15.02.2010 19:06
Framhalds-Saga
Ég sagði um daginn að saga þessa skips væri mér ekki kunn. En nú er ég komin með hana:Skipið var byggt hjá Schulte & Bruns í Emden Þýskalandi 1966 sem Peter Wessels fyrir þýska aðila. 1975 kaupir Hafskip h/f í Reykjavík skipið og skírir Rangá. Sjóleiðir h/f (Guðmundur Karlsson og Sigurður Markússon og fl) í Reykjavík kaupa skipið 1981 og skírir Saga (II). Skipið lendir í vélabilun í franskri höfn 1988. Skipið er selt uppúr því Fær flagg Madagascar 17 des 1988 og nafnið Anais Sett undir Panamaflagg 1990 og aftur flagg Madagascar 1991. Það er svo tekið af skrá 1993
Hér sem Anais myndin tekin í Brest
@Yvon Perchoc
Hérna sem Saga. Myndin tekin í Ålaborg @oliragg