Færslur: 2010 Júlí
03.07.2010 19:59
Hafnsögumenn
http://fragtskip.123.is/flashvideo/viewvideo/23437/
03.07.2010 15:56
Gamli tíminn
@Torfi Haraldsson
Hérna orðin grár á siglingu undan Sikiley 1989
@Óli Ragg
Hér í bræluskít
@ photoship
Hér á endastöðinni. Í fjörunni við Peterhead
@ Jim Pottinger
03.07.2010 15:34
Lafir enn
Leyfar af lægðinni hangir enn á svipuðum stað Gefur okkur í Eyjum sól en það rignir á Hornfirðinga
02.07.2010 20:25
Kvöldrúnturinn
Keisarinn ( Pétur mikli) sjálfur var kominn til að hvíla sig með vinkonu sinni og hálfgerða "kollega" Perlunni. Hann hefur fengið sína kynningu hér á síðunni
Þessi glæsisnekkkja sem heitir LEONORE með heimahöfn George Town. Ekkert flagg eða frekari upplýsingar
Svo er það næststærsta farþegaskip Vestmannaeyja ??? Víkingur. Byggður°í Hafnarfirði 1989 18.90.ts Loa: 14.94.m brd: 3,78 m Tekur 50 farþega Eigandi Guðmunda ehf Vestmannaeyjum
02.07.2010 19:21
Wilson, Green og Samskip
Þeir lágu 2 fyrir utan Eiðið í morgun. Annað skipið sýndist mér nú vera Green Ice sem hefur verið hér nokkra daga. Hinn er Wilson skip sem ég hef ekki náð nafninu á. En mér finnst það vera lestað og þá sennilega með salt. En nafnið og erindið kemur seinna
Svo var það annar "snyrtipinni" Samskipa Arnarfell sem hingað kemur reglulega að yfirgefa Eyjar í dag með eitthvað af þeim afurðum sem hala inn tekjum um 13 miljóna $ á dag. Sjómenn og afurðir sem þeir afla og flytja komin aftur í tísku. Sama hvað sumir menningarpostular í vissu póstnúmeri sem ekki þola fisklykt eða þá menn sem ég var að tala um, segja.
01.07.2010 21:57
Langur foss og silfrað vatn
Silver Lake ex Langfoss er hér búinn að lesta frosið ú Huginn og Gandí
Perlan bíðu af sér veðrið oh hvílir þreyttar legur, dælur og menn