13.05.2015 16:02

Svartfoss

Jæja snúum okkur að nútímanum því flestum er nákvæmlega sama um afrek okkar "stríðssiglara" Og annað mál sem flestum er andsk..... sama um, það er hvaða "flaggdrusla" lafir í flaggstöngum skipa sem eiga að kallast í íslenskri eigu. Og forráðamönnum "Sjómannadagssins" er orðið andsk..... sama um hvernig hann er haldinn Bara ef þeir geta tranað sér í ræðustól til útvarps eða  sjónvarpsútsendinga. Og á þessum degi er tilheyrandi ráðherra gefinn kostur á hverju einasta ári  að halda lofrollu um hve sjómaðurinn sé nauðsynlegur þjóðfélaginnu En það stendur nú bara yfir 1 dag úr árinu. Og líkt og 1944 og 5 sjómönnum meinaður aðgangur að þeim stól.  Sjómannadeginum hinum virkilegi er að blæða út að forráðamonnum hans ásjáandi. Nú lofa þeir bara haf og himinn. Fussu svei það er mannaþefur í helli sjómannadagsins Sem er jafnaldri minn er eins og ég brátt farinn að syngja sitt síðasta

SVARTFOSS

                                                                                                                                     © Wim.Vrolijk

Skipið var byggt hjá Gdynia DY í Gdynia Póllandi 2005 sem Svartfoss (byggingarnafn KRISTIAN WITH) Fáninn var Antigua and Barbuda Það mældist:  2990.0 ts, 2737.0 dwt. Loa: 80.00. m, brd: 16.00. m Skipið hefur aðeins gengið undir þessu eina nafni undir sama fána

SVARTFOSS

                                                                                                                               © Wim.Vrolijk


                                                                                                                              © Wim.Vrolijk


                                                                                                                       © Wim.Vrolijk


                                                                                                                                 © Wim.Vrolijk


                                                                                            © Wim.Vrolijk


                                                                                                                                  © Wim.Vrolijk

Lokað fyrir álit

10.05.2015 18:21

Íslenskir Sjómenn í WW 2

        Íslendingar og WW 2

Á föstudag eða þann 8 maí voru 70 ár síðan "Orustunni á N-Atlantshafinu" lauk og friður komst á í Evrópu. Þessu ber að fagna og get ég ekki skilið annað en Sjómannadagurinn í ár speglist af því. Og að samtök sjómanna krefjist afsökunar beiðni frá ríkisvaldinu hvernig íslensk stjónvöld héldu á málum íslenskra sjómanna 1945 að stríði loknu. Þegar forustumenn þeirra stéttar sem mest lagði líf sitt að veði í þessum hamförum fengu þessa ómaklegu meðhöndlun hjá stjórnvöldum sem þá voru við völd og varð ráðherrum ríkisstjórnarinnar til ævarandi skammar En fyrir þeirri ríkisstjórn fór einn af aðaleigendum eins af stærstu togarafélags landsins Sem ekki  skirtist ekki við að senda sjómenn sína á "vigvöllinn" Í þessari stjórn sat einnig forustumaður í annari togaraútgerð á höfuðborgarsvæðinu Eins og það heitir í dag Með sama hugsunnarhátt Lítum í 8 tbl Sjómannablaðsins Víkings 1945.Á bls 185 er smágrein sem heitir
                                        

                                        Gleymdir menn

"En Þegar veizlan í tilefni af lýðveldisstofnuninni var haldin að Iiótel Borg 1944 gleymdist algjörlega að bjóöa þangað fulltrúa Farmanna- og fiskimannasambands Islands, stéttarsamtaka sjómanna. Þar voru þó boðnir formenn ýmissa samtaka, sem ekki voru sjálfsagðari

en fulltrúi Fannannasambandsins, nema síður væri. Þetta fannst sjómönnum heldur hlálegt, og höfðu þeir minnisleysi veislubjóðenda mjög að spotti. Ekki eru nein batamerki sjáanleg hvað minnið snertirhjá þessum ágætu mönnum. Virðast þeir ennþá jafn fáfróðir um "etikéttur" allar og þeir áður voru. Þegar embættistaka fyrsta þjóðkjörna forseta íslenzka lýðveldisins fór fram hnm 1. ágúst 1945 var fjöida manns boðið. I þeim hópi voru meðal annars formenn Verslunarráðsins, Bandalags íslenzkra listamanna, Vinnuveitendafélagsins, Kvenfélagasambandsins, íþróttasambands Íslands og Alþýðusambands Islands. Hinsvegar "gleymdust" sjómannasamtökin eins og fyrri daginn. Forseta Farmanna- og fiskimannasambandsins var ekki boðið. Hvenær fá hinir ágætu fulltúar okkar ráðna bót á minnisleysi" Svo mörg voru þau orð. Og ég skal aldrei trúa öðru en að einhverjir forustumenn sjómanna krefji nv stjórnvöld um að þeirra 423 íslenskra manna sem mistu lífið  á hafinu í þessum hildarleik verði minnst á hin veglegasta hátt á þessum tímamótum Ég veit ekki til að þessi mál hafi verið gerð upp  En "dauðalistinn" lítur svona út:

 

            1939 farast 11    menn af styrjaldarorsökum

            1940   "         58      "       "            "

            1941   "       147      "        "            "

            1942   "         64       "        "            "

            1943   "         43       "        "            "

             1944    "       66       "        "            "

             1945     "      34       "        "            "

              Samtals  "    423      "       "           "


Þessar tölur munu frá Gunnari M Magnús (sem skrifaði "virkið í Norðri") komnar En ég tel Gunar vera öruggustu heimildina um þetta mál En stríðinu fylgdu líka tækifæri fyrir íslendinga. Bretar þurftu á nær öllum sínum mönnum og skipakosti til hernaðar og aðflutninga fyrir aðþrengda eyþjóðina. Þeir voru því reiðubúnir til að greiða vel fyrir íslenskan ísfisk og felldu nú niður tolla sem höfðu verið settir á íslenskan fisk fyrir stríð. Útgerðirnar og íslensku sjómennirnir tóku því tækifærinu fegins hendi þegar góð verð fyrir fisk buðust í Bretlandi íslendingar hófu því að sigla af kappi til Bretlands fulllestaðir af ísfisk.


SÍLDIN GK var svona "týpiskur"fiskflutningabátur þess tíma Og sennilega líka hægt að kalla hleðsluna "týpiska" fyrir umræddar siglingar. En þarna er báturinn undir síldarhleðslu


                                                                                                              Mynd skönnuð úr gamalli bók © óþekktur


Tekið var upp á því að afhausa fiskinn, fækka hillum í lestum skipanna og stækka lestirnar á kostnað kolaboxsins. Þannig gátu íslensku fiskiskipin nærri því tvöfaldað flutningsgetu sina. Um leið og skipið var fulllestað var lýsi og veiðarfærum skipað á land og kol tekin í staðinn. Síðan var stímt á fullri ferð til Bretlands. En eins og gefur að skilja voru fiskiskipin nær ávallt ein á ferð og því auðveld bráð þeim vígvélum Þjóðverja sem fannst taka því að eyða skotfærum á lítil fiskiskipin sem oftast voru komin til ára sinna. Íslensku skipin treystu hins vegar á að hlutleysi landsins myndi vernda þau fyrir árásum og flögguðu stöðugt íslenska fánanum auk þess sem fáninn var málaður á hliðar skipanna og upplýstur að næturlagi til að vekja enn frekar athygli á þjóðemi skipsins


Hér er frægt skip ú fiskflutningum í WW 2 með fullfermi af silfri hafsins að koma til Reykjavík Sennilega á Hvarfjarðarsíldinni 1948 En hleðslan er sennilega svipuð og í fiskflutningunum.

                                                                                                                  © Tryggvi Sigurðsson


Það sýndi sig þó fljótlega að stríðsaðilarnir báru litla virðingu fyrir hlutleysþjóða og þetta varð til þess að 24. Apríl 1943 gaf atvinnu- og samgöngumálaráðherra út reglugerð sem kvað á um samflot fiskiskipa og fiskflutningaskipa sem sigldu á milli Bretlands og íslands að viðlögðum
sektum og missi skipstjórnarréttinda Fiskiskipafloti landsmanna na við upphaf stríðs 615 fiskiskipum stórum og smáum. Þar af voru 36 togarar og 24 línuveiðiskip við árslok 1939. Þessi stærstu fiskiskip okkar voru öll knúin gufu enda flest komin til ára sinna sem fyrr segir. Sömuleiðis höfðum við á að skipa 10 kaupskipum.Frá stríðsbyrjun til loka árs 1945 fórust 94 skip af hinum ýmsu stærðum og af margvíslegum orsökum. Fjöldi togara átti eftir að fækka niður í 28 í 1945 og skipastól landsmanna niður í 38.253 lestir úr þeim 43.050 lestum sem hann var í við árslok 1939. Á móti öllum þessum skakkaföllum vegur hins vegar sú staðreynd að á þessu tímabili var reynt að gera veg innlendrar skipsmíði sem mestan og fjöldi smærri báta var smíðaður. Að auki var eitthvað um það að keypt væru skip til landsins en þau var erfitt að fá og komu bæði í misjöfnu ástandi og komin af léttasta skeiði. Til að átta sig á hversu miklar siglingar íslendinga voru um ófriðarsvæðið þá er gagnlegt að skoða árið 1940. Það ár voru að staðaldri 35 togarar, 6 línuveiðiskip og 6 vélbátar að sigla með ísfisk til Bretlandseyja og að auki sigldu öll 6 skip Eimskipafélagsins þangað. Til viðbótar þessu sigldu mörg kaupskipin til annara landa. Gera má ráð fyrir að um 1000 sjómenn hafi að staðaldri siglt um hafsvæði sem lýst höfðu verið hernaðarsvæði það árið.Fyrstu íslendingarnir sem fórust í WW 2 voru 3 sjómenn á norska flutningaskipinu BISP sem skotið var niður þ 23 jan 1940 Hér má sjá allt um slysið.Fyrsti íslenski  styrjaldar skipstapinn varð þegar togarinn BRAGI RE275 var sigldur niður úti fyrir Fleetwood þ.30 okt 1940 10 menn fórust en 3 björguðust Hér má lesa nánar um það slys Fyrsta íslenska kaupskipið sem varð styrjöldinni að bráð var Es HEKLA sem var skotin niður 29 júni 1941 Og með henni14 sjómenn 6 björguðust Hér má lesa um það Eitt átakannlegasta ( Öll voru þau það að vísu) slysi var árásin á FRÓÐA 11mars 1941. Hér má lesa um það Mesti mannskaði á styrjaldar árunum var þegar vélskipið Þormóður ferst 18 febrúar 1943. En í því fórust 31 maður (þarna var vafamál hvað skeði Sumir héldu fram að skipið hefði rekist á tundurdufl En margt bendir til annars ) Hér má lesa meir um það Svo meira hér Einnig þegar togarinn MAX PEMBERTON sem fórst 11 janúar 1944 og með honum 29 menn. Íslendingar eiga þann vafasama heiður að hafa átt minnsta skip sem þýskir kafbátar sökktu HÓLMSTEIN

Togarinn MAX ÐEMBERTON



Mesta manntjón á kaupskipi varð þegar Es Goðafossi var sökkt Hér má lesa um það  Síðasti skipstapi íslendinga í WW 2 var þegar Fjölnir ÍS 7 var sigldur niður af bresku kaupskipi 9 apríl 1945 
Fjölnir IS 7 var einn þeirra báta sem stunduðu þessar siglingar frá byrjun stríðsins klakklaust þar til að hann lenti í árekstri við írska póstskipið LARIDS CROW síðasta stríðsárið Eða þ 09-04-1945  Með skipinu fórust 5 menn.

FJÖLNIR ÍS 7
 

                                                                                                             Mynd skönnuð úr gamalli bók © óþekktur

Lítum í Morgunblaðið þ 12--04-1945

Pálmi Jóhannsson

LARIDS ISL systurskip LARIDS CROW

 

                                                                                                                                   © photoship

Við tilbúning þessarar færslu em mikið stuðs við grein Skúla Snælands sagnfræðings í 4 tbl Sjómannablaðsins víkings 2003

 
Lokað fyrir álit

07.05.2015 17:07

Dettifposs IV

Ég lofaði í gær meiru um þetta skip sem í íslenskri eigu hét Dettifoss og var fjórða skip Eimskipafélags Íslands með þessu nafni

DETTIFOSS

                                                                                                             © Paul Morgan (simonwp)

Skipið var smíðað hjá Sietas í Neuenfelde Þýskalandi 1982 sem: ILSE WULFF  Fáninn var: Þýskur Það mældist: 3902.00 ts, 7750.00 dwt. Loa: 106.50. m, brd 19.00. m Skipið hefur gengið undir þessum nöfnum: 1986 CONVOY RANGER - 1987 ILSE WULFF - 1987 RACHEL BORCHARD - 1991 DETTIFOSS - 2000 TINA - 2013 RAWAN 2014 PAPA JOY Nafn sem það ber í dag undir fána Belize

DETTIFOSS

                                                                                                                  © Frits Olinga-Defzijl


                                                                                                        © Frits Olinga-Defzijl

Hér heitir skipið TINA

                                                                                                                                   ©  Hannes van Rijn


                                                                                                                              ©  Hannes van Rijn


                                                                                                                                 ©  Hannes van Rijn

Lokað fyrir álit

06.05.2015 20:57

Gömul skip

Hér eru myndir frá breskum  rafpóstvini  af gömlum íslenskum skipum sem þangað sigldu auk ein leiguskips

BAKKAFOSS IV

                                                                                                             © Paul Morgan (simonwp)

Þessi BAKKAFOSS var IV skipið hjá Eimskipafélagi Íslands með þessu nafni En skipið þjónaði félaginu frá1987-2002. Í eigu þess frá 1994-2002 Skipið heitir í dag AFRICA B og er undir fána Panama Hér má lesa meir um skipið

BRÚARFOSS III

                                                                                                                          © Paul Morgan (simonwp)

Þetta skip var þriðja skipið hjá Eimskip með þessu nafni kaupir skipið 1988 Hér má lesa sögu skipsins

DETTIFOSS IV

                                                                                                             © Paul Morgan (simonwp)

DETTIFOSS IV var í eigu Eimskipafélags Ísl frá 1990-2000 Skipið siglir í dag undir fána Belize og heitir PAPA JOY Það kemur meir um þetta skip bráðlega

DÍSARFELL III

                                                                                                                © Paul Morgan (simonwp)

Hér má lesa meir um skipið


Leiguskipið DORADO

                                                                                                                 © Paul Morgan (simonwp

                                                                                                                      © Paul Morgan (simonwp

Hér má lesa meira um skipið

Lokað fyrir álit

04.05.2015 16:28

Wind Surf

Þetta skip WIND SURF var til umfjöllkunar á einni sjónvarpsrás "Discovery" um daginn. Ég legg það hvorki á enskukunnáttu mína eða götótt minni að reyna að endursegja það sem þar var sýnt En læt þetta sem sést á síðunni nægja hvað skipið varðar

WIND SURF

                                                                                                                              © Marcel & Ruud Coster

                                                                                                                               © Marcel & Ruud Coster

Hérna má lesa ýmislegt um skipið sjálft

                                                                                                                                   © Marcel & Ruud Coster


                                                                                                                              © Marcel & Ruud Coster


                                                                                                                        © Marcel & Ruud Coster

Hér má lesa meira um skipið og einnig hér
Lokað fyrir álit

03.05.2015 20:13

Karl

Margir kannast við þetta skip Sem í dag heitir KARL og siglir aðallega á suðrænum slóðum. En sem er eftir mínum gögnum í eigu svía. Þessar myndir fékk ég frá frönskum vini En myndirnar eru teknar í Brest

KARL

                                                                                                                                   © Michel Floch

Skipið var smíðað hjá Fosen MV í Fevåg Noregi 1974 sem Vela Fáninn var norskur Það mældist: 492.0 ts, 1118.0 dwt.  Loa: 76.00. m, brd: 13.50. m Skipið hefur gengið undir þessum nöfnum: - 1984 HEKLA - 1992 BURFELL - 1993 KATLA - 1993 NOUR HAN - 1995 LENA - 2002 BARÖY. 2010 Karl  Nafn sem það ber í dag undir fána St.Kitts and Nevis

Karl

                                                                                                                        © Michel Floch


                                                                                                                                   © Michel Floch


                                                                                                                                © Michel Floch


                                                                                                                                  © Michel Floch

Lokað fyrir álit

30.04.2015 15:23

Urriðafoss II

Þetta skip var á "þurrleigu" og síðan í eigu Eimskipafélagi Íslands á árunum 1985 -1991. En til landsins hafði það verið keypt 1984 af Nesskip

Hér heitir skipið  ESTERBOGEN

                                                                                                               © Peter William Robinson

Skipið  var smíðað hjá Sietas Neuenfelde 1972 sem ESTERBOGEN  fyrir þýska aðila Það mældist:999,0 ts 2463, 0 dwt. Loa:88,50 m 13,80.m.1975 fær skipið nafnið SCOL UNIT 1978 ESTERBOGEN  Og 1984 kaupa Nesskip skipið og skíra VESTURLAND Eimskip taka skipið í langtímaleigu 1985 og skíra URRIÐAFOSS Það er selt úr landi 1991 og fær nafnið STEVNS SEA, 2002 nafnið SEVEN SEAS 2005 MAHMOUD H. 2006 SEA QUEEN og 2007 SERINE Nafn sem það bar síðast undir fána Antigua & Barbuda En skipið var rifið í Aliaga í apríl 2013

ESTERBOGEN

                                                                                                         © Peter William Robinson

Hér sem URRIÐAFOSS

                                                                                                                    ©  Patrick Hill

                                                                                                                                     Hér sem STEVNS SEA


                                                                                                @Chris Cartwright

Lokað fyrir álit

28.04.2015 19:08

Laxfoss III

Þessi þjónaði Eimskipafélagi Íslands á árunum 1982-1985

CITY of HARTLEPOOL

                                                                                                                           © Capt.Jan Melchers

Þriðja skip Eimskipafélagsins sem bar nafnið LAXFOSS var smíðað hjá Appledore SB í Appledore Englandi 1979 sem CITY of HARTLEPOOL fyrir þarlenda aðila 1979. Það mældist 1599.0 ts 4352.0 dwt Loa: 104.20 m brd: 16.80. m  Eimskipafélag Íslands tekur skipið á tímaleigu 1982 Leigu skipsins var breitt í þurrleigu 1984 og skipið fær nafnið Laxfoss Skipinu var skilað til eigenda 1985 og fær nafnið CITY OF MANCHESTER  2007 nafnið CITY  2008 ZEELAND - 2009 GOLDEN BAY nafn sem það bar síðast en það var rifið í Bangladesh (Chittagong) 2011


Hér heitir skipið CITY OF MANCHESTER 



                                                                                                                                                                 © BRIAN FISHER


Hér CITY

                                                                                                                                © Will Wejster

Hér GOLDEN BAY

                                                                                                                             © Will Wejster


                                                                                                                                       © Will Wejster

Lokað fyrir álit

28.04.2015 12:27

Goðafoss VI

Í júni n.k á þetta skip sem nú ber nafnið GOÐAFOSS 20 ára afmæli.Sem sagt "Date of completion: 12-06.1995" Það hefur nú þjónað Eimskip dyggileg í 15 ár. En ekki hafa þó þessi 15 ár gengið áfallalaust. En engin ástæða til að rifja það upp nú. En maður er samt stundum hugsi yfir tryggð Eimskipafélags Íslands seinna Eimskip við þetta nafn, Fyrsti skipstapi  hins, til þess að gera nýstofnaða félags var tengt þessu nafni. Og annað skipið sem nafnið bar hlaut ennþá grimmilegri örlög. En hvað um það, það verður öruggleg "vöfflukaffi" um borð i þessu skipi í júni

GOÐAFOSS VI

                                                                                                                                          © Pilot Fran

Skipið var smíðað  hjá Örskov Christensens í Frederikshavn Danmörk 1995 sem: KIRSTEN SIF Fáninn var: DIS Það mældist: 14664.0 ts,  17042.0 dwt. Loa: 165.60. m, brd 27.30. m Skipið hefur gengið undir þessum nöfnum: 1995 TRSL CONCORD - 1997 MAERSK QUITO - 2000 GODAFOSS Nafn sem það ber í dag undir fána  Antigua and Barbuda

GOÐAFOSS VI

                                                                                                                                          © Claus Schaefe


                                                                                                                           © Claus Schaefe


                                                                                                                             © Claus Schaefe


                                                                                                                  © Claus Schaefe


Lokað fyrir álit

25.04.2015 15:23

Írafoss ex Keflavík

Nú verður maður að dramatíkera svolítið. Til er stórt flagð sem manna á millum er nefnd flensa. Við þetta flagð háði ég tvær orustur nýlega. Komst sæmilega frá þeirri fyrri en djöfullega frá þeirri seinni. Nei nú er dramatíkin að ná yfirhöndinni svo ég kem mér beint að efninu. Ég er að rísa upp úr flensukasti no 2 og ekki var það til að bæta geðheilsuna að á sama tíma þurfti ég að ganga í gegn um úthreinsanir vegna maga og ristilspeglana. Síðan virðist eiga það sameiginlegt við Landeyjahöfn að vera meira og minna lokuð yfir veturinn. Jæja að öllum fíflagang loknum Og komum okkur að verki

KEFLAVÍK var fyrra nafn þessa skips hérlendis



                                                                                                                                 @Rick Cox


Skipið var smíðað hjá Svendborg Skibsværft Svendborg Danmörk 1978 sem CHARM Það mældist 1599 ts 3860 dwt. Loa:94,20 m brd:15.40 m Skipafélagið Víkur kaupa skipið 1982 og skírir það KEFLAVÍK með heimahöfn í Vík í Mýrdal, ef mig misminnir ekki. Áður en Víkur kaupa skipið lenti það í árekstri við BERGLIND skip í eigu Eimskip með þeim afleiðingum að BERGLIND sökk. Eimskip yfirtekur skipið 1989 og gefur því nafnið ÍRAFOSS.Skipið er selt til Noregs 1997 og gekk síðan undir þessum nöfnum: 1997 AASFJORD - 1911 ALTAIR Nafn sem það ber í dag undir Panamafána

Hér sem ÍRAFOSS

                                   
                                                                                                                                                  @Rick Cox

                                                                                                                                   @Rick Cox
Hér sem Aasfjord

                                                                                                                                                                                 @ humbertug


Hér heitir skipið ALTAIR


                                                                                                                                        © Joao. Viana

 

                                                                                                                             © Joao. Viana


Lokað fyrir álit

16.04.2015 02:37

Freya

Þessi littla "Sietas bygging" vakti athygli mína,kannske út af þriðja nafninu sem hún bar FREYA. En svo athugar maður það að þetta er þekkt nafn úr fortíðinni. Og sennilega mjög svo hjá þjóðverjum.Að vísu vantar j-ið svo við gætum eignað okkur nafnið Mér segir svo hugur að þetta hafi verið létt skip að vinna á

Hér heitir skipið REINBEK


                                                                                                                © Peter William Robinson

Skipið var smíðað hjá  Sietas í Neuenfelde  Þýskalandi 1964 sem: REINBEK  Fáninn var: þýskur Það mældist: 499.00 ts, 1155.00 dwt. Loa: 66.10. m, brd 10.60. m Skipið gekk undir þessum nöfnum:1981 ANNA-H. - 1985 FREYA - 1990 ANA MERCEDES  Nafn sem það bar síðast undir fána Jamaica En skipið fórst á 13°53´05 N og 068°48´02 V. Þ 19-03-2000 Á leiðinni frá Cumarebo (Venezuela) til Corpus Christ (USA) með sement

Hér ANNA-H.

                                                                                                                                              © Rick Cox


                                                                                                                        © Peter William Robinson


                                                                                                             © Peter William Robinson

Hér FREYA

                                                                                                                      © Peter William Robinson


                                                                                                           © Peter William Robinson


                                                                                                                               © Peter William Robinson
Lokað fyrir álit

15.04.2015 22:21

Rússi brennur

Morgunblaðið segir í kvöld frá að rússneski togarinn Oleg Neyd­enov.
hafi brunnið og sokkið við Canaríeyjar Er þetta ekki samskonar skip og Engeyjan var Og brann ekki systurskip hennar í Færeyjum  og hafa ekki brunnið að minnsta kosti einn ef ekki tveir aðrir af þessari gerð brunnið.Eða er minnið að bregðast mér svona hrapalega
Lokað fyrir álit

15.04.2015 17:46

INGER THOLSTRUP

Einhvernveginn brýst það um í hausnim á mér að þetta littla skip hafi komið hingað til lands hér í den. Eða er ég að rugla því saman að ég hafi sé það í Færeyjum nokkrum sinnum En hvað um það, brúin minnir mann svolítið á gamla DRANG

INGER THOLSTRUP

                                                                                                                       © Handels- og Søfartsmuseets.dk


Skipið var smíðað hjá Svendborg Skibsværft & Maskinbyggeri A/S. í Svendborg Danmörk 1956 sem: INGER THOLSTRUP  Fáninn var: danskur Það mældist: 211.00 ts, 129.00 dwt. Loa: 33.78. m, brd 2.63. m Skipið gekk aðeins undir tveimur nöfnum: En 1964 var það selt til Chile og fékk nafnið  POLARGAS.Nafn sem það bar síðast undir fána Chile


INGER THOLSTRUP

                                                                                                                  © Handels- og Søfartsmuseets.dk


                                                                                                               © Handels- og Søfartsmuseets.dk



                                                                                                       © Handels- og Søfartsmuseets.dk 



                                                                                                                © Handels- og Søfartsmuseets.dk

Lokað fyrir álit

14.04.2015 21:35

Kronprins Olav

Kronprins Olav komst hér á blað í gær En saga hans í Íslandssiglingum var frekar stutt En hér má lesa sögu skipsins


KRONPRINSE OLAV


                                                                                                                    © Handels- og Søfartsmuseets.dk

Skemmtilegt útfærsla á bílalyftuni Í KRONPRINSE OLAV
                
                                                                                                             © Handels- og Søfartsmuseets.dk                                                                                                                                                            
Lokað fyrir álit

12.04.2015 18:42

YUKI HANSEN

Þ 13/4. 1965 var þessi frétt að sjá í Mogganum En í greininni er greint frá því að vegna þess hve lítið lestarrými hafi verið í KRONPRINS OLAV sem kom í Íslands-siglingar í stað DRONNING ALEXANDRINE,þá hafi verið nauðsynlegt að fá skip í vöruflutningana




YUKI HANSEN


                                                                                                                                   © T.Diedrich

Skipið var smíðað hjá De Groot & Van Vliet í Slikkerveer í Hollandi 1964 sem:YUKI HANSEN  Fáninn var: danskur Það mældist: 455.00 ts, 743.00 dwt. Loa: 59.70. m, brd 9.30. m Skipið gekk undir þessum nöfnum:1966 IBERIAN - 1970 YUKI - 1974 RABUNION III Nafn sem það bar síðast undir fána Líbanon En skipinu hlekktist á 39°09´0 N og 025°53´0 A þ 07-92-1986 á leiðinni frá Beirut til Constanta í ballest og var rifið í Líbanon upp úr því.


YUKI HANSEN


                                                                                                                      © Peter William Robinson

Hér heitir skipið IBERIAN


                                                                                                                                                © Rui Amaro

Og hér YUKI


                                                                                                                                     © Rick Cox



                                                                                                                               © Peter William Robinson

Casualty report from IHSF:STRANDED ON ROCKS OFF LESVOS ISLAND, IN LAT. 39 09 02N., LONG. 25 53 00E., ON 7/2/86 IN HEAVY WEATHER. BROKEN UP IN SITU. ALL CREW MEMBERS RESCUED BY HELICOPTER & TAKEN TO LESVOS. HOLDS FLOODED UP TO TWEEN DECK WITH SEAWATER & GASOIL, E.R. & STEERING GEAR FULLY FLOODED. (S) SIDE BOTTOM SHELL HOLED IN TWO LOCATIONS FWD FROM AMIDSHIPS IN WAY OF BILGE STRAKE ABOUT 1500 MM BY 1300 MM & 1600 MM BY 800 MM, (S) BILGE KEEL PARTLY BENT, TOW CRACKS FOUND ABOUT 1 M FROM BOW BAR AFT BY THE (S) SIDE ABOUT 600 MM BY 450 MM RESPECTIVELY, SKEG PARTLY MISSING. (Cargo Status Ballast)


Lokað fyrir álit
Flettingar í dag: 3791
Gestir í dag: 84
Flettingar í gær: 0
Gestir í gær: 0
Samtals flettingar: 193884
Samtals gestir: 8228
Tölur uppfærðar: 14.3.2025 16:28:43
clockhere