19.02.2010 20:28
Jöklar
Hérna eru myndir af skipum sem fluttu mikil verðmæti frá landinu.Þótt 2 hafi verið fjarri landinu í lengri tíma með íslenskt flagg í skut. Ég fékk 2 myndir sendar frá velunnara síðunnar sem ekki gat greint frá ljósmyndaranum. Og ef einhver kannast við myndir sem sá hinn sami hefur tekið bið ég hann að láta mig vita. Ef myndin er óvelkomin á síðuna mun ég taka hann strax út og biðjast afsökunnar.Þótt sumum þyki það kannske of seint í rassinn gripið. En myndirnar vekja bara upp gamlar minningar svo ég stóðs ekki freistingarinnar að birta þær. En tunnumyndina af Drangajökli sendi mikill velunnari síðunnar Sigmar Þór mér og er eiganda getið við myndina. En að fyrsta skipinu.Langjökull smíðaður hjá Århus Drydock 1959 Danmörk Fyrir Jökla h/f Reykjavík. Skipið mældist 1987,0 ts. 2000.0. dwt. Loa: 87. 90 m brd: 12.60 m Skipið var selt 1967 til N-Kóreu og fær nafnið Mag 1 1967 Poong De San 1995 La Pal San. Skipið var tekið af skrá 2001
@ torfi haraldsson
Næsta skip Drangajökull var smíðaður hjá Van der Wert í Deest Hollandi 1961 fyrir Jökla Skipið mældist 1909 ts 2100 dwt, Loa: 86.0 m brd. 12,60 m. Það var selt til N-Kóreu 1967 og fær nafnið Mag 2 1968 Na Pal San 1995 Bong Dae San. Nafn sem skipið ber enn þann dag í dag undir fána N-Kóreu
@ ókunnur
Hér er skemmtileg mynd. Og vísar til 2ja verkunar aðferða frystingar og söltunnar
@sig. sigurðsson frá stakkagerði
Síðastur í upptalningunni er Hofsökull smíðaður hjá Granemouth Dock Yard í Granemouth Skotlandi 1964 fyrir Jökla. Skipið mældist 2361.0 ts 2860,0 dwt. Loa:89.50 m brd: 13,80 . Eimskipafélag íslands kaupir skipið 1977 og skírir Stuðlafoss. Það er selt úr landi 1986 og fær nafnið Malu. 1989 Miss Xenia 1993 Maya Reefer Skipið var svo rifið í Alang í mars 2003
@ókunnur