síðast undir fána Portúgal En skipið lenti í árekstri þ 13-02-2000 á 38°34´0 N og 016° 42´0 A og sökk
Palli hætti með skipið að mig minnir 1993 og fór þá strax til Möltu til að fylgast með smíði nýs tankskips STAVTANK fyrir þá sem áttu ZAFIRO En það var útgerð í Stavanger
Hér sem STAVTANK
© Andreas Spörr
Skipið var smíðað hjá Malta SB í Marsa, Möltu 1995 sem: STAVTANK Fáninn var:norskur Það mældist: 5378.0 ts, 8491.0 dwt. Loa: 115.10. m, brd 18.30. m Skipið hefur gengið undir þessum nöfnum: 2006 BETTY THERESA - 2009 ENERGIZER Nafn sem það ber í dag undir fána Panama
Hér sem ENERGIZER
© Rick Vince (patalavaca)
Þetta voru bara þau skip sem ég man eftir og vissi deili á sem Páll stjórnaði
- 1
- 2