12.12.2012 22:59

Fell

Ég hef undanfarið svolítið skrifað um skip hvers nöfn enda á fell En Vestmannaeyingar áttu einusinni skip sem hét bara Fell  Og hér er saga þess í stórum dráttum : Skipið var byggt í Sölvesborg sem þriggja mastra skúta með hjálparvél og fékk nafnið NIAGARA eigandi Ab Evernia, Varberg)  Í september 1945 er skipið selt til Vestmannaeyja eigandi Fell h/f í Vestmannaeyjum

Hér sem Fell VE


                                                                           Úr Safni Tryggva Sig


1948 kaupir Sigurjón Sigurðsson skipið Hann selur það aftur til Svíþjóðar 1951 (fyrir 155.000 sv kr) Kaupandi var Emil Hedberg, Djupekås .Hann skírir skipið Hanö Það er lengt 1952 og því breitt í vélskip. Og mældist þá loa:30.14 m, brd 6.59 m og  dwt aukin frá 250.0 ts upp í 320.0 ts 1967 er skipið selt Nils Erik Götherström í Kalmar. Þ 24 nóvember 1968 hvolfir skipinu fyrir utan Häradsskär á leiðinni frá  Uppsala til Hamborgar með kornfarm. Áhöfnin bjargaðist

Hér sem Hanö


                                                       © Tomas Johannesson
Lokað fyrir álit
Flettingar í dag: 2078
Gestir í dag: 58
Flettingar í gær: 5664
Gestir í gær: 85
Samtals flettingar: 805046
Samtals gestir: 55591
Tölur uppfærðar: 13.5.2026 14:05:56
clockhere