Færslur: 2015 Apríl
07.04.2015 19:52
Ein af erlendu Heklunni
HEKLA
© Handels- og Søfartsmuseets.dk
HEKLA
© Handels- og Søfartsmuseets.dk
© Handels- og Søfartsmuseets.dk
© Handels- og Søfartsmuseets.dk
© Handels- og Søfartsmuseets.dk
05.04.2015 19:48
Allt er fertugum fært
Halldór Nellet skipherra
Aftur og enn eru Halldór og menn hans að minna á sig í björgunum á mannslífum. Þó að hann öruglega,eins og flestir íslendingar vildu hafa þá á heimaslóðum. En í öllum þessum æfintýrum Týrsmanna held ég að eitt hafi gleymst. Þetta:
Forsíða Tímans 25 mars 1975 eða fyrir 40 árum



Þetta mikla happaskip varð því 40 ára þ 24 mars ef maður miðar við komu til heimalandsins.Ég var meira segja svo frægur að leysa af á honum einn túr Þá var Bjarni Helgason skipherra Óli Valur yfirstm Sigurjón Ingi Sigurjónsson 2 stm og ég þriðji. Mér líkaði vel þarna en var ráðinn annarstaðar svo þetta varð bara einn túr.Einhverjar breytingar hafa nú verið gerðar á skipinu. Sem ég kann ekki að segja frá. En ég vil óska Halldóri skipherra og mönnum hans til hamingu með þennan frábæra árangur sem þeir hafa sýnt. Og einnig til hamingju með sitt fertuga skip
VS TÝR
Skipið var smíðað hjá Århus DY í Århus Danmörk 1975 fyrir Ríkissjóð Íslands Hann mældist 923,0 ts 513,0 dwt, Loa: 71,0 m brd:10,10 m
VS TÝR
Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni
Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni
Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni
05.04.2015 14:04
Asiatic og kafbáturinn
Fyrir 75 árum eða þann 5 apríl 1940 var þessi fyrirsögn í Morgunblaðinu
Kolaskipið "Asiatic" (nú í Reykjavíkurhöfn ) sigldi á kaf bát
Enska flutningaskipið "Asiatic" (6000 smál.) frá Hull, sem hér! Hefir legið undanfarna daga og er með kolafarm til kolaverslana, hefir lent í hinum mestu ævintýrum síðan stríðið hófst. Meðal annars sigldi skipið á þýskan kafbát og skemdi hann allmikið eða ef til vill sökti honum. Blaðamaður frá Morgunblaðinu átti í gær tal við skipstjórann á "Asiatic", Mr. R. Jennings, og Mr. A. Cullen, 1. vélstjóra. Skipstjórinn sagði svo frá um atburðinn, er skipið sigldi á kafbátinn:" Við vorum staddir við norðausturströnd Skotlands og vorum hlaðnir 6000 smálestum af járnmálmi. Þetta var klukkan 10.30 um kvöld. Skip okkar sigldi ljóslaustog alt í einu urðum við varir við kafbát, sem var í þann veginn að sökkva skipi hlutlausrar þjóðar (sænsku skipi), sem var þarna með fullum Ijósum.
Kafbátur sömu gerðar og U-63
Við komum út úr myrkrinu og lenti stefni okkar á kafbátnum rétt framan við turn hans. Vegna myrkurs vissum við ekki hvað af kafbátnum varð, en geta má nærri, að þegar skip, sem fer með 10 mílna hraða á klukkustund og sem hlaðið er 6000 smálestum af járnmálmi, lendir á kafbát, þá segir það sig sjálft, að kafbáturinn hlýtur að verða fyrir miklum
Laskaðist "Asiatic" við áreksturinn ? já, en það var ekki mikið, segir skipstjóri.Fréttist ekki síðar um afdrif kafbátsins? Við gerðum breska flotamálaráðuneytinu aðvart í gegnum Ioftskeytastöð okkar og skömmu síðar sáum við að tundurspiliir og flugvélar komu á vettvang.
ASIATIC
© BANGSBO MUSEUM
Skipið var smíðað hjá Burntisland SB Co í Burntisland Bretlandi 1923 sem:ASIATIC Fáninn var:breskur Það mældist: 2300.0 ts, 3741.0 dwt.(hér er eitthvað sem ekki passar) Loa: 106.60. m, brd 15.20. m Skipið gekk undir þessum nöfnum: 1943 EMPIRE TORRIDGE - 1946 HUNTRESS - 1950 MODESTA Nafn sem það bar síðast undir finnskum fána En skipið var rifið í Júgóslaviu 1962
Það var síðar fullyrt að kafbáturinn hefði sokkið, eða að minsta kosti stórlaskast.Við vonumst til að þegar við komum heim þá fáum við fé það sem sett er til höfuðs óvinakafbátum greitt En það er 1000 sterlingspund (23.000 ísl. krónur), fyrir að sökkva kafbát og 500 fyrir að laska hann. Við vonumst eftir að fá greiðslu að minsta kosti fyrir hálfan kafbát . "Tilvitnun í Moggan líkur. Síðuhaldari lagðist í smá rannsóknar blaðamennsku og fann út að þýska kafbátum U-63 var sökkt á þeim slóðum sem Jennings skipstjóri talar um þ 24 febr 1940
Hér má lesa um það
Sænska skipið sem Jennings skipstjóri minnist á gæti verið þetta skip
SANTOS
© söhistoriska museum se
© söhistoriska museum se
© söhistoriska museum se
En hvort þessi tilgáta mín á við rök að styðjast sver ég af mér.
02.04.2015 23:22
MSC OSCAR
MSC OSCAR
© Photoship
MSC OSCAR
© Hans Esveldt
© Hans Esveldt
© Hans Esveldt
© Hans Esveldt
02.04.2015 18:46
LINGESTROOM
LINGESTROOM
© Peter William Robinson
Skipið
var smíðað hjá Goole SB í Goole Bretlandi 1947 sem:LINGESTROOM Fáninn
var:hollenskur Það mældist: 748.0 ts, 1272.0 dwt. Loa: 71.40. m, brd
10.80. m Skipið gekk undir þessum nöfnum:1965 NISSOS MYKONOS - 1969 MATA
- 1971 TREMCO UNITY - 1972 AGIOS FANOURIOS II Nafn sem það bar síðast
undir grískum fána En skipið var rifið í Grikklandi 1970
© photoship
© photoship
© photoship
Hér sem NISSOS MYKONOS
© Peter William Robinson
01.04.2015 18:07
Lóðsinn og Haukur
LÓÐSINN

© Guðjón V
Skipið var smíðað hjá Skipalyftunni í Vestmannaeyjum 1998 Það mældist 156.0 ts 105.0 dwt, Loa: 24.0 m.brd: 7.33. m
LÓÐSINN

© Guðjón V

© Guðjón V

© Guðjón V

© Guðjón V
HAUKUR

© Tryggvi Sig
Skipið var smíðað hjá Dtsg Sava Shipyard í Macvanska Mitrovica, Serbíu 1990 sem SAVA RIVER Fáninn var norskur Það mældist: 2030.0 ts, 3050.0 dwt. Loa: 74.70. m, brd: 12.70. m Skipið hefur aðeins gengið undir tveimur nöfnum en 2000 fékk það nafnið HAUKUR Nafn sem það ber í dag undir fána Færeyja
Haukur fyrir austan Eyjar í 2013


© Tryggvi Sig
- 1
- 2