Færslur: 2009 Nóvember
29.11.2009 20:10
M/T Futura
Þóroddur Sævar Guðlaugsson hefur sent mér nokkrar skemmtilegar myndir Hér er 1 þeirra.Skipið er M/V Futura.Það var byggt hjá Jinli Shipsyard Nanjing Kína. Fyrir Poosu, Porvoo Finnlandi Það mældist: 15980.ts 25094 dwt,Loa:169.50 m brd: 23.75 m. Myndin mun tekin á Faxaflóa fyrir stuttu Þóroddur á kærar þakkir skyldar fyrir sendinguna
29.11.2009 16:39
Gamlir"félagar" 3
@ Dick Smith Shipsnostalgia.com
29.11.2009 14:21
Gestir
Hinn gesturinn er nær 11 árum yngri.Hann heitir Caroline Theresa.Alltaf betra að hafa kvenkynið yngra.(engin feministi les síðuna svo það er allt í lagi að segja svona.En ég myndi grjóthalda kjaf.. ef einhver slíkur væri í námd) En að alvörunni aftur.Skipið var byggt hjá Nantong Mingde Shipsyard við Yangtze River í Kína 2009.Skipið mældist 5706 ts.8241.dwt Loa:101.4 m Brd: 19.1 m.
Eins og sjá má er ljósmyndarinn engin snillingur í myndatöku og hreinlega saknar ferköntuðu Kodak kassana eins og hann fékk í fermingargjöf en stampaði svo ja ekki meir um það,nokkrum árum seinna og fékk aldrei til baka
Hérna er hún í smíðum ásamt 3 systrum
Brúin er ekki dónaleg.Þessar 2 myndir eru af heimasíðu Yardsins
27.11.2009 23:30
Gamlir"félagar"
27.11.2009 19:38
Endalok tvöfaldrar stjörnu
Í mikilli þoku þann 27-01-2006 rákust 2 skip saman á ytrihöfn Port of Callao í Peru.Þar sem hið Kýpurflaggaða flutningaskip Pintail hreinlega skar í sundur Panamaskipið Twin Star.Twin Star sökk á botnin en skömmu eftir tókst ekki betur til en að Möltuflaggaða skipið Alice sigldi á flakið.Enginn mann sakaði í þessum ósköpum og Pintail og Alice skemmdust lítið sem ekkert
Mannbjörgunar aðgerð á fullu
Twin Star á botninum
Tvin Star Var byggt hjá Shin Kurushima Shipsyard í Onishi í Japan1998 Það mældist 14437,ts.23701 dwt. Loa:150.0 m. brd: 26.0.m
Pintail var byggður hjá Jiangnan Shipsyard í Shanghai Kína 1983.Var 1st undir Líberíuflaggi og fékk nafnið Punica Það mælist 17185.0 ts 28035,0 dwt. Loa: 197.0m.brd: 23,1m.1995 fer skipið undir Kýpurflagg og fær nafnið Pintail. 2007 fær það nafnið Athanasios G Callitisis
Alice var smíðuð hja Warnowwerft í Warnemunde í þáverandi A-Þýskalandi og hlaut nafnð Irini´.Skipið mældist 13557, m 17330.m loa:158,0 m. 2003 fer skipið undir maltaflagg og er skírt Alice.2007 er skírt Alice
25.11.2009 22:15
Útförin
Þetta skip sem hét Ioannis NK var byggt hjá Imabari Zosen skipasmíðastöðinni í Marugame Japan 1977 fyrir japanska aðila.Það hlaut nafnið Masashima Maru, :að mældist 14059 ts 23791 dwt.Loa;159 m, brd:24,6, Það fær nafnið Yvonne 1991 og Ioannis NK 1999.Það sekkur svo eins og sést á 31°07´0 S og 16°27´A 23-07-2009.Það var á leið frá Brasilíu til Indlands með 22.500.mts af sykri. 23 manna áhöfn bjargaðist Haffæriskírteini þessa 32 ára skips var í gildi til 19 sept 2009. En eins og sjá má er eins og plata hafi hreinlega losnað úr skrokknum
25.11.2009 22:00
Ýmislegt að skoða
http://cargolaw.com/2000nightmare_singles.only.html
http://cargolaw.com/2009nightmare_marco-polo.html
http://www.marisec.org/video3.htm
25.11.2009 14:38
Lagarfosss I II III og IV
Lagarfoss I var smíðaður fyrir norska aðila H.Klær & co, hjá Nylands Værft í Kristjaníu (Osló?) Skipið var skírt Profit 1126 ts loa:68,6 m brd 10.3.m..Eimskip kaupa skipið 1917 og skíra Lagarfoss.1920 var skipið eiginlega endurbyggt og mældist þá 1211 ts 1600 ts dwt,Skipið var rifið í Kaupmannahöfn 1949
Skipið var smíðað fyrir Eimskipafélag Íslands 1949. Það mældist 2923 ts 2700 dwt.Loa 94.7 m brd 14,1 m..Skipið var 3ja skipið í röð 3ja skipa sem Eimskipafélagið lét smíða hjá Burmeister & Wain í Kaupmannahöfn.Eimskip hafði byrjað að huga að stækkun flotans upp úr 1930 Með byggingu nýs farþegaskips og 1 flutningaskips. Létu teikna þessi skip..Þessar áformanir fóru út um þúfur vegna ástandsins í Evrópu og stríðsins,En strax 1945 var samið við danina um smíði 2ja vöruflutningaskipa með farþega rými og 1 farþegaskips,Og voru gömlu teikningarnar að ég held notaðar allavega að einhverju marki. Síðan var 3ja flutningaskipinu Lagarfossi bætt við. Eimskip seldi skipið 1977 til Kurnia Sg Singapore og fékk nafnið East Cape. Það var svo selt til Hoe Hoe Sg Co í Honduras 1980 og skírt Hoe Aik og eftir þeim gögnum sem ég hef hefur það verið í notkun til 2002
Lagarfoss II sem Hoe Aik
Lagarfoss III var smíðaður hjá Frederhavns Værft A/S Frederikshavn fyrir Mercandia Rederiene (Per Henriksen) og fær nafnið Mercandian Importer.Það mældist 1599 ts 2999 dwt. Loa:78,5m brd 13.1 m.Eimskip kaupir skipið 1977.Var það síðasta af 4 systurskipum sem Eimskip keypti af Mercandia.. Eimskip selja skipið 1982 til Kýpur og hlaut það nafnið Rio Tejo. Þ. 28-02-1987 verður mikil sprenging í vélarúmi skipsins.Það var þá statt 55 sjm.SSV af Nouadhibou Máritaríu. Skipið var svo dregið til Brugge Belgíu og rifið þar í maí 1987
Lagarfoss IV var smíðaður hjá JJ Sietas KG Neuenfelde Þýskalandi fyrir þesslenskan aðila og hlaut nafnið John Wuff.Það mældist:1599.ts 3806 dwt. Loa:93.5, m Brd: 14,5 m. Eimskip kaupa skipið 1982 og skíra Lagarfoss.Eimskip selja skipið 1996 og fær það nafnið Cita, Því hlekkist á og það ferst við Isles of Scilly 26-03-1997.
Endalok Lagarfoss IV
24.11.2009 23:08
Dettifoss I II III IV og V
Dettifoss I var byggður í Frederikshavn Værft Frederikshavn Danmörg 1930 fyrir Eimskipafélag Íslands.Það mældist1564 ts dwt 2000.Loa 72.2.Brd 11.0 m.Örlög skipsins urðu þau að það var skotið niður af þýskim kafbát U-1064 á 53°03´N og 003°29´W,þegar það var á leiðinni frá Belfast til Reykjavíkur. Í þessu hörmulega sjóslysi fórust 12 skipverjar og 3 farþegar.Það var kaldhæðni örlagana að í setusal skipsins var heiðurskjöldur frá Hindenburg forseta Þýskalands fyrir björgun á skipshöfninni á þýska togaranum Lübeck 1932
Dettifoss II var smíðaður hjá Burmeister & Wain Copebhagen Danmark 1949 fyrir Eimskipafélag Íslands. Það mældist:2918 ts 2700 dwt.Loa:94,6 m Brd 14.1.m.Eimskip selur það1969 til Philipseyja (C.A Gothong) og það fær nafnið Don Sulpicio.1976 fær það nafnið Don Carlos Gothong.Skipinu hlekkist á og hvolfir við höfnina í Cebu á Philipseyjum 1978
Dettifoss III var smíðaður hjá Ålborg Værft Ålborg Danmark 1970 fyrir Eimskipafélag Íslands Það mældist 3004 ts 4300 dwt.Loa:95.6 m Brd 14.5 m.Skipið er selt 1989 og fær nafnið Nan XI Jang,Ekki vitað um nánari feril
Dettifoss IV er smíðaður hjá Sietas skipasmíðastöðinni i Neuenfelde Þýskalandi sem Ilse Wuff fyrir þýska eigendur H WuffÞað er aðallega í bareboatleigu og bar ýmis nöfn m.a Convoy Ranger,Rachel Borchard,Eimskip kaupa? skipið 1991 og skírir það Dettifoss. Skipið er svo selt? 2000 og fær nafnið Tina
Detti foss V er smíðaður hjá Örskov Christensen í Frederikshavn Danmark 1995 fyrir danska aðila.Það gekk undir ýmsum nöfnum m.a TRSL Tenacious,Maersk Santiago.Un Eimskipafélagið keypti það og skírði Dettifoss
24.11.2009 17:09
Ljósafoss I
Skipið var byggt hjá Scheepswerf De Hoop í Lobit Hollandi 1961 og skírt Echo.Það mældist 1855 ts.2142 dwt,Loa:88,4m. Brd 12.8,m. Skipið var sérstaklega byggt til siglinga á vötnunum miklu í Canada. Eimskip kaupir skipið 1969 og skírir Ljósafoss.Eimskip selur það 1972 til Frakklands þar sem það fær svo nafnið Pecheur Breton,1987 er það selt til Seychelles Isl en heldur nafni,Það er svo selt til Honduras 1994 Heldur enn nafni Skipið sekkur svo 01-07-1994 á 06°51´0 N og 079° 48´0 A eftir að leki kom að því. Þá var skipið á leið frá Seychelles Isl til Alang Indlandi til niðurrifs.Mér fannst þetta alltaf eitt af fallegustu skipunum í íslenska kaupskipaflotanum meðan skipsins naut við þar
20.11.2009 17:30
Reykjafoss III IV og V
Reykjafoss III, Skipið var byggt hjá Ålborg Værft Ålaborg Danmörk 1965 fyrir Eimskipafélag Íslands Það mældist 2435 ts,3830 dwt.Loa:95.6 m. Brd.13.7 m.Eimskip selur skipið1980 til Panama og fær það nafnið Gavilan 1988 nafnið San Ciro,1990 Neo Fos og 1991 nafnið Mercs Komari Skiðið er svo rifið é skipakirkjugarðinum Alang 2004
Reykjafoss IV var smíðaður sem Regulus hjá Sietas skipasmíðastöðinni í Neuenfelde Þýskalandi 1979.Skipið mældist:3726 ts 5788 dwt, Loa:110,8 m. brd:16,1 m..Eimskip tók skipið á leigu með kaupheimild 1984 og skírir Reykjafoss.Eimskip selja skipið 1999 og fær það nafnið Carnation
Reykjafoss V var byggður hjá Cassen Emden Þýskalandi 1999 og fær nafnð Westersingel Það mældist 7540 ts.8430 dwt. Loa:127.0 m brd 20.4m.
18.11.2009 00:23
Reykjafoss I og II
Ég vil taka það fram að allar myndir tekinar hér í Eyjum eru frá vinum mínum Tryggva Sigurðssyni og eða Torfa Haraldssyni Mér hafa borist myndir frá mönnum sem ég hef hlaðið inn og gleymt að halda nöfnum til haga.Ég hreinlega kann ekki að merkja myndirnar en .að kemur vonandi kemur. En nu skulum við líta á nokkra Reykjafossa Sá 1sti var smíðaður hjá Burmeistir & Wain í Kaupmannahöfn Danmörk 1911 Fyrir norska aðila O & A Irgens og hlaut nafnið Manchioneal,Það mældist1654 ts.2010 dwt. Loa: 77.8.m Brd 10.9.m. Eimskipafélag Reykjavíkur (H.Faaberg o fl)
Reykjafoss II er smíðaður hjá Rosi SpA í Taranto Ítalíu 1947 fyrir Acehile Lauro Napólí.Skipið sem hlaut nafnið Gemito mældist 1560 ts. 3070.dwt.Loa:89.90.m Brd 12.70.M.Eimskipafélag Íslands kaupir skipið 1951 og skírir Reykjafoss Þeir selja svo skipið 1965 til Dorikat Special Sg Co Ltd Píraeus sem skíra það Greta.1969 er skipið selt innanlands til Keanav Sg Co Piraeus og skírt Annoula.Sem svo aftur selur það 1973 til Stazomar Sg Co Ltd Limasol Cypur. Og fær nafnið Anna.Skipið er svo rifið í Bombay(Mubai)1981
16.11.2009 17:46
Lagarfoss I og Goðafoss III
16.11.2009 17:31
Ferjuslys
Sjá hér
http://mdn.mainichi.jp/video/mai/0257.html?keepThis=true&TB_iframe=true&height=500&width=430
og hérna
http://news.bbc.co.uk/2/hi/asia-pacific/8358367.stm
- 1
- 2