04.04.2010 14:37

Gamlir og nýir tímar

Þó þetta sé nú aðalleg myndsíða er hún líka hugsuð fyrir spjall. Nú líður að Sjómannadegi þessum eiginlega eina degi sem stærsti hluti þjóðarinnar hugsar til þeirra manna sem sækja sjó, Þetta andsk..... lið (þíð fyrirgefið orðbragðið á sjálfan Páskadaginn) sem ekki vill kannast við uppruna sinn annað en við séum komnir af bölvuðum rumpulýð sem nefndir eru víkingar. Þeir eru hafni til skýjanna þótt þetta hafi ekki verið annað en villimenn sem fóru rænandi,ruplandi,nauðgandi um jarðir brenndu konur og börn inni og"huggu mann og annan" eins og svo oft  er sagt í hrósandi tón.






Enda furðuleg tilviljun að líkja þessum andsk..... lýð sem kom landinu á hausinn við þá fyrrnefndu. Þetta 1rst nefnda lið verður bara þó þungt sé að viðurkenna að það er komið af fólki sem angaði af slori og kúaskít. það var fólk sem þannig angaði sem kom þeim fótum undir þessa þjóð áður en fólk sem angaði af Boss og Chanel 5 fór með allt til andsk.....  En aftur og enn munu það verða sjómenn sem koma fótunum undir þjóðina.





Ég hef heyrt unga sjómenn tala fáglega um dýrkun okkar eldri á gömlum skipum. Og tala jafnvel um "árabátakalla" En sjómenn í dag mega ekki gleyma að allt þetta byrjaði á að einhverju asna datt í hug að hola innan trjábol og setja á vatn  Þannig fæddist 1sti sjómaðurinn. Þeir mega ekki gleyma því að þessu fallegu stóru skip sem þeir sigla á í dag eru tilkomin út af vinnu margra manna við þrældóm og vosbúð. En ég get skilið þessa ungu menn. Ég var ungur nú fyrir hart löngu  Ég er það gamall að ég náði að vera í skipsrúmi með mönnum sem upplifðu skútuöldina að ég tali nú ekki um gömlu gufutogarana.






Ég gerði grín að þessu andsk..... "árabátakjaf.... í þeim sem mér fannst. Þegar þeir með glampa í augunum töluðu um gamla"dalla" með kannske 20 manna lúkörum 3 kojuhæðir og lágu jafnvel andfætis. En við í þessum lúxus að vera mest 16 (á Ingólfi Arnar og þeim fyrsu  af Nýsköpunartogurunum, en svo var þetta hólfað niður seinna) Að vera með glampa í að tala um skip með vistarverur fyrir 20 kalla í einu haug. Andfúla fretandi og með svæsna táfýlu Reykjandi bæði kolaofn og menn í litlu rými. Hverslags helv.... asnar voru þessir menn. Engin eða léleg loftræsting. Við vorum sem fyrr sagði mest16 En svo eldist maður og maður safnar reynslu í sarpinn og fer að líta málið öðrum augum.
 



Menn verða gamli og þá hlýtur hugurinn að leita til .þeirra ára sem maðurinn var ungur og frískur og elskaði vinnu sína og lífið. Hvort maðurinn hafði verið í lúkar með 19 öðrum íllaþefandi slánu eða hann var í 1 manns herbergi með ADLS og öllum þessum nútíma græjum Þessvega bið ég ykkur þessa ungu sjómenn í dag gerið ekki grín að okkur gamlingunum þó við séum með glampa í augunum þegar við tölum um gömlu dagana. Því þið  verðið vonandi flestir sjálfir gamlir og komið til með að gera það sama.En svo að sjómannadeginum.




Ég veit það ekki en einhvernveginn finnst mér að það mætti færa hann aftar í almanakinu. Í byrjun júni er vorið oft ekki almennilega komið. Og oft hefur veðurlag skemmt þennan mikla hátíðis dag. Það er ekkert skemmtilegt að vera með litla hnátu eða lítinn hnokka í hálfgerum kaldaskít að hlusta á menn sem þau skilja ekki um hvað eru að tala. En munið það sjómenn í dag að þið eru ykkar eigin lífverðir. Fylgist með að öll öryggistæki virki og setjið vel á ykkur hvað Hilmar Snorrason og menn hans eru að kenna ykkur

Lokað fyrir álit
Flettingar í dag: 1497
Gestir í dag: 58
Flettingar í gær: 5664
Gestir í gær: 85
Samtals flettingar: 804465
Samtals gestir: 55591
Tölur uppfærðar: 13.5.2026 13:08:55
clockhere