11.11.2013 10:22

Goðafoss VI

Sem gömlum sjóara fær maður alltaf hugarangur þegar  heyrist um eld um borð í skipi. Og að mínu mati er er eldur eða réttara sagt reykurinn frá honum orðin einn hættulegasti óvinur sjómannsins í dag. Um borð í þessum vel útbúnu skipum nútímans. Þó að Hilmar & co í Slysavarnaskólanum kenni "Firefighting" þá er raunveruleikinn alltaf sérstakur Að maður tali nú ekki um í slæmum veðrum.Og í nótt braust út eldur í GOÐAFOSSU skipi Eimskip. En skipverjum tókst að ráða niðurlögum hans. Og hafa án efa unnið þar þrekvirki við erfiðar aðstæður.

GOÐAFOSS


                                                                                                           ©  Wil Weijsters



Goðafoss nafnið hefur ekki reynst Eimskipafélaginu sérlega vel. Og ef ég er ekki að bulla þess meir kviknaði í þessu sama skipi á heimleið fyrir rétt rúmum þremur árum og þá einnig á svipuðum stað í skipinu.Það skeði aðfaranótt 30 okt 2010 Og þetta er af heimasíðu Eimskip þ 22-12 sama ár :
"Áhöfnin á Goðafossi var í gær heiðruð fyrir fyrir hetjulega framgöngu við slökkvistörf þegar eldur kom upp í skipinu  30. október síðastliðinn.Öguð vinnubrögð og snarræði áhafnarinnar skipti sköpum um að hvorki urðu slys á mönnum né alvarlegt tjón á skipinu." Gylfi Sigfússon forstjóri sagði m.a : "Áhöfnin vann hetjusamlegt björgunarstarf við einar verstu aðstæður sem hægt er að hugsa sér. Það sannaði sig eins og oft áður að menntun og þjálfun Íslenskar sjómanna er með því besta sem gerist í heiminum og við verðum að hlúa vel að menntun þeirra í framtíðinni"


GOÐAFOSS


      © 
Hannes van Rijn


Skipið var smíðað  hjá Örskov Christensens í Frederikshavn Danmörk 1995 sem: 
KIRSTEN SIF
Fáninn var: DIS Það mældist: 14664.0 ts,  17042.0 dwt. Loa: 165.60. m, brd 27.30. m Skipið hefur gengið undir þessum nöfnum: 1995 TRSL CONCORD - 1997 MAERSK QUITO - 2000 GODAFOSS Nafn sem það ber í dag undir fána  Antigua and Barbuda

GOÐAFOSS


                                                                                                      © 
Hannes van Rijn


                                                                                                 © Arne Luetkenhorst



                                                                                                     © Arne Luetkenhorst



                                                                                                           ©  Hannes van Rijn


                                                                                                           ©  Hannes van Rijn



Lokað fyrir álit
Flettingar í dag: 1044
Gestir í dag: 238
Flettingar í gær: 522
Gestir í gær: 199
Samtals flettingar: 812178
Samtals gestir: 56259
Tölur uppfærðar: 17.5.2026 18:43:07
clockhere