Færslur: 2014 Maí

31.05.2014 14:54

Sjómannadagur

Eitt af þjóðskáldunum kvað: "Föðurland vort hálft er hafið / helgað þúsund feðra dáð./ Þangað lífsbjörg þjóðin sótti, /þar mun verða stríðið háð" Íslendingar hafa verið farmenn frá fyrstu tíð. Land okkar er eyja, skilin frá öðrum löndum af miklum höfum, og vegna þessarar legu landsins hafa sjóferðir og sjómannsstörf verið nauðsynlegur og þýðingarmikill þáttur í lífsbaráttu þjóðarinna. Hið mikla og mislynda haf var lengi vel eini vegurinn til annara landa. Sjómannastéttin er svo mikilvægur þáttur í íslensku þjóðlífi,og hefir lagt svo stóran skerf til framleiðsíu landsmanna, að það geta ekki talist neinar firrur, þó að einn dagur á ári sé helgaður henni





Öll þjóðin stendur í þakklætis skuld við þessa stétt og hún á vissulega ekki telja eftir sér að minnast hennar á þessum hátíðisdegi. Saga bernsku íslensku þjóðarinnar er jafnframt saga mikilla sæfara. Manna sem ekki létu sér allt fyrir brjósti brenna.Manna sem ekki létu hættur eða erfiðleika hindra för. Störfum íslensku sjómannanna má í höfuðatriðum skipta í tvennt.væri allt í lagi  Og þótt margt sé þeim mótlægt nú um stundir Sumir þeirra vinna að því, að flytja að landinu þann varning, sem þjóðin kaupir frá öðrum löndum, og flytja framleiðsluvörur landsmanna á erlenda markaði. Aðrir, og þeir miklu fleiri, eru fiskimenn. Fyr á tlmum, þegar svo að segja öll þjóðin bjó I sveitum, var ekki til hér á landi sérstök fiskimannastétt. Þá stunduðu menn jöfnum höndum landbúnað og fiskveiðar.

Þegar ölduhæð er mikil á úthöfunum getur farið svona

                                                                                                                    © Chris Howell

Menn fóru til sjóróðra úr sveitunum á vissum árstíðum og heim aftur að lokinni vertið.Íslenskir farmenn sigldu í tugi ára undir fána  sinnar eigin þjóðar. Í frumbernsku Íslenska fullveldinu  báru þeir þetta unga, áður óþekkta fullveldismerki og litlu þjóðinni, sem það tilheyrði gott vitni á heimsins höfum og í erlendum höfnum En "nú er Snorrabúð stekkur" hvað þetta varðar Þingmenn núverandi og fyrrverandi ættu hreinlega að skammast sín fyrir áhugaleysi sitt gagnvart sjómönnum þessa lands.


CONVAR aus EXT11056                                                                    ©  Dierk Bauer

Sérstaklega þeim sem á kaupskipum starfa.Stærsti hluti skipa sem eru í siglingum til landsins eru með erlendum áhöfnum Öllum þingheim nákvæmlega sama Einn af ráðherrunum átti þátt í því í vetur ásamt skoðanabræðrum sínum á Alþingi að svifta sjómenn sjálfsagðasta rétti sínum, réttinum til að semja sjálfir um kaup sitt og kjör eins og frjálsir menn. Sjómenn ættu hreinlega að banna alþingismönnum og ráðherrum að koma í ræðustóla þennan eina dag sem þeir virðast muna eftir þeim. Og þá vantar ekki vaðalinn. "Hetjur hafsins" og bla bla Íslenski sjómaðurinn á  skilið viðurkenningu frá þjóð sinni og ráðherrum hennar ekki aðeins í orði, heldur einnig á borði



CONVAR aus EXT10983                                                                    ©  Dierk Bauer

Það er sárara en tárum taki að nú sé þannig komið fyrir þessari þrautseigu og duglegu þjóð að nokkrir smærri ófyrirleitnir spákaupmenn skulu hafa sogið sig fasta á velferð hennar atvinnumöguleika og aðrar undirstöður svo að það mun taka áratugi að bæta skaðan.Það eru dimm óveðurský á lofti sjómannsins.og djúp lægð á leiðinni Og ísköld skil sem fylgja henni að leggjast yfir kaupskipa sjómennina 
                                            
CONVAR aus EXT10966
                                                                                                  ©  Dierk Bauer


Meinsemd núdagsins liggur ekki í of góðum kjörum þeirra sem vinna erfiðustu verkin. Hún liggur ekki í kjörum sjómanna. Hvar hún liggur  vita þeir  sem vilja vita það. Það mætti segja mér að þeir fáu farmenn sem eftir eru séu með lægri laun en starfsbræður þeirra sem sigla undir "réttum" fánum á Norðurlöndunum

                                            
CONVAR aus EXT10965                          
                                                                                                    ©  Dierk Bauer


Flesti gamlingar muna orð Winston Churchill þegar hann sagði:" Never in the field of human conflict was so much owed by so many to so few" Þetta má heimfæra uppá íslenska sjómenn þess tíma.Við erum sem betur fer laus við stríð allavega hér á N- slóðum nú um stundir.Hafið sjálft ströndin og eldurinn eru höfuð óvinir nútíma sjómanns.Þrátt fyrir alla nýmóðins tæki ske slysin með þessi þrjú atriði sem aðalhöfunda

                                            
CONVAR aus EXT10968                                                                                                     ©  Dierk Bauer

Ekki má halda Sjómannadaginn hátíðlegan án þess að minnast Sjómannskonnunnar. Sem ástundum beíð milli vonar og ótta eftir að heyra af afdrifum manna sinna Og gerir stundum enn: "Hún situr hljóð og horfir út /með hjartað þreytt af kvíða./ Það er svo langt - það er svo strangt / að elska, sakna og bíða/  Ekki veit ég hver orti, en þetta orti Lilja Björnsdóttir :  "Að elska og sakna, að vaka og vona,/ og vinna í trausti á kærleikans mátt,/ alltaf mun sjómannsins ástríka kona/ í einrúmi leika hinn sorgbljúga þátt." 

                                            
CONVAR aus EXT10964                                                                                                        
©  Dierk Bauer
Svo er bara að taka lífinu létt þennan dag og láta ekki hundleiðinlega stjórnmálamenn spilla deginum og syngja með
mhttp://fragtskip.123.is/flashvideo/viewvideo/23136/ Íslenskir sjómenn ég óska ykkur til hamingu með daginn Standið þéttir að baki ykkar félagslegu forustumenn og munið  að:"Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér" á alltaf við meðan nokkurt  stéttarfélag starfar
Lokað fyrir álit

30.05.2014 15:55

Jafnaldrar

Það er búið að "útrýma" íslenska fánanum úr skut kaupskipa í íslenskri eigu og íslensk tunga á í vök að verjast vegna "talandi tölvna" sem eru á næstu, grösum. Og ef maður talar/skrifar um hollustu við föðurlandið þá fær maður á sig óþverrastimipil.Sama er mér. Mér þykir vænt um fánan okkar og tungumál. Og sjá sumt af þessu fólki sem notar þenna stimpil svo vera að skreyta sig með einhverjum "þjóðbúningum" á tyllidögum finnst mér toppurinn á tvískinnungnum sem oft litar þessa umræðu. Og að eitt af skipafélögum landsins sem "þóttist" um daginn vera hundrað ára skuli fagna sjötíu ára Lýðveldisafmælinu með því að setja einhvert Carabbien flagg í skut nýs skips sem þeir eru að fá hrein móðgun við fólkið í landinu.Við erum að árum jafngamlir Sjómannadagurinn og ég. Þótt ég sé um tveimur mánuðum seinna í árinu.

Súðin aldursforseti kaupskipaflotans 1944 smíðuð 1895


                                                                                   úr mínum fórum © ókunnur

Árið sem við urðum sex ára eða á Sjómannadaginn 1944 sagði þ.v ríkisstjóri Sveinn Björnsson
m.a í ræðu "Viti er öryggismerki, sem mönnum þykir vænt um.En við eigum einnig annað merki, sem er hvorttveggja í senn, öryggismerki og einingarmerki þjóðarinnar. Það er fáninn. Þótt okkur eigi öllum að þykja vænt um þetta tákn einnar og sameinaðrar þjóðar, þá eiga sjómennirnir hér nokkra sérstöðu. Það fellur í þeirra hlut að "sýna fánann" á höfunum og í erlendum höfnum.

Næst elsta skipið í kaupskipaflotanum 1944 var SÆELL smíðað 1896

                                                                           © Handels- og Søfartsmuseets.dk

Þess vegna er okkur svo mikils virði að vita það að við eigum sjómannastétt, sem er þess megnug að "sýna fánann" á þann hátt að jafnan megi segja um skip sem sigla undir fánanum okkar: "Þetta skip og áhöfn þess er íslenskt.Þess vegna má treysta hvorutveggja". Ég hygg, að því ljósari, sem menn gera sér þessa staðreynd, því vænna muni sjómönnunum þykja um fánann, vegna þeirrar ábyrgðar, sem þeim er falin, að halda upp heiðri þessa þjóðartákns okkar, hvar sem íslenzkt far er á ferðinni. Þess vegna á sérstaklega vel við að minnast fánans og sýna
honum virðingu okkar við þetta tækifæri".



Síðan var það svo HERMÓÐUR I smíðaður 1897

                                                                                             Úr mínum fórum © ókunnu


Brynjólfur Jónssons sagði í Fánaræða í kvöldhófi sjómannadagsins 1944 m.a:
"Hver einasta sjálfstæð menningarþjóð virðir fána sinn framar öllum öðrum þjóðlegum verðmætum. Engin þjóðarbarátta er háð, án þess að fáninn sé þar í fremstu víglínu. Enginn þjóðarsigur er unninn, án þess að fánar séu dregnir að hún. Engra sögulegra viðburða er minnst, án þess að flaggstengur séu fánum skreyttar. Enginn staður eða mannvirki er vígt, án þess að fánar blakti þar yfir. Ekkert skip siglir svo um höfin, að það beri ekki merki þjóðar sinnar. Engin þjóðarsorg skeður,svo að ekki séu fánar dregnir í hálfa stöng. Fáninn er merki gleði og hryggðar, tákn sjálfstæðis, menningar og frelsis. Um síðustu aldamót (1899-1900) fóru að heyrast raddir meðal íslensku þjóðarinnar, sem eigi voru áður kunnar, þótt þær að vísu væru skildgetið afkvæmi þeirrar frelsisbaráttu, er hafin var af Jóni Sigurðssyni og fjölnismönnum.

Yngsta skipið 1944 var svo Esja II


                                                                 
                     © Tryggvi Sig


Skáldin kveða kraft og líf í þjóðina með ástþrungnum ættjarðarljóðum. Hinn víðsýni hugsjónamaður, Einar Benediktsson skáld, kemur fram með fánahugmyndina. Með hinu fagra kvæði sínu: "Rís þú, unga íslandsmerki!" hvetur hann íslendinga til baráttu fyrir þjóðarfána, og hreif hann æskumennina, ungmennafélögin og unga menntamenn, svo að þeir gerðust framherjar í þeirri þjóðræknisbaráttu, sem hér var hafin. Því miður verður ekki sagt, að fánamálið hafi átt óskiptan hug þjóðarinnar, þótt svo færi að lokum,að gifta hennar og gott málefni bæri sigur úr bítum, er meirihluti þjóðarinnar sameinaðist um blá-hvíta fánann, tákn himins og hrímþaktra jökla. Þessi fáni fékkst þó ekki viðurkenndur utan íslenzkrar landhelgi. Hlutur sjómannsins var ókominn.

Næst yngsta skipið 1944 var Dettifoss I smíðaður 1930

                                                                                                 Úr mínum fórum © ókunnur


                                                                                                                                                                             
Hann varð ennþá um stund að sigla undir "dönsku flaggi Þótt nokkur hluti þjóðarinnar yrði afskiptur þeirri ánægju, sem frjáls og fagur fáni hlýtur að veita þeim, er með hann fara, þá verður þó aldrei fullþakkaður sá mikli skerfur, sem brautryðjendur fánamálsins lögðu til frelsisbaráttu Islendinga, þar sem hér var fenginn gunnfáni fyrir þeirri baráttu, fáni, sem minnti þjóðina á það markmið, er sett skyldi, og dreginn var að hún daglega, þar til fullur sigur vannst, er þríliti fáninn var lögfestur sem þjóðarfáni árið 1918. Það ár markar tímamót í sögu landsins. Með breyttu stjórnskipulagi og viðurkenningu þjóðfánans skapast nýtt athafnalíf í atvinnu og samgöngumálum.Kaupskipunum fjölgaðí og siglingar frá og til landsins jukust að miklum mun.

Svo var BRÚARFOSS smíðaður 1927
 


                                                                                                   © photoship
Hin dugmikla sjómannastétt sótti ótrauð og ötul fram undir hinu unga íslandsmerki og hóf það til vegs og virðingar meðal erlendra þjóða" Svo mörg voru orð Brynjólfs á Sjómannadaginn 1944 Nú virðist öllum nákvæmlega sama hvaða drusla er á flaggstöngum í skut skipa í íslenskri eigu. Því miður
Lokað fyrir álit

27.05.2014 19:29

Hansa

Ég las í fréttablaðinu í dag um hugsanleg kaup á "hótelskipi" Sem staðsett yrði í Hafnarfirði. Mér finnst þetta persónulega frábær hugmynd. Sumir eldri borgar muna kannske kvikmyndina "Barnacle Bill" þar sem snillingurinn Alec Guinness leikurCaptain William Horatio Ambrose. Enskan sjóveikan sjóliðsforinga (sem komin var af sjóhetjum langt fram í ættum) sem ekki mátti sjá bárufald án þess að kasta upp. Ambrose kaupir skemmtibryggu eins og er/var t.d í Brighton og fleiri borgum á S-Englandi. Hann útbýr bryggjuna eins og skemmtiferðaskip og seldi sjóveiku fólki (sem ekki gat notað sér þægindi skemmtiferðaskipanna) aðgang. Þetta gæti virkað vel í Hafnarfjarðarskipinu. Þarna gætu t.d sjóveikir já eða sjóhræddiir landar með imyndunnaraflið í lagi upplifað "skemmtiferðaskipastemminguna"

HANSA skipið sem um ræðir


 


Hér má lesa meira um skipið


Lokað fyrir álit

25.05.2014 15:25

MARIBO MAERSK

Þessi E-triple skip þeirra hjá Mærst eru engir "smákoppa" Lítum á þetta


                                                                                Mynd af heimasíðu Mærsk samsteypunnar © ekki getið


                                                                 Mynd af heimasíðu Mærsk samsteypunnar © ekki getið

Þetta er ekkert flókið?.Eða hvað? Séð aftureftir á einum

                                                                                  Mynd af heimasíðu Mærsk samsteypunnar © ekki getið


Þetta er eitt af nýjustu skipum samsteypunnar MARIBO MAERSK Það mun vera sjöunda skipið í þessari seríu Það áttunda er komið í notkun og það aníunda er að komast í hana. Sjá nánar í áliti Önnu Kristjánss

                                                                                                                                    © Hans Esveldt

Skipið var smíðað hjá Daewoo Shipbuilding & Marine Engineering í Okpo S-Kóreu 2014 sem: MARIBO MAERSK  Fáninn var:danskur Það mældist: 194849.0 ts, 194431.0 dwt. Loa: 399.00. m, brd 59.00. m Skipið hefur aðeins gengið undir þessu eina nafni og fáninn er sá sami

MARIBO MAERSK

                                                                                                              © Hans Esveldt


                                                                                                                       © Hans Esveldt


                                                                                                             © Hans Esveldt


                                                                                                         © Hans Esveldt


                                                                               © Hans Esveldt

Lokað fyrir álit

24.05.2014 12:54

Geysir

Góður sveitungi Hilmar Helgason stm vakti athygli mína á þessu skipi  Geysir sem einu sinni var í þjónustu hjá Atlantsskipum Þessi dallur sem lenti hérlendis oftar en ekki í útistöðum við Siglingamálastofnu er enn að sigla á N-Atlantshafinu Og er að þessum orðum skrifuðum á leið frá Varberg til  North Carolina. Eitthvað hlítur ástandið vera skárra á skipinu því að virðist sigla á rútu USA,Portúgal,Svíþjóð. Þótt fyrstnefndu löndin sjái kannske eitthvað í gegn um fingur sér með útbúnað skipa held ég að svíar séu harðir í horn að taka hvað það varðar

Hér sem RAINBOW HOPE


                                                                           © Markús Karl Valsson

Skipið var byggt hjá Equitable Eqpt Shipyard, Inc í Madisonville USA 1980 sem  AMAZONIA Fáninn var USA Það mældist: 983.0 ts, 2000.0 dwt. Loa: 90.10. m, brd: 13.70. m Skipið hefur gengið undir þessum nöfnum 1984 RAINBOW HOPE - 1999 JUNO - 2000 GEYSIR Nafn sem það ber í dag undir sama fána


Hér sem Geysir
                                                                            © Arne Luetkenhorst


                                                                              © Arne Luetkenhorst

                                                                       © Manuel Hernández Lafuente


                                                                       © Manuel Hernández Lafuente



                                                                                              d af Marine Traffic.com © sést á henni


                                                                                                                                                                   Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni


                                                                                                        Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni


Hér má sjá sjá videóklipp frá einni ferð skipsins Og hérna má lesa meir um skipið

Lokað fyrir álit

23.05.2014 17:33

Hver er þetta???

Skipið sem spurt var um hét ELIZA HEEREN og var þýskt. og var í leigu bæði hjá Eimskipafélaginu og Hafskip.1984 Og málið var um fálkaeggjaþjófinn Miroslav Peter Baly,sem tókst að flýa land sem laumufarþegi með skipinu í júni sama ár En þá var skipið á vegum Hafskip

ELIZA HEEREN

                                                                                                            © Frits Olinga-Defzijl


Skipið var smíðað hjá Brand í Oldenburg Þýskalandi 1981 sem:ELIZA HEEREN  Fáninn var:þýskur Það mældist: 999.0 ts, 2347.0 dwt. Loa: 79.70. m, brd 14.00. m Skipið hefur gengið undir þessum nöfnum:1986 AKAK SUCCESS - 1986 ELIZA HEEREN - 1995 BALTIC BRIDGE - 1997 BOXTER - 2004 VERONIKA GOKOTI - 2005 VERONIKA - 2005 OLGA - 2010 RANYUS A. - 2010 RANYUS I - 2013 YAZ Nafn sem það ber í dag undir fána Sierra leone



ELIZA HEEREN

                                                                                           © Frits Olinga-Defzijl

Hér sem OLGA

                                                                                                       Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni

Hér sem RANYUS A.

                                                                              Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni


Hér sem RANYUS I

                                                                                              Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni

Lokað fyrir álit

23.05.2014 17:08

POONA

þann 17 júlí 1971 varð sprenging í flutningaskipi Ø.A, ( A/S Det Østasiatiska Kompagni í Kaupmannahöfn) POONA þegar það var að lesta í Gautaborg Einn áhafnarmeðlimur og þrír hafnarverkamenn fórust.


                                                                                                       © Handels- og Søfartsmuseets.dk

Eitthvað á þessa leið sögðu sænsku blöðin frá atburðinum:" Branden berodde på att man lastat tidigare 36 ton natriumklorat, samt 600 ton rapsolja och nu skulle lasta tunga stålbalkar som kom i svängning när man skulle fira ner dom och slog hål i en tunna av varje typ, samt en balk gled på däcket som fixade gnistor som satte eld på en blandning av olja och klorat. Efter några minuter vart det fler explosioner i snabb följd och vissa var så kraftiga att tunga lastluckor kastades ner på kajen"




                                                                                         © Handels- og Søfartsmuseets.dk

Skipið var smíðað hjá Deutsche Werft í Finkenwarder í Þýskalandi 1952 sem POONA Fáninn var:danskur Það mældist: 8607.0 ts,10200.0 dwt Loa: 146.30. m, brd 18.60. m Skipið  gekk aðeins undir þessu eina nafni og fáninn var sá sami Endalokin eru skrifuð hér að ofan En það var ekki fyrr en 19 júlí 1971 að eldurinn var endanlega slökktur Skipið var svo rifið í Gautaborg seinna sama ár 


                                                                        © Handels- og Søfartsmuseets.dk


                                                                  © Handels- og Søfartsmuseets.dk


                                                                           © Handels- og Søfartsmuseets.dk



                                                                                           © Handels- og Søfartsmuseets.dk

Hér er svo videoklipp frá brunanaum
Lokað fyrir álit

22.05.2014 19:12

SALOOS

Þegar ro-ro-flutningaskipið SALOOS kom þ 15 maí á ytrihöfn Cabinda (hafnarborg í Angóla,V-Afríku) var það með töluverða bb slagsíðu.En skipið var að koma frá
Pointe Noire í Congo Skipshöfnin yfirgaf skipið fljótlega. Þetta endaði svo með að skipinu hvoldi á aðfaranótt.Um borð voru 155 gámar með allslags varningi. Sumum hefur skolast á land og innfæddir látið greipar sópa um innihald. Stundum án þess að hafa hugmynd um ýmis efni sem í þeim voru Orsökin fyrir þessu öllu er enn ókunn


                                                                                                           © Maritime Bulletin

Skipið var smíðað hjá Husumer í Husum,Þýskalandi 1983 sem:CALLISTO  Fáninn var:þýskur Það mældist: 6950.0 ts, 4403.0 dwt. Loa: 107.20. m, brd 20.10. m Skipið hefur gengið undir þessum nöfnum: 1988 JUMBO CALLISTO - 1989 CALLISTO - 1990 TIGER CREEK - 1990 JUMBO CALLISTO - 1994 CALLISTO - 1994 OSTARA - 2004 INDUSTRIAL ACHIEVER - 2011 SALOOS Nafn sem það ber í dag undir Panama fána


Hér er skipið undir nafninu OSTARA

                                                                                                                    © Pilot Frans

Hér undir nafninu  INDUSTRIAL ACHIEVER

                                                                                                                    © Capt Ted


                                                                                                                     © Capt Ted

Lokað fyrir álit

21.05.2014 17:59

Mærsk á góðu flugi

Það gengur vel hjá Mærsk Samsteypunni um þessar mundir Eins og sést hér

Þetta er eitt nýjasta skip samsteypunnar  Majestic Mærsk En það er eitt af skipunum úr Maersk Triple E class. þessir drekar taka 18270 TEU

Majestic Mærsk

                                                        Mynd af Marine Traffic.com © sést á henni

Skipið var smíðað hjá Daewoo Shipbuilding & Marine Engineering í Okpo S-Kóreu 2013 sem: MAJESTIC MAERSK  Fáninn var:danskur Það mældist: 194849.0 ts, 194431.0 dwt. Loa: 399.00. m, brd 59.00. m Skipið hefur aðeins gengið undir þessu eina nafni og fáninn er sá sami

Hér er einn hluti ú skrokk eins af  skipunum úr Maersk Triple E class


                                                                     Mynd af heimasíðu Mærsk © ókkunur

Mærsk Mc-Kinney Møller


                                                                                Mynd af heimasíðu Mærsk © ókkunur

Mærsk Mc-Kinney Møller var fyrsta skipið af Maersk Triple E class gerðinni Og sömu stærðir eru á þessum tveim skipum



                                                                                    Mynd af heimasíðu Mærsk © ókkunur
Lokað fyrir álit

21.05.2014 16:15

BULK TRANS

"Lofið dagsins þreytta barni að sofa" stendur það ekki einhverstaðar?? Svona getur farið fái skipstjórnarmenn ekki nægan svefn

Hér er skipið undir nafninu EIDE JUNIOR

                                                                                                                    © Frode Adolfsen

Skipið var smíðað hjá Krogerwerft í Schacht-Audorf Þýskalandi 1978 sem:ULSNIS  Fáninn var:þýskur Það mældist: 499.0 ts, 1626.0 dwt. Loa: 70.80. m, brd 12.80. m Skipið hefur gengið undir þessum nöfnum:1989 URANIA - 2000 EIDE JUNIOR - 2010 FJORDTOR I 2014 BULK TRANS Nafn sem það ber í dag undir norskum fána

Hér er skipið undir nafninu FJORDTOR I

                                                                                                       © Frode Adolfsen


                                                                                                 © Frode Adolfsen

Hér er meira um þetta strand
Lokað fyrir álit

20.05.2014 18:14

EVER LIVING

Það er ekkert gaman að vera alltaf að velta sér upp úr slysum og þessháttar.Hér má sjá eitt af skipum erkifjanda Mærsk Line, Evergreen Line. EVER LIVING heitir þessi dreki sem tekur um 8500 TEU

EVER LIVING 

                                                                                                                          © Claus Schaefe


Skipið var smíðað hjá CSBC Corp Taiwan í Kaohsiung Taivan 2013 sem:EVER LIVING Fáninn var:Singapore Það mældist: 100254.0 ts, 104409.0 dwt. Loa: 334.80. m, brd 45.80. m Skipið hefur aðeins  gengið undir þessu eima nafni og fáninn er sá sami 

EVER LIVING

                                                                                                                 © Claus Schaefe


                                                                                                                © Claus Schaefe


                                                                                         © Claus Schaefe

                                                                                                           © Claus Schaefe
Lokað fyrir álit

20.05.2014 11:55

Galapaface 1

Þann 9 maí strandaði flutningaskipið GALAPAFACE 1 við  Galapagoseyjar. Einhvernveginn ýtti það ekki við mér. En við nánari athugun skildi ég að þarna var á ferðinni "gamall kunningi Sem kom nokkuð oft hingað til Eyja undir nafninu VIKINg FRIO Neyðarástandi hefur verið lýst yfir vegna 19000 lítra olíu sem um borð eru. En miklar spegúlasjónir eru um hvernig best verði að ná skipinu út. En gat er á vélarrúmmi og er flóð og fjara í því eins og er.Vonandi fær þetta góðan endir. En eins og menn vita er dýralíf og gróður þarna mjög viðkvæmt þarna

GALAPAFACE 1 strandaður við  Galapagoseyjar


                                                                                     © Maritime Bulletin

                                                                                Photo: AFP/GETTY

Skipið var smíðað hjá Ulstein Halto í Ulsteinvik Noregi fyrir þarlenda aðila 1979 sem Norcan Það mældist: 1183.,0 ts 2432,0 dwt. Loa: 81.80 m .,brd; 14,20 m 1994 fær skipið nafnið Green Frio og 2007 Viking Frio 2010 FENJA - 2012 GALAPAFACE 1 nafn sem skipið ber í dag undir fána Ecuador

Hér að koma til Eyja í maí 2010  sem VIKING FRIO Skipið hafði lent í öskufalli frá Eyjafjallagosinu


                                                                                                                       @oliragg



                                                                                                                         @oliragg


                                                                                                          @oliragg


                                                                                                                    @oliragg



                                                                                                                               @oliragg


                                                                                                                    @oliragg

Eyjafjallagosið hafði sett smá svip á forkantinn sem sést vel ef myndin hefur "skannast"vel


                                                                                                                  @oliragg

Hérna er "Víkingurinn" nýr af nálinni


                                                                                                                                @Jan van Oost
Lokað fyrir álit

20.05.2014 10:59

AZZAM

Þetta mun vera stærsta Motor Yachts í heimi.Hún var byggð fyrir Khalifa bin Zayed Al Nahyan forseta United Arab Emirates.Hún mun kosta litlar 605.milljónir US $, ef einhverjir hefðu hug á að kaupa. Ég er byrjaður að telja í buddunni, en næ þessu sennilega ekki fyrir Sjómannadag!!!!

AZZAM

                                                                                                                 © Claus Schaefe

Skipið var smíðað hjá Lurssen í Vegesack Þýskalandi 2013 sem:AZZAM Fáninn var: United Arab Emirates Það mældist: 18000.0 ts, 1800.0 dwt. Loa: 180.00. m, brd 20.80. m Skipið hefur aðeins gengið undir þessu eina nafni og fáninn er sá sami 

AZZAM

                                                                                                              © Claus Schaefe

                                                                                              © Claus Schaefe

                                                                                                   © Claus Schaefe


                                                                                                                  © Claus Schaefe
Lokað fyrir álit

19.05.2014 16:43

Strand við Noreg

Danska flutningaskipið KARMSUND strandaði á laugardagsins um kl 1515 LMT í svokölluðu Langtangensundi 40-50 m frá landi eftir að hafa farið fram hjá Kragerø.

KARMSUND

                                                                                                        © Frits Olinga-Defzijl

Var skipið að koma frá Hirtshals á leið til Oslo með leiðsögumann um borð. Skipið náðist fljótlega á flot lítið skemmt og komst að bryggju í Helle (Kragerø) þar sem gert var við það til bráðabirða. En þaðan mun skipið (kannske komið þangað nú) svo halda til Lindö Danmörk til viðgerðar í Odense Steel Yard (Mærsk)


KARMSUND

                                                                                                   © Frits Olinga-Defzijl

Skipið var smíðað hjá Lothe í Haugesund Noregi 1979 sem: KARMSUND Fáninn var:norskur Það mældist: 499.0 ts,1250.0 dwt. Loa:70.80. m, brd  14.50. m Skipið hefur aðeins gengið undir þessu eina nafni en nú er fáninn færeyiskur 

KARMSUND

                                                                                                      © Frits Olinga-Defzijl


© Frits Olinga-Defzijl


                                                                                              © Frits Olinga-Defzijl

Svona Norðmenn frá strandinu Einnig má sjá meira hér frá atvikinu einnig  hér
Lokað fyrir álit

14.05.2014 16:48

Goðafoss III

Ég hef oft velt fyrir mér tryggð Eimskipafélagsmanna við GOÐAFOSS nafnið Þau voru sorgleg endalok tveggja fyrsu skipanna með þessu nafni. Nú ekki létu E.Í menn þetta hafa áhrif á si. Fyrsta mótorskipið sem þeir eignast fær nafnið þegar það var sjósett 2 nób 1947

Svona sagði Morgunblaðið frá komu skipsins 24 mars 1948



GOÐAFOSS III var smíðaður hjá Burmeister & Wain í Kaupmannahöfn 1948 fyrir Eimskipafélag Íslands Skipið mældist 2905.0 ts 2675 dwt.Loa: 94.70.m brd: 14.10.m Skipið var selt grískum aðilum 1968 og skírt ARIMATHIAN og 1970 fær það nafnið KRIOS. Það sekkur 24-01-1971 á 02°17´N og 029°55´W. Skipið var þá á leið frá Montevideo til Pireus með bæði frosið kjöt og lifandi sauðfé


                                                                                            Mynd úr mínum fórum © óþekktur

Og það blés ekki byrlega fyrir þessu nýja skipi þ 26 mars 1950 lendir það í árekstri á Elbunni Þá á leið frá Hamborg til Gdynia Þoku var um kennt Svona segir Alþýðublaðið frá atburðinum þ 29 mars 1950



Og svona leit stefnið á skipinu út eftir áreksturinn



                                                        Mynd úr mínum fórum © óþekktur

Systurskip ALGOMQUIN VITORY skipsins sem GOÐAFOSS rakst á


                                                                       Mynd úr mínum fórum © óþekktu

Svo leið rúmt ár þá lendir skipið aftur í árekstri á Elbunni nú við dýpkunnar skipið,LADENSAND. Skeði það rétt undan Glückstadt.Slapp GOÐAFOSS lítið skemmdur frá þessu en LADENSAND mun hafa skemmst mikið GOÐAFOSS var á leið frá Hamborg til Antverpen Ástæða þessa áreksturs mun hafa verið að sjálfstýringunni mun hafa verið"kúplað" inn án þess að rétt stefna hafði verið stillt inn

GOÐAFOSS

                                                                             Mynd úr mínum fórum © óþekktur

Þ 15 febr 1957 er skipið statt á Húsavík þegar skellur á óveður Það slitnar frá bryggju og á leiðinni út úr höfninni tekur það niðri og stórskemmir botnin. Gert var við skipið til bráðabirða á Akureyri en til fullnustu í Kaupmannahöfn

Við lestun á frosnum fiski í Eyjum.


                                                                                                                     © tryggvi Sig
Þ 24 febrúar 1961 hlekkist svo skipinu á í Ólafsfirði. Þangað var það að koma til að lesta skreið og fiskimjöl. Var skipstjóra farið að leiðast eftir leiðsögumanninum, en þegar hann sá, að hann var kominn heldur nærri grynningunum vestan við höfnina, bakkaði hann út á fjörðinn aftur og ætlaði að taka stóra beygju frá og
fara lengra út á fjörðinn. Norðnorðaustan strckkingsgola var á, en kvikulaust er þetta gerðist. Er skipstjórinn var að ná beygjunni, hrakti golan skipið upp í sandinn og festist það þar strax í morgun rétt vestan við vestari hafnargarðinn Togarnir STLÉTTBAKUR og HARÐBAKUR drógu svo skipið út lítið eða ekkert skemmt

Hér í New York


                                                                                       Mynd úr mínum fórum © óþekktur
Hér fastur í ís í Finnska Flóanum


                                                                                          Mynd úr mínum fórum © óþekktur
Lokað fyrir álit
Flettingar í dag: 268
Gestir í dag: 19
Flettingar í gær: 6117
Gestir í gær: 267
Samtals flettingar: 196478
Samtals gestir: 8430
Tölur uppfærðar: 15.3.2025 00:39:32
clockhere