Færslur: 2015 Ágúst
25.08.2015 17:15
Vidfoss
VIDFOSS
© Willem Oldenburg
Skipið var smíðað hjá Århus Flydedok í Århus Danmörk 1990 sem
Ice Clipper Það mældist:3652.0 ts 3039.0 dwt. Loa: 92.90 m brd 15.40 1992 fékk skipið nafnið SAN CARLOS PRIDE Og 1993 nafnið ICE BIRD 2014 fær það nafnið VIDFOSS. Nafn sem það ber í dag og er að sjálfsögðu undir fána: Antigua and Barbuda
VIDFOSS
© Willem Oldenburg
© Willem Oldenburg
© Willem Oldenburg
© Willem Oldenburg
Tekið af Wikipedia,© Frokor
Hér heitir skipið ICE BIRD og og var þá statt hér í Eyjum
© oliragg
© oliragg
© oliragg
24.08.2015 19:45
ESSO WINDSOR
Hér heitir skipið ESSO WINDSOR
© photoship
© photoship
Hér er búið að breita skipinu og það hét það þá HOEGH TRADER
© photoship
© photoship
20.08.2015 16:20
Mælifell I
MÆLIFELL I
© Paul Morgan (simonwp)
MÆLIFELL I

Úr safni Óskars Franz @ Ókunnur

Úr safni Óskars Franz @ Ókunnur

@ Graham Moore.
@Graham Moore.
Hér sem LANGELAND
© Sharpnesship
© Patrick Hill
© Yvon Perchoc
Hér sem SCAN TRADER
© PWR © PWR
© PWR
© Sharpnesship
@Henk Kouwenhove
13.08.2015 12:28
Pinta
PINTA
Skipið var smíðað hjá Galati SN í Galat Rúmeníu Fullsmíðað hjá SW van Rupelmonde, Rupelmonde í Belgíu 1995 sem: PINTA Fáninn var: Belgískur Það mældist: 3258.00 ts, 5505.00 dwt. Loa: 89.70. m, brd 18.50. m Skipið hefur aðeins gengið undir þessu eina nafni og fáninn er hinn sami
PINTA
© Will Wejster
© Angel Godar
© Angel Godar
© Angel Godar
09.08.2015 18:07
Saga af skipi
TABRIZ
© photoship
Selt 11/1983: Aegis Comp.Nav.S.A(Bilinder Marin Corp.S.A) Pireus Heldur nafninu Selt1988: Corpus S.A(Inter Trans Sh,Ltd) Kingston ,St.Vincent fær nafnið "SPEEDO" 9/1988: nafninu breitt í "CHAMPION"
4/1989: Selt til Phillipiseyja til niðurrifs hjá Nathani Industrial Services . Ank.Mangalore 1/4-89
TABRIZ
© Rick Cox
© Rick Cox
© Paul Morgan (simonwp)
06.08.2015 21:08
Skipstjórar í árdaga ísl .farmennsku II
WILLEMOES
Mynd skönnuð úr gamalli bók © óþekktur
Þórólfur Beck
Eftir að frkv.slj. E. Nielsen kom heim úr utanför sinni, kvað hann hafa sent Þórólfi Beck tilkynningu símleiðis um það, að hann sé settur af skipstjórastöðunni jafnskjótt og hann hefur skilað »Willemoes« að hafnarbakkanum. Að endingu leyfl eg mér að spyrja: Hvert stefnir réttlætis- og siðferðis-ábyrgð stjórnar Eimskipafélags íslands og framkvæmdarstjóra þess?.Undrritað S. P. S.
Júlíus Júníusson
Svo er það blaðið Frón 13 júlí 1918 "Svofelda skýrslu heflr framkvæmdarstjóri Eimskipafélagsins, sent oss út af grein vorri i síðasta blaði um þetta efni. Hr. ritstj. Grímúlfur H. Ólafsson, Reykjavík. Í heiðruðu blaði yðar, sem út kom þann 6. júlí síðastliðinn, hafið þér skrifað grein með yfirskriftinni: »Eimskipafélagið. Skipstjóraskifti á Villemoes«. Þar eð mér finst, að allmikils misskilnings verði vart viðast hvar í grein þessari, leyfi eg mér að gefa yður hér með upplýsingar um hið rétta í þessu efni. Fyrst var danskur maður, Steffensen að nafni, skipstjóri á e. s. »Villemoes«, og átti hann að fara frá, sem allra fyrst, en það var i Kaupmannahöfn i síðustu ferð skipsins Þegar e. s. »Goðafoss« strandaði, ákvað ég að Júlíus Júlinusson skipstjóri, skyldi ekki fá skip hjá félaginu í 1 ár eftir strandið, og er það þyngsta refsing sem skipstjóri er dæmdur i, eftir skipbrot, ef honum hefir þá ekki yfirsést svo mikið, að honum sé alveg vikið frá félaginu.
Pétur Björnsson tók við es Borg eftir Júlíus
Þó að »Goðafoss«-strandið væri sárt tap fyrir landið, er ekki hægt að fyrirdæma manninn alla sína æfi fyrir það. Þegar skift var um skipstjóra á »Borg«, var Júlíusi Júlínussyni veitt skipstjórastaðan þar, vegna þess að hann var duglegasti og reyndasti skipstjórinn, sem vér áttum kost á, þá í svipinn, og var fáanlegur til þess að sigla til Englands, en kafbátahernaðurinn stóð þá sem hæst, og voru þær siglingar þvi mjög mikilli hættu bundnar. Fyrir fjölskyldumann,áleit eg að þetta vegaði fyllilega upp á móti þeim 3.1/2 mánuðum, sem var eftir af timanum, sem ég hafði áður ákveðið að hann skyldi ekki fá skip. Að þeim tima liðnum var Júlíus sá maður sem stóð næst Sigurði Péturssyrii og Ingvari Þorsteinssyni.Þegar Þórólfur Beck stýrimaður sótti um stýrimannsstöðu á e.s. »Sterling« í júlí f. á., og lofaði ég honum þeirri stöðu. Þegar Jón Erlendsson skipstj. á »Villemoes« varð veikur, varð 1. stýrimaður, Steffensen, sem er danskur, skipstjóri, en Beck varð stýrimaður á »Villemoes« i staðinn fyrir á »Sterling«. Þegar Steifensen fór af skipinu í Kaupmannahöfn átti Beck að hafa á hendi skipstjórn
á leiðinni hingað upp, en það hefir aldrei verið ætlun mín, að hann ætti að halda áfram sem skipstjóri á »Villemoes«, af þvi að bæði stýrimaðurinn á e.s. »Gullfoss«, Pétur Björnsson, og stýrimaðurinn á »Lagarfoss«, Jón Eiríksson, stóðu nær þeirri stöðu en Þórólfur Beck, þar eð þeir hafa báðir verið lengur i félagsins þjónustu, og engin ástæða var til þess að ganga fram hjá þessum mönnum, sem alt af hafa gert skyldu sína
Gullfoss I
© Handels- og Søfartsmuseets.d
Þegar Július Júlinusson, skipstjóri á »Borg«, átti að taka við skipstjórn á »Villemoes« og skipin mættust hér, bað eg Þórólf Beck bréflega um að taka við skipstjórn á »Borg«. Fór eg svo til Kaupmannahafnar, og eftir að ég var þangað kominn, fékk ég símskeyti um það, að hann þverneitaði því. Seinna tilkynnti Beck mér skriflega að hann hefði neitað að taka við skipsfjórn á »Borg«. Þá var skipið farið að sigla til Bergen í hverri ferð, og fara til Leith í herskipafylgd, svo að hættan var orðin miklu minni, sem og stríðsvátryggingariðgjaldið bar vott um, því það var nú orðið
þriðjungi minna en áður Ætlun min var sú, að Þórólfur Beck stýrimaður, yrði skipstjóri á »Borg« þangað til hún og »Gullfoss « mættust hér, og skifta svo við stýrimanninn á e.s. »Gullfoss«. En vegna neitunar Þórólfs Beck, kostar þessi skifting allmikið fé sem hefði annars sparast. Ef til vill neitar hann nú líka að taka við stýrimannsstöðunni á »Gullfoss« , þvi að hann virðist ætla, að skipstjórar og stýrimenn eigi sjálfir að ákveða hvaða skip þeir fái. Að endingu vil eg geta þess, að það er ég einn, sem samkvæmt samningi minum ræð skipshafnirnar á skipin, og að þess vegna má ekki álasa stjórn Eimskipafélagsins fyrir neitt þar að lútand Reykjavík, 8. júlí 1918. Virðingarfylst Emil Nielsen" Tilv.lýkur.
Jón Eríksson skipstjóri kemur hér við sögu
Og enn lítum við í dagbl Vísir nú þa 10 ágúst 1918:"Júlíus Júliníusson, sem áður var skipstióri á Goðafossi og siðar á Borg, er nu orðinn skipstjóri á Villemoes. En Þórólfur Beck, sem til bráðabirgða hafði verið falin skipstórn á Willemoes, verður fyrsti stýrimaður á Gullfossi. Hafði honum (Þ. B.) áður verið gefinn kostur á því, að verða skipstjóri á Borg, i stað Júliusar; það vildi hann ekki, en tók því aftur á móti mjög vel, að verða stýrimaður á Gullfossi. Það er kunnugt, að Júlíus Júliníusson hefir verið lagður mjög í einelti af ýmsum mönnum, og það áður en Goðafoss strandaði.
Þórólfur Beck varð svo skipstjóri á STERLING

Mynd úr mínum fórum © óþekktur
En þó að ekki hafi tekist rétt vel fyrir þeim að koma aðalsökinni á Goðafoss-strandinu á hann, þá létti það þó mjög róðurinn gegn honum. Er þvi skiljanlegt, að mönnunum sárni,er þeÍr sjá svo fram á það, að allur róðurinn ætlar að verða árangurslaus, enda eru þeir farnir að spyrja sjálfa sig "hvar róður þessi eigi að enda" Þeir höfðu tiltölulega hljótt um sig, þegar Júlíus varð skipstjóri á Borg. Englandsferðirnar þóttu ekki neitt keppikefli um það leyti. Nú hefir hann farið einar 4-5 ferðir tir Englands og reynst, eins og áður, hinn ötulasti skipstjóri og getið sér ágætan orðstýr hjá undirmönnum sinum, sem allir bera honum hið besta orð. Þegar hann tók við skipinu, var það í megnustu óhirðu, og munu allir, sem um borð komu, hafa tekið eftir þvi, hver munur var þar á umgengni allri eftir að Júlíus tók við stjórninni. Emil Níelsen, framkvæmdarstióri Eimskipafélagsins, er manna kunnugastur skipstjórahæfileikum Júlíusar. Það eitt, að hann vill ekki láta bann gjalda Goðafossstrandsins um aldur og æfi, heldur veita honum uppreisn, með því að fela honum skipstjóm á Villemoes, ætti að nægja mönnum sem sönnun þess, að eitthvað sé í manninn varið.
Síðan á Esju I

Mynd úr mínum fórum © óþekktur
En svo er heift þessara manna til Júliusar mögnuð, að þó að öllum komi saman um, að Nielsen hafi að öllu leyti farist stjórn Eimskipafélagsins afbragðsvel úr hendi, þá er nú helst svo að sjá, sem nú eigi að fara að beina "róðrinum" gegn honum, af því að hann gerðist svo djarfur að veita Júlíusi skípstjórastöðuna á Villemoes".Tilv lýkur En eins allar góðar sögur hafa þessar "happy ending". Júlíus átti farsælan feril sem skipstjóri til 1940 Lengst af eða 14 ár á BRÚARFOSSI I Þórólfur Beck einnig farsælan feril sem stm og skipstjóri Lengst af á ESJU I sem hann sótti nýja 1923 og var með hana til 1929 að hann veiktist alvarlega og lést upp úr því 3 júni 1929. Pétur Björnsson varð skipstjóri á es BORG eftir Júlíus. Hann átti farsælan skipstjóraferil þ.á.m á GOÐAFOSSI II í 12 ár. Jón Eríksson átti glæstan feril Hjá Eimskipafélaginu og var manna lengst með es LAGARFOSS I Eða í 11 ár. Jón Erlendsson átti ekki feril sem fastur skipstjóri en var yfirverkstjóri hjá Eimskipafélagi Íslands frá 1917-1945 Þetta er eins og ég sagði sitt úr hvorri áttinni. Og ekki í neinni réttri röð.Og tilvitnarnar hafðar eftir mönnum með misjafna ásýnd á þessum málu..Ég tek enga afstöðu til þeirra. En mín von er að þessi skrif varpi örlitu ljósi á mál sem ofarlega voru á baugi þess tíma. Og virðist satt að sega vefjast enn fyrir mönnum
06.08.2015 19:41
Skipstjórar í árdaga ísl .farmennsku I
Sveinbjörn Egilsson var mikill áhugamaður um íslenska farmennsku
Stýrimannaskóli hefir nú starfað hér á landi um 30 ára skeið og hefir útskrifað fjölda manna. Hann hefir verið endurbættur og fylgst með tímanum í einu og öllu og kennarar hafa verið ágætir, en eftir það að auðsjáanlegt er að landið fer að eignast milliferða- og vöruflutningsskip, hefir engum dottið i hug að til að stjórna þeim þurfi íslenska menn, með islensku stýrimannaprófi í það minsta eftir nýár 1918, en nú i júní 1917 vantar alla réttindi til að gerast skipstjórar á slíkum skipum, hvernig á að skilja það."Svo rekur Sveinbjörn Siglingarlögin Og svo seinna í greininni:" Við erum að eignast skip þeim eiga að sigla íslenskir menn með islensku prófi, til þess að hafa rétt til skipstjómar verður að hafa siglt í tvö ár sem stýrimaður og á þvi er enginn byrjaður, nema þeir örfáu menn, sem eru bjá Eimskipafélaginu; hjá því fjölgar skipum og stýrimenn þeirra hafa máske ekki siglt nóg, þegar enn fleiri koma,hvað skal þá? Þá kemst undanþágan að, sem sumum þykir svo vænt um að sjá í öllum siglingalögum okkar. Eina ráðið er nú, sé nokkur alvara í öllu þessu, eigi íslenskir menn að sigla framvegis islenskum millilandaskipum, að eiga Eimskipafélagið að, til þess að við getum fullnægt kröfunnm. Það gæti haft yfirmannaefni á skipum sinum 2-3 unga menn með prófi, sem nytu tilsagnar og leiðbeininga yfirmannanna og væru þannig tilbúnir að komast að, fyrst sem aðrir stýrimenn þegar eitthvað losnaði og í hvert skifti, sem skip er keypt, losnar eitthvað" Tilv lýkur
Emil Nielsen fyrsti forstjóri Eimskipafélags Íslands
Það voru mikil átök um skipstjórastöður hjá Eimskipafélagi Íslands á árdögum þess félags. Í maí 1917 keypti Landsjóður þrjú skip es BORG es WILLEMOES es STERLING og voru þau sett "undir hatt" Eimskipafélags Íslands Það mætti segja að þessi átök hefjist öll upp úr strandi es GOÐAFOSS En það voru allavega að litlum hluta að séð deilur milli sjómannana sjálfra. Heldur tóku fréttablöðin með sinni fjöld af spekingum (eins og ávallt) sem tóku af þeim ómaki. Í ársbyrjun 1917 keypti Eimskipafélagið es PROFIT norsksmíðað danskt skip sem þeir gáfu nafnið LAGARFOSS.
es LAGARFOSS I
Mynd úr mínum fórum © óþekktur
Skipstjóri var ráðinn Ingvar Þorsteinsson . Þaulreyndur skipstjórnar maður en að mati "bannmanna" talinn dálítið talinn fyrir sopan. Lítum aðeins í vikublaðið Austra þ 14 apríl 1917:" Eins og getið var um í símskeyti hér í blaðinu fyrir nokkru síðan, verður Ingvar Þorsteinsson skipstjóri á »Lagarfossi«. Hann stýrði strandferðabátnum »ísafold« og síðar »Kristjáni IX.« er Ásgeir Pétursson átti Bólað hefir á nokkurri óánægju Bólað hefir á nokkurri óánægju með skipstjóravalið á »Lagarfoss«.
Ingvar Þorsteinsson skipstjóri (1875-1949)
Þykir mönnum, sem von er, það miklu skifta að vel sé vandað til valsins, og verður tilrætt um »Goðafoss«-æfintýrið í því sambandi. »Austri« hefir ekki viljað leggja neitt til þess máls hingað til, en að fengnum upplýsingum þykir rétt að geta þess að val skipstjóra á skip Eimskipafélagsins fellur undir starfsvið útgerðarstjóra samkvæmt lögum félagsins. Enda eðlilegast, þar sem hér stendur svo á, að hann hefir sérþekkingu á að byggja. En ábyrgð verður hann að bera á vali sínu. Nýtur Nielsen trausts Einaskipafélagsstjórnarinnar í þessu efni sem öðrum. Hann hefir nú valið þann af þeim, sem kostur var á, er hann telur hæfastan. Um fáa var að velja, og sumir íslenskra skipstjóra t. d. Guðmundur Kristjánsson öfáanlegir.
Jón Erlendsson (1878-1967)
Jón Erlendsson, yfirstýrimann á »Gullfoss«, vill Nielsen gera að góðum skipstjóra, en vill að hann sé enn um hríð stýrimaður. Jón hefir aflað sér álits flestra eða allra, sem hafa kynst honum, og myndi það mörgum kært að vita hann i skipstjórastöðu hjá Eimskipafélaginu. Ingvar Þorsteinsson er þekktur að dugnaði, en ekki hefir hann þótt reglumaður að sama skapi. En fullyrt er að skiptjórastaðan á Lagarfossi sé veitt honum með skilyrði um algerða reglusemi, og verður að treysta því, meðan ekki er önnur reynsla á fengin" Tilv.lýkur En þetta var aðeins byrjuninn Eimskipafélagið var með skip Landstjórnar í rekstri hjá sér
Es Borg
Og þegar Júlíus Júlíníusson var ráðinn skipstjóri á es BORG fóru blöðin á fullt.Til að fá betri yfirsýn á það skulum við líta í Morgunblaðið þ 2 febr 1917:" Þegar eftir að Lagarfoss var keyptur, hafði »Politiken« tal af Nilsen framkvæmdastjóra, og spurði hann hvort Júlíus ætti að verða skipstjóri á hinu nýja skipi. Nei: svaraði Nielsen, hann skal aldrei nokkru sinni stýra skipi fyrir Eimskipafélag íslands. Sá skipstjóri, sem þvert ofan í lög og reglur bannar stýrimönnum sínum að nota gufupípuna, nema þvi að eins að láta sig vita áður, og sá skipstjóri, sem hvergi er hægt að finna í skipinu, má alls eigi stíga fæti í skip okkar. Nei, hinn nýi skipstjóri verður duglegur og áreiðanlegur og þaulkunnugur íslandsferðum frh
04.08.2015 17:19
Berit
Hér sem Berit
Úr safni Bjarna Halldórs
Skipið var smíðað hjá Finnboda Varf í Stockholm 1963 sem Berit Það mældist: 1599.0 ts 2500.0 dwt. Loa: 93.80 m brd: 13.80. m Það hefur gengið undir nokkrun nöfnum á ferlinum. M.a: 1987 LERIDA - 1988 OBERON - 1988 SCANWOOD - 1989 GINA II. Nafn sem það bar síðast undir fána :Malaysia En þetta segir í mínum gögnum um skipið nú
"No Longer updated by (LRF) IHSF (since 01/03/2010)"
Hér sem Berit
© söhistoriska museum se
© Hawkey01
Hér sem LERIDA
© Peter William Robinson
© Peter William Robinson
03.08.2015 21:37
Skipin hans Ingvars
Ingvar Þorsteinsson skipstjóri (1875-1949)
Síðan á skonnortuna VALDEMAR (engin mynd) og skonnortuna RAGNHILD. 1906 tekur hann" Den almindellige Styrmandseksamen" frá Navigationsskole í Bogö og "Den udvidede Styrmandseksamen" frá sama skóla 1909. Hann fer á es PONTOPPIDAN sem annar stm á milli prófa.
GEYSER
© Handels- og Søfartsmuseets.dk
Skonnortan RAGNHILD í Suðurlöndum
"Maður er nefndur Jónas frá Hriflu.Hann temur sér nú mjög um þessar mundir að skrifa um alla hluti, og vekja heldur skrílskenndar tilfinningar manna en hitt og auðvitað er hann æstur bannmaður, og ræðst nú síðast á Eimskipafélagsstjórnina og átelur hana fyrir að hafa ráðið herra Ingvar Þorsteinsson fyrir skipstjóra á »Lagarfossi«, af því hann sé ekki »reglumaður«.
PONTOPPIDAN
Þetta orð »reglumaður« á víst að tákna það, að Ingvar sé ekki í vinbindindi; en nú mun enginn »reglumaður« á máli bannmanna, nema hann sé helst æstur bannmaður. Þessar árásir eru auðsjáanlega gerðar í þeim tilgangi, að sverta Ingvar og vekja óhug og vantraust á honum og stjórn Eimskipafélagsins og framkvæmdastjóra þess, hr. Nielsen, sem heflr ráðið Ingvar.
SKÁLHOLT
Eg þekki herra Ingvar skipstjóra ekki mikið persónulega, en það sem ég hefi kynnst honum og heyrst hefir um hann sem skipstjóra ber þess vitni, að hann sé duglegur, lipur og áræðinn sjómaður, og hafi stýrt skipum sínum með góðri reglu.
CHRISTIAN IX
Og hver mun trúa þvi, að Nielsen framkvæmdastjóri hafi ráðið manninn, nema af því að hann þekkir hann að þeirri reglusemi, sem til starfans útheimtist.Engir nema æstir bannmenn munu trúa Jónasi betur en Nielsení þessu efni. Jónasi, sem mér þykir líklegt að beri ekkert skynbragð á sjómensku eða skipstjórnarstörf" Svo mörg voru þau orð í "Austra"Undir greinina ritar Sigurjón Jóhannsson Ritstjóri "Austra"
Sig. Baldvinsson frá Stakkahlíð. ber nú samt blak af Jónasi í sama blaði Og gætu þessi skrif orðið að "yrkisefni" í aðra færslu
LAGARFOSS I við komuna til Reykjavíkur í fyrsta sinn 17 maí 1917
Mynd úr mínum fórum © óþekktur
Er með hann til 1921 að hann tekur es WILLEMOSE Og er með hann til 1922 .Eftir það er hann skipstjóri á dönskum skipum,
WILLEMOES
M.a á es GRIBSKOV, es NORLAND og ms STEADY Í stríðsbyrjun 1939 er hann með es PROGRESS og fl dönski skip fyrir Breta
STEADY
1942 varð skip hans fyrir loftárás þar sem þar lá í enskri höfn Slasaðist Ingvar þar ílla og lá lengi á spítala og sigldi ekki meira í stríðinu Ingvar lenti þrisvar í sjávarháska út af stríðsátökum. Hann var heiðraður af bretum fyrir björgun og góða frankomu í stríðinu.
PROGRESS
Eftir stríðið starfaði hann svo við leiðsögn amerískara skipa í Austursjónum. Svo maður tali viðskiftamál þá er einn af aðalbirgjum mínu hvað myndir varðar í lamasessi nú um stundir svo fleiri myndir fylga ekki þessari færslu en þær eiga kannske eftir að birtast
- 1